21.11.1952
Neðri deild: 30. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 949 í B-deild Alþingistíðinda. (1001)

42. mál, verðlag

Emil Jónsson:

Herra forseti. Þau fáu orð, sem ég ætla að segja, eru nú ekki beinlínis um þetta mál, en ég vænti, að hæstv. forseti hafi þolinmæði með mér eins og hæstv. ráðh., sem fór inn á það mál í sinni næstsíðustu ræðu hér áðan. Hann fullyrti, að samdráttur sá, sem orðið hefði í iðnaði, væri eingöngu eða a.m.k. aðallega vegna þess, að nokkrar svartamarkaðssaumastofur hefðu orðið að loka, þegar þær vörur komu á frjálsan markað. Ég fullyrði aftur á móti, að þetta er rangt hjá hæstv. ráðh., og ég skal færa rök að því. Rökin eru þau, að fyrir ári síðan kom nefnd frá félagi verksmiðjufólks, Iðju, hér í Reykjavík og frá Félagi íslenzkra iðnrekenda á fund iðnn. Nd. og sýndi n. lista um fækkun í 7 iðngreinum. Og fækkunin í þeim iðngreinum var, ef ég man rétt, milli sjö og átta hundruð manns, og saumastofurnar voru þó ekki nema ein af þessum 7 iðngreinum, og ég man einu sinni ekki, hvort þær voru mannflestar eða þar væri fækkunin mest. (Gripið fram í.) Hæstv. ráðh. sagði í ræðu sinni hér á miðvikudaginn var, ef ég man rétt, að aukningin í ár, á þeim hluta ársins 1952, sem liðinn væri, hefði verið 58 manns. Ja, svo tók ég eftir. Annars getur hæstv. ráðh. bætt úr þessu og alveg á óyggjandi hátt með því að birta um þetta opinberar skýrslur, ef þær liggja fyrir. Hæstv. ráðh. nefndi hér líka vinnuvikutölu á miðvikudaginn var, þegar þetta mál var til umr., og nefndi þá, að vinnuvíkur í iðnaði hefðu verið 115 þús. 1949. Ég athugaði þessa tölu ekki þá í flýtinum, en mér kemur það spánskt fyrir nú við nánari athugun, ef þessi tala nær yfir alla starfsemi í iðnaði, og hygg ég, að það sé alls ekki. Og hvað um þá, sem ekki eru taldir þar? Getur hæstv. ráðh. upplýst það? En hann sagði, og það voru hans óbreytt orð, að fækkun í iðnaði hefði á þessum tveim árum, frá 1949–1951, orðið 12%. Og nú er það vitað, að þriðjungur landsmanna hefur uppihald sitt af iðnaði, og það þýðir þá, ef sá þriðjungur, sem hefur atvinnu af iðnaði, minnkar um 12%, að heildarminnkun í atvinnustundum landsmanna hefur orðið um 4%, — það verður ekki hrakið, — ef skýrsla hans er þá nema partur af því, sem hún á að vera. En það getur hæstv. ráðh. væntanlega upplýst, hvort þessar 115 þús. vinnuvíkur ná yfir allt eða ekki, og þá vildi ég gjarnan líka fá að vita, hvað vantar.