31.10.1952
Efri deild: 19. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1045 í B-deild Alþingistíðinda. (1148)
18. mál, bæjanöfn o. fl.
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Þó að frv. komi væntanlega í menntmn. og ég eigi þar sæti, þá vil ég þó núna strax láta í ljós skoðun mína á þessu máli, til þess að menn geti frekar áttað síg á því, á meðan málið er að vefjast fyrir deildinni.
Ég tel ákaflega misráðið að vera að leika sér að því eða létta mönnum að leika sér að því að skipta um gömul bæjanöfn. Mörg af okkar bæjanöfnum eru til komin fyrir sögulega atburði, sem eru tengdir við sögu viðkomandi jarðar, og þó að einhver maður komi á þá jörð, sem vilji fara að kenna jörðina við sjálfan sig eða eitthvað annað, þyki nafnið ekki veglegt, eins og þegar Lambhúsnafni er breytt í Ásgarð eða þegar Hrappsstöðum er breytt í Hlíð o.s.frv. — það er fjöldi af slíkum dæmum, — þá tel ég, að það sé í alla staði óheppilegt og löggjafinn eigi frekar að reyna að hindra, að slíkar breytingar eigi sér stað, heldur en að ýta undir þær með því að létta mönnum að fá þær. Allt öðru máli gegnir með nýbýlin. Þegar ný jörð verður einhvers staðar til, þá verður að koma nafn á hana, og að létta mönnum að fá það nafn og koma því sæmilega fyrir, því mun ég vera með, en ég vil þrengja möguleikana, sem núna eru fyrir því, að menn séu að hringla til með nöfn á gömlum jörðum. Það eru til jarðir í landinu, sem er tvisvar sinnum búið að breyta um nafn á. Hvenær kemur svo þriðji maðurinn og vill búa til enn þá eitt nafn á hana o.s.frv. og þannig að endalausu hringla með nöfn á gömlum jörðum, sem eru búnar að vera í byggingu í fleiri hundruð ár undir þeim ákveðnu nöfnum, sem þær hafa gengið undir fram á allra síðustu ár. Þess vegna er ég alveg á móti því að fara að sleppa lausu öllu gjaldi og kvöðum við þessar breytingar á gömlu nöfnunum, þó að ég geti hins vegar vel fellt mig við það með nýbýlin. Það horfir allt öðruvísi við gagnvart þeim.
En í þessu sambandi langaði mig til, úr því að við höfum þá ánægju að hafa ráðh. hjá okkur og hann sýnir d. þann heiður þar að auki að hafa framsögu í málinu, sem er óvenjulegt um stjórnarmál, sem koma frá Nd., þá vildi ég gjarnan mega spyrja hann að því, hvað hann geri og hvað örnefnanefndin geri við býlin, sem ekki taka upp nöfn, sem n. vill gefa þeim. Nú skal ég ekki nefna einstök dæmi með nafni í þetta sinn, en ég skal samt segja frá því, að fyrir svona nærri 20 árum var stofnað nýbýli, — ja, ég get sagt stofnuð nýbýli, því að ég veit af einum þremur, sem dæmið getur átt við, — og maðurinn — við skulum halda okkur við eitt þeirra maðurinn, sem stofnaði eitt nýbýlið, óskaði eftir að fá ákveðið nafn á býlið. Örnefnanefndin neitaði því. Hann fór að kalla býlið það, sem hann vildi. Svo kom nú að því, að hann þurfti að fá lán, og þá þurfti helzt að búa til löglegt nafn á býlið. Það hefur ekki fengizt enn. Lánið er fengið með fyrirhöfn og krókaleiðum, en án þess að enn sé komið löglegt nafn á býlið. Þannig er býlið komið upp og er eitt með betri býlum í þeirri sveit nú orðið, sem það stendur í, raflýst o.s.frv., allt saman í bezta lagi. Hvað gera hæstv. ráðh. og örnefnanefndin í þessu tilfelli? Nú er þarna ný jörð, byggð úr jörð, sem ríkið á, þriðjungur úr henni, byggð með leyfi hæstv. ríkisstj. og allra aðila, leyft að byrja með nýbýli, en maðurinn fær ekki það nafn á það, sem hann vill. Hann er ekki sóttur til neinna sekta, þó að hann noti það nafn, er hann vill gefa henni. Það er skrifað utan á bréf til hans alls staðar að. Það er ekki komið inn í fasteignamat enn þá, en það er komið inn í ýmsar aðrar opinberar bækur, t.d. Bæjatal á Íslandi og ýmsar aðrar opinberar bækur er það komið inn í, og svo er með ýmis af þessum nöfnum á nýbýlum, sem ekki hafa verið viðurkennd. Það er orðið svo fast í málvenjunni þar heima í héraði, að það er aldrei borið við annað en kalla það þessu nafni, sem maðurinn hefur tekið á býlið, og alveg núna nýlega er enn þá búið að biðja um endurnýjun á, að nafnið sé lögfest, viðurkennt af nefndinni, en það hefur ekki fengizt. Í þessum tilfellum finnst mér að þurfi nú eitthvað (Gripið fram í; Mér þætti fróðlegt að fá að heyra nafnið til að geta dæmt um, hvort ástæðan til þess, að það fékkst ekki viðurkennt, er á rökum reist.) Nafnið er tekið upp úr fornsögum eftir stúlkunni, sem fyrst byggði á jörðinni og hét Droplaug, og kallað Droplaugarstaðir. Ég gæti nefnt fleiri dæmi, ef ykkur langar til, frá öðrum, sem eins stendur á um, hafa ekki fengið staðfest nöfn á býlum sínum. (Gripið fram í.) Já, og það er ekki gert, það er ekki til neitt í l. um það, hvað eigi að gera í svona tilfellum. Það er bara bannað að taka upp nöfn nema með leyfi nefndarinnar, en engin refsiákvæði sett á nokkurn hátt, þó að menn geri það.
Nú hefði mér fundizt eðlilegt, úr því að ráðh. var með þetta nýja frv. hér, sem fyrir okkur liggur, að taka þá t.d. til athugunar þetta atriði, hvað á að gera, þegar menn óhlýðnast lögunum, og fleira, sem virðist vanta í frv. að vísu, sem ég skal nú ekki fara nánar út í. En það var þetta, sem ég vildi sérstaklega leggja áherzlu á, til þess að menn hugsuðu um: Er það rétt stefna, sem er í þessu frv., að létta mönnum að breyta nöfnum á gömlum býlum? — Ég vil hindra menn í að gera það. Ég vil ekki, nema undir alveg sérstökum kringumstæðum, leyfa mönnum að gera það og láta þá borga mikið fyrir það. Ég vil ekki láta gömlu nöfnin á okkar býlum hverfa um land allt og einhver skrípanöfn koma í staðinn, sem viðkomandi menn og nefndin taka upp.