02.02.1953
Efri deild: 62. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 959 í B-deild Alþingistíðinda. (1030)

42. mál, verðlag

Frsm. (Rannveig Þorsteinsdóttir):

Herra forseti. Í hv. Nd. var gerð sú breyt. á þessu frv. við 3. umr., að bætt var inn í það nýrri grein, sem nú er 2. gr., og er hún um það, að birta skuli á 3 mánaða fresti skýrslu, er sýni útsöluverð, og einnig að það skuli birta skýrslu um verð á aðaltegundum byggingarefnis, en 4. gr. þessa frv. eins og það er nú, sem var 3. gr., er frv. fór héðan, var um það, að mánaðarlega skyldi birta slíka skýrslu sem gert er ráð fyrir að birta á 3 mánaða fresti samkv. 2. gr. eins og nú er. Er því augljóst, að hér er um athugaleysi að ræða við afgreiðslu málsins í Nd., og hefur meiri hl. allshn. lagt fram till. á þskj. 666, þar sem gerð er tilraun til þess að færa þetta til þess samræmis, sem ætla mætti að Nd. hefði viljað hafa það.

Þær breyt., sem felast í þessari till. á þskj. 666, eru nánast engar, enda eðlilegt að gera sem minnstar breyt., þar sem lítill tími er eftir til afgreiðslu málsins. Það er látið standa, sem er í 4. gr. frv. um, að skýrslur skuli birtar mánaðarlega, enda hafði allshn. hér haft samráð um það við verðgæzlustjóra og kynnt sér það, að því fylgja engir erfiðleikar, það væri ekkert annað en að taka til birtingar úr skjölum, sem fyrir liggja við hver mánaðamót. Síðan er tekið upp, að á 3 mánaða fresti skuli birta skýrslu um byggingarefni í Rvík og Hafnarfirði og tvisvar á ári útsöluverð á helztu verzlunarstöðum annars staðar á landinu. Þar er tekið upp sjónarmið Nd. Væntir meiri hl. allshn., en það standa 4 nm. að þessari till., að samkomulag náist um þetta við hv. Nd. (Gripið fram í.) Það eru bræddar saman 4. og 2. gr. frv. Mismunurinn á brtt. á þskj. 663 og á brtt. 666 er sá, að í fyrri till. er talað um að birta verð í öllum kaupstöðum landsins. (Gripið fram í.) Já, það er nefnilega það. Það, sem vakti fyrir tillögumanni og meiri hl. n. gat ekki gengið inn á, var að gera þetta dálítið fyrirferðarmeira, en meiri hl. n. taldi, að það væri ofur lítill vafi á því, hvort hægt væri að framkvæma þetta, nema þá að hafa það sem minnst í viðunum, og auk þess vildi n. vera sem næst því, sem Nd. hafði gengið frá frv. Hv. 4. landsk. gerði ágreining út af sínu sjónarmiði, sem er nánast það að láta þetta ná eitthvað víðara, en það er samkv. till. meiri hl.

Þá vil ég nefna till. á þskj. 675 frá einum nm., sem n. gat ekki orðið sammála um, um það, að birting skuli miðuð við vörusendingar, sem tollafgreiddar verða eftir gildistöku laga þessara. Þetta á að verða ákvæði til bráðabirgða. En þar sem hér er um staðfestingu á brbl. að ræða og þessi l. eru raunverulega í gildi, gat n. ekki fallizt á, að till. sem þessi ætti rétt á sér.