16.01.1953
Efri deild: 50. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 989 í B-deild Alþingistíðinda. (1089)
199. mál, almannatryggingar
Haraldur Guðmundsson:
Herra forseti. Eins og hæstv. forsrh. gat um, þá er hér um mjög veigamiklar breyt. á almannatryggingunum að ræða. Útgjöld trygginganna aukast samkv. þessu milli 15 og 16 millj. kr., og skiptist sú aukning hér um bil eins og ég mun nú greina.
Gert er ráð fyrir því, að viðbót við fjölskyldubæturnar kosti samtals í kringum 121/2 millj. kr., og svarar það til þess, að það þurfi að hækka tekjustofna trygginganna um 15%. Mæðralaunin er gert ráð fyrir að kosti um 11/2 millj. kr., og svarar það til 2% hækkunar á tekjustofnum trygginganna. Grunnhækkanir eða hækkanir á almennum bótum verða því samtals 14 millj. kr., eða rétt í kringum 17% frá því, sem áður var, og þarf því að hækka tekjustofnana sem því svarar. Auk þess er í samningi þeim, sem hæstv. forsrh. gat um, ákveðið, að kaupgjald láglaunafólks skuli greitt með vísitölunni 158 eða 5 stigum hærri, en almennt kaup. Þessi hækkun kemur að sjálfsögðu á allar bætur og nemur þá einnig um 3%, þannig að sú hækkun, sem leiðir af lagasetningu þessari í sambandi við samninginn, nemur um 20% á öll útgjöld stofnunarinnar, og þá hækka að sjálfsögðu tekjurnar alveg tilsvarandi. Til viðbótar þessu kemur svo sú hækkun, sem leiðir af vísitöluhækkuninni frá 1952–53 og nemur 5 stigum, úr 148 upp í 153 stíg, miðað við desembervísitölu. Sú hækkun gefur kringum 4–5%, þannig að heildarhækkunin á útgjöldum Tryggingastofnunarinnar verður eitthvað milli 24 og 25%, eða fast að fjórðungi frá því, sem verið hefur, og af því er hér um bil fimmti hlutinn vegna almennrar vísitöluhækkunar, en hitt er afleiðing af þeim samningum, sem nú hefur verið greint. En því verður ekki neitað, að hér er um mjög verulegar breyt. á almannatryggingalögunum að ræða og verulega víkkun á þeirra starfssviði, og mér þykir rétt að taka það fram, að ef leitað hefði verið til tryggingaráðs og spurt, hvernig það teldi heppilegast að ráðstafa 14–15 millj. kr. tekjuauka, þá hygg ég ekki, að till. tryggingaráðs hefðu orðið í fullu samræmi við það, sem lagt er til í þessu frv.
Ég tel rétt að gefa einnig örstutt yfirlit yfir, hvað fæst fyrir þetta fé, sem hér er um að ræða, og skal viðurkenna það, sem hæstv. forsrh. sagði hér áðan, að það er alveg rétt, að með þessum breyt., sem gerðar eru, er fyrst og fremst litið á hag og aðstöðu barnanna, sem upp eiga að vaxa, og er það að sjálfsögðu alveg réttmætt. Samkv. frv., ef það verður að l., taka viðbótarfjölskyldubæturnar til um 19 þús. barna, sem ekki hafa fengið barnalífeyri áður. Þar af eru um 6 þús. börn, sem eru í fjölskyldum með 4 eða fleiri börn í fjölskyldu og hafa því notið nokkurra fjölskyldubóta áður, en hjá þeim öllum bætast við 2 börn í hverri fjölskyldu. En við bætast svo milli 8 og 9 þús. fjölskyldur með milli 13 og 15 þús. börn, sem engra fjölskyldubóta hafa notið til þessa. Í viðbót við þetta er svo gert ráð fyrir, að mæðralaun verði greidd ekkjum og ógiftum mæðrum, sem hafa fleiri en 1 barn á framfæri og nú njóta barnalifeyris. Barnalífeyririnn er nú á 1. verðlagssvæði, miðað við vísitölu 150, — það er betra að reikna með þeirri tölu, — 3..600 kr. á ári. Samkv. frv. á nú að greiða mæðralaun eins og þar segir í viðbót við þennan barnalífeyri, og nema þá mæðralaunin, eins og segir á bls. 4 í grg. frv., með 2. barni á 1. verðlagssvæði 620 kr., ef börnin eru þrjú 1.550 kr. og ef börnin eru fjögur 3.410 kr. í viðbót við þann barnalífeyri, sem greiddur er. Þetta svarar til þess, að ekkja eða ógift móðir með 4 börn fær samtals með þeim greitt í mæðralaun og barnalífeyri rétt í kringum 18 þús. kr., og er það vissulega ekki meira en eðlilegt er, en með hverju barni, sem umfram er, eru svo greiddar 5.400 kr., miðað við vísitölu 150, þannig að ekkja, sem hefði 7 börn á framfæri, fengi með þeim rétt í kringum 35 þús. kr. auk þeirra bóta, sem hún sjálf gæti notið, og ef um öryrkjahjón væri að ræða, mundi lífeyrir til þeirra nema að minnsta kosti 10–11 þús. kr., þannig að tekjur til styrktar heimilisins þar yrðu eitthvað yfir 46 þús. kr.
