14.10.1952
Efri deild: 8. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 29 í B-deild Alþingistíðinda. (12)
19. mál, tekjuöflun til íþróttasjóðs
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég ætlaði mér nú ekki að ræða um þetta mál, en neyðist til þess vegna þess misskilnings, sem kom fram hjá hv. frsm. Hann lýsti því yfir, að þetta atriði, sem hv. 4. þm. Reykv. minntist á, hefði lítið eða ekkert komið til greina eða til umr. í n. En þetta er byggt á hreinum misskilningi. Ég lagði fyrir n. samkv. ósk hv. 4. þm. Reykv. alveg ákveðna fyrirspurn um það, hvort n. vilji taka þetta upp í frv., og minnti á það, að fyrir lægi hjá mér það frv., sem landlæknir hefði sent heilbr.- og félmn. á síðasta ári, og það væri til athugunar fyrir n., ef hún vildi sinna þessu máli. Það var þá skoðun meiri hl. n., að það væri ekki rétt að blanda því máli inn í þetta frv., m.a. vegna þess, að þessar breyt., sem hér eru gerðar á lögunum frá 1940, eru eingöngu um það, hvort það eigi að gefa skattfrelsi á vinningunum í happdrættinu, en ekkert um það, hvernig eigi að skipta eða hvort það eigi að skipta þeim ágóða, sem kunni að verða. Og það þótti ekki rétt að blanda því saman við þetta mál. Það er hins vegar alveg opið að gera breyt. við þessa löggjöf, ef það þykir eðlilegt, eða setja fram nýtt frv. um, hvernig skipta skuli þeim ágóða, sem væntanlega fæst af þessari starfsemi. En meiri hl. n. var alveg ákveðinn í að blanda því ekki saman við afgreiðslu þessa máls. — Þetta þykir mér rétt að láta koma fram vegna þess, sem hv. frsm. gat um þetta mál, og veit ég, að það muni vera af sérstakri gleymsku, en ekki af því, að honum sé ekki kunnugt um, hvernig var farið með málið í n.