16.01.1953
Efri deild: 50. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 987 í B-deild Alþingistíðinda. (1088)

199. mál, almannatryggingar

Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):

Herra forseti. Það má segja varðandi breyt. á almannatryggingalöggjöfinni, að það tíðkist nú hin breiðu spjótin, því að eitt allra síðasta verk Alþ. á s.l. ári, áður en jólaleyfi hófst, var að samþ. breyt. á þessari löggjöf. Nú er hér enn borið fram frv. á þskj. 519 til breyt. á sömu löggjöf. En til allra hluta liggja einhverjar ástæður og eins til þess, að ríkisstj. ber hér fram stjórnarfrv. varðandi þessar breyt.

Eins og hv. alþm. er kunnugt, þá stóð hér viðtækt verkfall um þriggja vikna tíma fyrir áramótin. Ríkisstj. gekk í að reyna að miðla málum þar, svo að samkomulag næðist, og í tillögum, sem ríkisstj. bar fram til lausnar vinnudeilunni og urðu eitt mesta eða stærsta skrefið til þess að leysa þá vinnudeilu, sem þar var um að ræða, voru till. varðandi almannatryggingarnar. Í 5. lið þessara till. ríkisstj., sem voru uppistaða í samkomulagi í vinnudeilunni, segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Fjölskyldubætur verða auknar þannig, að á 1. verðlagssvæði verða greiddar fyrir 2. barn að meðtalinni vísitölu kr. 612.00 og fyrir 3. barn kr. 912.00, miðað við vísitölu 153. Á 2. verðlagssvæði verða bætur greiddar hlutfallslega í samræmi við þetta. Nú eru fjölskyldubætur ekki greiddar fyrr en við 4. barn. — Ekkjur og ógiftar mæður skulu njóta sömu fjölskyldubóta og hjón vegna barna sinna, en þeim eru nú ekki greiddar slíkar bætur.“

Það er þessi liður í till. ríkisstj. varðandi lausn vinnudeilunnar, sem er aðalgrundvöllur þess, að þetta frv. er hér borið fram nú. Annars skal ég geta þess um frv. eins og það hér liggur fyrir á þskj. 519, að inn í frv. eru tekin þau lög, sem samþ. voru hér á þinginu rétt fyrir jólin, og er það samkv. ábendingu skrifstofustjóra Alþ. til þess að auðvelda þetta og færa þau saman í eitt, en vera ekki með að minnsta kosti mörg lagafrv. frá sama Alþ. varðandi sömu l. Þannig eru bæði 1. og 2. gr. í þessu frv. úr þeim l. og sömuleiðis 4. gr. með örlítilli breyt., aðeins afleiðingu af því, sem þá gerðist. En 3. gr. þessa frv. fjallar einmitt um fjölskyldubætur, aukningu á þeim á þeim grundvelli, sem ég hef nú lýst, og þarf ég í raun og veru ekki að hafa meiri grg. fyrir því, en ég hef þegar sagt, ásamt því, sem stendur hér í athugasemdum við frv. Þar er allýtarleg grg. um það, til hvað margra barna þetta mundi taka og hvað þetta muni kosta, eftir því sem hægt er að gera sér grein fyrir því, sem er þó ekki algerlega fyllilega.

Ég lít nú þannig á þetta mál, að auk þess sem þetta var liður í að leysa þá deilu, sem ég hér hef nefnt, þá sé eitt það nauðsynlegasta í okkar tryggingarmálum almennt og okkar afstöðu gagnvart borgurum landsins að styrkja þá, sem ala upp börnin, eða aðstoða þá, sem ala upp börnin. Það er náttúrlega mikið álitamál, hvar eigi að byrja í þessu efni. Þó er það ekkert einsdæmi með okkur Íslendinga, að byrjað sé á fjölskyldubótum við annan krakka, því að það þekkist víðar, að slíkt sé gert. Og ég get sagt það frá mínu sjónarmiði skoðað, að ég tel það vera bót á tryggingalöggjöfinni, að slíkar breyt. eins og þessar séu gerðar, eingöngu út frá því almenna sjónarmiði, að það sé það fólk í þjóðfélaginu, sem helzt verði að taka tillit til og reyna að aðstoða eftir föngum, sem hefur börn á framfæri sínu og elur þau upp fyrir þjóðfélagið. Yfirleitt hefur að undanförnu oft og tíðum verið gerður allt of lítil] munur á aðstöðu þess fólks og einhleyps fólks, sem ekkert leggur til þess að ala upp þjóðina á þennan hátt, og hefur það valdið ýmiss konar misrétti á ýmsan hátt. — Ég vildi láta þetta fylgja, þó að ég viti það og taki það greinilega fram, að þessi breyt. á almannatryggingalöggjöfinni hefði ekki komið fram af hálfu ríkisstj. nema sem liður í þeim samningum, sem urðu fyrir áramótin.

Önnur nýmæli í þessu frv. eru í raun og veru afleiðing af þessu, eins og 5. gr. er, þar sem til þess að mæta þeirri útgjaldaaukningu, sem þetta hefur í för með sér samkv. 3. gr. og áætlað er að muni nema í kringum 14 millj. kr. á ári alls, er gert hér ráð fyrir breyt. á iðgjöldum og framlagi. Það er líka mjög greinilega skýrt hér í athugasemdum við frv., og sé ég því ekki ástæðu til að vera að lesa það hér upp eða fara fleiri orðum um það, þar sem hv. alþm. hafa greinargóða skýrslu um það hér.

Ég sé svo ekki ástæðu til þess að fara fleiri orðum um þetta frv. Ég vil aðeins taka það fram, sem ég hef reyndar gert áður, að ríkisstj. stendur öll að því og það af þeim ástæðum, sem ég hef þegar lýst hér áður. Ég leyfi mér að leggja til, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og til hv. heilbr.- og félmn.