Nú má í sjálfu sér segja, að það sé rétt, sem hæstv. forsrh. drap á áðan, að leggja beri hina mestu áherzlu á að tryggja líf barnanna sem allra bezt, og því er ég fullkomlega sammála. En ekki fæ ég neitað því, að það er nokkurt ósamræmi í því að minni hyggju og frá trygginganna sjónarmiði séð, að barnalífeyrir og mæðralaun til samans skuli nema um 5.500 kr. á barn, meðan lífeyrir til aldraðs fólks er ekki hærri en kringum 6.300 kr. Mismunurinn, um 12%, eða um 800 kr., er óeðlilega lítill að minni hyggju.
Það er alveg rétt, sem hæstv. ráðh. sagði, að hjá ýmsum þjóðum er byrjað að greiða fjölskyldubætur fyrr, en ætlað er með þessu frv., t.d. hjá Svíum. Þar er byrjað að greiða með 1. barni strax og svo með hverju barni í fjölskyldunni. Greiðslan nemur þar — eða nam siðast þegar ég víssi á s.l. ári 260 sænskum kr. á ári, eða rétt um 820 ísl. kr., og var jöfn með öllum börnum frá því fyrsta og hversu mörg sem börnin voru. Hér var aftur á móti sú leið farin á sínum tíma að byrja fjölskyldubæturnar síðar, en greiða aftur hærri fjölskyldubætur á barn.
Mér þykir rétt að gera grein fyrir þessu. En þrátt fyrir þessar athugasemdir mínar verð ég að telja, að með þessu sé mikil bót gerð á tryggingalögunum, því að í sjálfu sér fyrir almenning í landinu verður mikill fengur að þessu, þótt, eins og ég áðan sagði, ýmislegt annað mundi að dómi tryggingaráðs og Tryggingastofnunarinnar án efa hafa verið talið meira aðkallandi, ekki sízt með tilliti til þess, að einhver talsverður hluti af þessum bótum, sem um er að ræða, rennur til fólks, sem ekki hefur brýna nauðsyn til þeirra, vegna þess að fjölskyldubæturnar eru greiddar að fullu án tillits til efnahags eða tekna. Hins vegar er enn þá, eins og hæstv. forsrh. er kunnugt um, ellilífeyrir og örorkulífeyrir takmarkaður þannig, að hann minnkar eða fellur niður, þegar ákveðnu tekjumarki er náð.
Annað atriði er það, sem ég get ekki látið vera að benda á í þessu sambandi, og það er það, að vafasamt er, þegar tryggingalögunum er breytt jafnmikið eins og nú er gert, að eðlilegt sé að halda sömu reglum og gilda í l. nú um niðurjöfnun kostnaðarins á þá aðila, sem bera hann. En samkv. þessu frv. er gert ráð fyrir því, að tekjurnar séu fengnar á sama hátt eins og verið hefur. Af því leiðir t.d., að iðgjald kvænts karlmanns á 1. verðlagssvæði, t.d. hér í Reykjavík, hækkar um 142 kr. frá því, sem það var á s.l. ári, eða rétt í kringum 24.5%. Af þessu eru um 122 kr. vegna þessa frv. eða samningsins, en 20 króna liður vegna almennrar vísitöluhækkunar. Þegar þess er gætt, að iðgjöldin eru nú lögð á alla menn á aldrinum 16-66 ára og að tekjur þeirra hljóta að sjálfsögðu að vera mjög mismunandi og minnst væntanlega hjá yngstu og elztu aldursflokkunum, þá er það augljóst, að það er ákaflega örðugt að halda óbreyttri ákvörðun iðgjalda án þess að láta hækkunina koma jafnt á iðgjöldin öll.
