23.01.1953
Neðri deild: 56. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 952 í B-deild Alþingistíðinda. (1011)

42. mál, verðlag

Jón Pálmason:

Herra forseti. Eins og ég lýsti hér við 2. umr. um þetta mál, þá flutti ég þá brtt. á þskj. 569, en ákvað, eftir tilmælum hæstv. forseta, að fresta atkvgr. um þessar brtt. til 3. umr. með tilliti til þess, að ætla mætti, að hv. n., sem hefur um þetta að fjalla, gæti fengið aðstöðu til þess að athuga þessar brtt. milli umr.

Nú var það svo við 2. umr., að hv. frsm. n. var ekki viðstaddur, og ég hygg, að svo sé enn, og þess vegna hefur ekki komið neitt í ljós afstaða hv. n. um þessa brtt., en ég held fast við hana og vænti þess, að hv. þdm. geti samþ. hana. En um rök fyrir henni þarf ég ekki að ítreka það, sem ég tók hér fram við 2. umr., nema því aðeins að einhver mótmæli komi fram gegn till.