31.10.1952
Efri deild: 19. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1046 í B-deild Alþingistíðinda. (1149)
18. mál, bæjanöfn o. fl.
Viðskmrh. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. Hv. þm. N-M. spurði mig um það, hvað nafnanefndin eða ég gerði undir þeim kringumstæðum, að n. synjaði mönnum um það nafn, sem þeir vildu, en þeir notuðu það þrátt fyrir það, ef ég skildi rétt það, sem hann fór með. Ég get því miður ekki svarað hv. þm., vegna þess að þetta mál hefur alls ekki til mín komið og ég hef ekkert um það heyrt, og yfirleitt verð ég að segja það, að ég heyri ákaflega lítið um breytingar á bæjanöfnum. Þau mál koma sjaldan til mín. En ég get látið athuga þetta mál og gefið upplýsingar við seinni umr. málsins hér í d. — Ég er honum sammála um það, að tíðar nafnbreytingar á jörðum eru ekki æskilegar. Það getur valdið ruglingi á ýmsan hátt og þá ekki sízt, ef breytt er nöfnum á jörðum, sem haldið hafa nafni sínu frá landnámstíð. En ég álít, að ekki eigi að gera mönnum torvelt um nafnbreytingu með því að leggja á hana háan skatt. Ég álít það óeðlilegt að láta menn borga skatt af því, að þeir fá nafn á nýbýli eða breyta nafni, sem hefur í mannsaldra verið talið skrípi. En því er ekki ætíð til að dreifa. Menn breyta nöfnum á jörðum sínum af ýmsum ástæðum. Ég álít þess vegna, ef farið væri út í það að gera mönnum erfitt fyrir eða jafnvel koma í veg fyrir, að tíðar breytingar séu gerðar á bæjanöfnum, þá yrði að gera það á annan hátt. Það yrði þá að setja eitthvert ákvæði inn í lögin, er setti skorður við slíku, eða gefa nafnanefndinni víðtækara vald, en hún nú hefur. Ég skal vera reiðubúinn til að ræða um slíkt, ef hv. n., sem þetta frv. fer til, vildi taka það frekar til athugunar í sambandi við þessa ábendingu hv. þm.