Enn fremur verður ekki komizt hjá að viðurkenna þá staðreynd, að seinni árin hefur gengið ákaflega örðuglega í mörgum tilfellum að innheimta framlag sveitarfélaganna, einkum ýmissa kaupstaðanna, bæjarfélaganna. Það var á síðasta ári innan við 16 millj. kr., en hækkar nú upp í 19.9 millj. kr. Ég vil ekki leyna því, að ég ber nokkurn kviðboga fyrir, ef ekki eru gerðar sérstakar ráðstafanir, að það valdi sérstökum örðugleikum að innheimta þessa hækkun á framlögum sveitarfélaganna. Ég held því, að það hefði verið æskilegt, um leið og þessi breyt. var gerð, að ekki hefði verið ákveðið, eins og mér skilst að hæstv. ríkisstj. hafi gert, að halda fast við þær reglur um tekjuöflun, sem eru gildandi í lögum. Grundvöllurinn breytist samkv. þessum nýju bótaákvæðum, og var því eðlilegt og nauðsynlegt að athuga jafnframt um tekjuöflun. Ég skal að vísu viðurkenna það, að þær áætlanir, sem hér er byggt á, eru harla lauslegar, því að engar skýrslur liggja fyrir um fjölda barna í þeim fjölskyldum, þar sem 2 og 3 börn eru á framfæri. Því er ekki séð með vissu, hver kostnaðurinn verður. Af því og reyndar öðrum ákvæðum laganna leiðir það, að fyrir árslok 1954 þarf að fara fram heildarendurskoðun á þessari löggjöf allri, eins og að vísu er bent til hér í grg. Verða þá að sjálfsögðu þau atriði, sem ég hef drepið hér á, tekin til athugunar, og ef til vill reynt að færa þau meira til samræmis heldur en tekizt hefur að gera að þessu sinni. — því má kannske skjóta inn i, hæstv. forseli, að á bls. 4 í 3. línu að neðan, í grg. um 5. gr., stendur, að framlag ríkisins verði 33.4 millj., en á að vera 32.4 millj. Það er prentvilla. Það mætti kannske bara leiðrétta það í skjalaparti. (Gripið fram í af forseta.)
Loks vil ég taka það fram, að það er alveg bersýnilegt, að útgjöld vegna mæðralauna og fjölskyldubóta samkv. þessu frv. hljóta mjög að aukast á næstu árum. Fæðingum hefur fjölgað mjög núna seinustu 6–7 árin og eru nú komnar nokkuð yfir 4 þús. á ári. Fjölgun barna á aldrinum innan 16 ára er talið líklegt að muni verða um 1.500 á ári núna næstu árin. Og þar sem 3 börn eða fleiri eru fyrir í fjölskyldu, kemur sú fjölgun öll í hæsta flokk fjölskyldubóta, þ.e.a.s. gömlu ákvæðin, 1.200 kr. á 1. verðlagssvæði. Það má því gera ráð fyrir, að þessi útgjaldaliður stofnunarinnar hljóti að aukast talsvert mikið á næstu árum, þó að ekki séu neinar skýrslur til um það, hvernig þessi aukning skiptist á fjölskyldurnar eftir því, hvað mörg börn eru í fjölskyldunni.
Mér þótti rétt að taka þetta fram nú þegar til skýringar frv., en vil jafnframt undirstrika það, að þrátt fyrir það þó að ég telji, að aðrar breyt. hefðu kannske kallað meira að heldur en þessar, þá tel ég, að með þessu sé löggjöfin mikið bætt, svið trygginganna aukið og í mörgum tilfellum þar, sem nauðsyn er fyrir hendi, og mun því greiða frv. þessu atkv. Mér hefur skilizt, að efni frv. sé fastmælum bundið milli hæstv. ríkisstj. og atvinnurekenda annars vegar og verkalýðssamtakanna hins vegar, þannig að þýðingarlaust sé að bera fram brtt., og mun því ekki gera það að svo stöddu a.m.k. Ég vil því fyrir mína hönd og Alþfl. mæla með því, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir, ef ekki liggja fyrir frá þeim aðilum, sem samninginn hafa gert, óskir um einhverjar breyt. þar á. Þó skal ég geta þess, að það er eitt atriði hér í sambandi við niðurlag síðustu málsgr. 3. gr., sem ég mun leyfa mér að ræða við þá n. um, sem fær málið til meðferðar, og ef til vill er ástæða til að athuga nánar en gert hefur verið. — Ég mun sem sagt styðja að því, að þetta frv. nái fram að ganga, og mæla með því, að það verði samþykkt.