18.01.1952
Neðri deild: 61. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 734 í B-deild Alþingistíðinda. (979)
168. mál, ríkisreikningar
Jörundur Brynjólfsson:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. — Mér finnst í umr. milli nágrannanna nú síðast gæta nokkurs misskilnings milli þeirra og það sé ekki svo mjög um höfuðatriði málsins, sem þá greinir á, a.m.k. sé ekki mikið úr því gerandi. Hv. frsm. fjhn. vék að því í sinni ræðu í upphafi, að greidd hefðu verið með bréfum nokkur gjöld frá fyrirtækjum og mönnum, líklega til ríkissjóðs, og taldi, að það kynni að vera varhugavert og mundi hafa verið rétt að ganga eftir því, að þessi gjöld eins og önnur væru greidd í peningum. Ég tek undir það með hv. frsm., að það mundi ekki vera heppilegt að leyfa slíkt, ef nokkur von væri um að geta fengið þessar greiðslur með öðru móti, og fyrir þá sök leitaði ég mér upplýsinga ráðuneytisins, þegar þetta gerðist, um það, hvort það hefðu ekki verið möguleikar að innheimta þetta á sama hátt og önnur gjöld. Og eftir þeim upplýsingum, sem ég hef fengið um þetta efni, þá mun hafa verið erfitt hjá ríkissjóði að fá inn þessar greiðslur. Að minnsta kosti var ráðuneytið, sem hafði úrskurð þessa máls, þeirrar skoðunar, að hæpið væri, að það þýddi að reyna innheimtu á annan hátt en þarna var gert. Fyrir þá sök gerðum við ekki sérstakar athugasemdir um það, því að mér er ekki kunnugt um, að greiðsla venjulegra gjalda hafi haldið áfram í þessum stíl. En ég tek undir það með hv. frsm., að slík innheimtuaðferð ætti ekki að eiga sér stað nema sem nauðsynlegt úrræði.
Hv. frsm. vék að því, að endurskoðun sú, sem fer fram hjá stofnunum og fyrirtækjum, ætti að mestu leyti að vera töluleg, og hún á einnig að vera krítísk frá þeim mönnum, sem hana framkvæma, bæði töluleg og krítísk. Ég skal víkja að því í þessu sambandi, út af því, sem hv. frsm. sagði um störf yfirskoðunarmanna, að þau ættu að vera sem mest krítísk yfirskoðun, en ekki töluleg, að það er rétt. Fyrst og fremst á starf yfirskoðunarmannanna að vera krítískt, en jafnframt verður það líka að vera tölulegt, af því að um er að ræða bæði niðurstöðu gjalda og tekna, sem vissara er að rétt sé með farið, þannig að reikningarnir séu réttir. En slíkt er ekki hægt án þess að ganga um leið úr skugga um, að reikningarnir séu rétt færðir, hæði hvað snertir tekjur og gjöld. Það er háttur yfirskoðunarmanna, en að vísu mismunandi eftir því, hvernig menn kunna að líta á einstök atriði, að vísa slíkum atriðum til Alþingis, ef það vildi láta til sín taka meira en þeir geta gert í till. sínum. Einmitt þau atriði, sem yfirskoðunarmennirnir víkja þar að og vísa til þingsins, tekur nefndin undir með þeim og bendir á, að framkvæmd þessara mála, sem hér liggja fyrir, skuli lagfærð eftir till. Það er ekki viðunandi að fara svo með þessi mál í framtíðinni eins og farið hefur verið með þan. Og ég get fyrir mitt leyti látið mér nægja afgreiðslu n. um þetta mál. En ég tek undir það, að forðast beri að láta þetta vera áfram eins og þarna hefur átt sér stað, því að í framkvæmdinni mundi það annars verða skoðað sem algert samþykki þingsins fyrir þessari afgreiðslu, ef ekki kæmu af hálfu þm. sérstök andmæli og fallizt væri á þessar athugasemdir og till., sem gerðar hafa verið og fjhn. undirstrikar.
Það hefur komið fyrir hér á Alþingi, en er mjög sjaldgæft, að af hálfu fjhn. hefur komið fram álit í sambandi við afgreiðslu reikninganna. Og þá sjaldan það hefur komið fyrir, þá hefur það ekki valdið neinum straumhvörfum um framkvæmdina hjá ríkinu um þessi atriði. Hitt er höfuðatriðið, að ríkisstj. viti, hvernig Alþingi hefur litið á þessi mál. Finnst mér þess vegna, að þetta út af fyrir sig þurfi ekki að valda neinum ágreiningi um afgreiðslu þessa máls. Og ég sé því ekki ástæðu til að deila mikið um þetta, þar sem ég vona, að þær ráðstafanir, sem gerðar hafa verið af hæstv. fjmrh., geti orðið til að kippa þessu í rétt horf og hin umboðslega endurskoðun komi til með að vera það fljótlega búin, að yfirskoðunarmennirnir geti haft hana við höndina, þegar þeir ganga frá reikningunum. Það er mikil nauðsyn, að öll endurskoðunin sé unnin jafnóðum og hún komist sem fyrst í það horf, að daglegt eftirlit verði með því, sem gert er. Og því vil ég beina því til hv. frsm., að það er alveg rétt í þessum efnum, sem hv. þm. A-Húnv. tók fram í ræðu sinni hér í dag. Bein lagafyrirmæli lúta að þessu, að yfirskoðunarmennirnir skuli kynna sér þessar skýrslur, áður en þeir skila reikningunum frá sér, svo að hér hefur hann lög að mæla.
Ég vænti, þó að hv. frsm. viti, að ef okkur yfirskoðunarmönnum, sem eigum sæti hér á þingi, sýnist sérstök ástæða til að gefa sérstakt álit um þetta efni, þá getum við flutt um það sérstakar tili., þá skilji hann, hvernig háttar um þetta máli Það er rétt, að við gætum það sem þm., en sá er munurinn á okkur og öðrum þm., að við erum riðnir við þetta mál sem yfirskoðunarmenn. En við getum gert okkar till. við þau atriði, sem okkur sýnist rétt að gera till. við, en þingið er okkar húsbóndi um þetta verk, og fjhn. er sá aðili í þinginu, sem fær þetta mál til meðferðar, en hún hefur litinn tíma, og getum við því ekki gert miklar kröfur til hennar. En við yfirskoðunarmenn, þó að við eigum sæti hér á þingi, álítum eðlilegast, að við drögum okkur sem mest í hlé, því að okkur er það ekkert sérstakt keppikefli að taka þetta mál hér sérstaklega upp til flutnings. En þetta er ekki mikilvægt atriði, og við eigum ekki að deila um það, því að þetta skiptir ekki neinu máli.
Ég fyrir mitt leyti ætla ekki að fjölyrða um þetta máli En ég vona, að hv. frsm. telji það ekki óeðlilegt, að við yfirskoðunarmenn teljum okkur bundna af lagafyrirmælum, hvernig við eigum að vinna að þessu verki.
Hæstv. fjmrh. vék að því í ræðu sinni í dag. að til þess að þetta gæti komizt í gott horf, þá yrði endurskoðunin að fara fram upp úr áramótum og henni lokið að vori. En þá þyrfti yfirskoðunin að fara fram að sumrinu, til þess að reikningarnir gætu legið fyrir Alþingi að haustinu. Þetta er alveg rétt. Það þarf að hafa verkið tilbúið að haustinu, til þess að þetta starf gangi fyrir sig, eins og það þarf að vera. Og sjálfsagt verður reynt að uppfylla þær skyldur, þegar þannig stendur á, að hægt verði að koma verkinu þannig fyrir.