30.01.1953
Neðri deild: 60. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1069 í B-deild Alþingistíðinda. (1208)
164. mál, ríkisborgararéttur
Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):
Herra forseti. Allshn. þessarar hv. d. hefur orðið ásátt um að leggja til við hv. d., að þetta frv. verði samþ. með þeim breyt., sem n. ber hér fram og eru á þskj. 637. Í nál. er gerð nokkur grein fyrir afgreiðslu málsins, hvernig hún varð í Ed., og þó að um sum þau atriði, sem breytt var í frv. eins og það barst þeirri hv. d., sé annað lagt til grundvallar en tíðkazt hefur af hálfu allshn. Nd., þá vildi n. þó ekki fara að gera breyt. á frv., gera till. um að fella nöfn í burtu af frv. eins og það barst frá d., því að þá kynni að fara svo, að málinu yrði stefnt í hættu og það næði ekki afgreiðslu á þessu þingi. Nær undantekningarlaust hefur það verið regla allshn. Nd. með afgreiðslu á þessu máli, að þeir útlendingar, sem sótt hafa um ríkisborgararétt og n. hefur fallizt á, að yrði hann veittur, hefðu verið búsettir hér í 10 ár. Nú eru að vísu nokkrar undantekningar frá því, að þessi regla hafi verið alger hér í hv. d., því að borið hefur það við, að samþ. hefur verið af hálfu d. að veita mönnum ríkisborgararétt, þó að eitthvað skorti á um þetta skilyrði. En fyrir þessar sakir, hvað áliðið er orðið þingtímans og hvað hæpið mundi vera um afgreiðslu málsins, ef n. færi að gera till. um að fella í burtu suma þá, sem búið er að samþ. í Ed., lætur n. það hlutlaust. Hins vegar, eins og vikið er að í nál., hefur Ed. láðst að gera till. um konur þriggja manna, að þær öðluðust ríkisborgararéttinn um leið og mönnum þeirra er hann veittur, og brtt. n. lýtur m.a. að því atriði, að það sé lagt til. — Ég sé svo ekki ástæðu til þess að fjölyrða um þetta atriði meira.
Þá hefur n. og leyft sér að bera fram brtt., sem er undir 2. lið rómverskum á þessu sama þskj„ um mannanöfnin, að haldið verði þeirri reglu, sem tekin var hér upp í fyrra, að þeir, er vilja hljóta hinn íslenzka ríkisborgararétt, verði að taka sér íslenzk heiti. Það er ekkert vafamál, að ef þetta verður látið gersamlega hirðulaust um nafngiftir, þá geti það orðið, þegar stundir líða, til að stórspilla íslenzkri tungu, og þegar lengra liður frá og því fólki fjölgar, sem hefur þessi erlendu heiti og ættarnöfn, þá getur málinu orðið stórspillt. Og það virðist ekki vera nein ástæða til þess að vera þar ekki á verði, heldur þvert á móti. Ég get tekið undir þau ummæli hæstv. menntmrh., sem hann viðhafði bæði í fyrra og nú, að Alþ. á að vera á verði um þessa hluti, það er því skyldast. N. leggur þess vegna fram samhljóða till. og samþ. var við afgreiðslu slíks máls sem þessa á þingi í fyrra, að þau skilyrði verði sett inn í þessi l., að þeir, sem sækja um ríkisborgararéttinn, fái hann því aðeins, að þeir taki sér íslenzkt nafn.
Þá voru nokkrar umsóknir, sem ekki lágu nógu ljóst fyrir hjá n., þegar hún afgreiddi málið, og hún hugsaði sér að taka til betri athugunar á milli 2. og 3. umr.
Ég sé, að nokkrir hv. þm. hafa borið hér fram brtt. Hv. þm. A-Húnv. og hv. þm. N-Ísf. flytja brtt. um að veita útlendum mönnum íslenzkan ríkisborgararétt. Hv. þm. A-Húnv. er þarna með einn mann, og hv. þm. N-Ísf. vill bæta inn á frv. tveim mönnum. Ég ætlaði nú áður en þessi umr. byrjaði að líta á skjölin, sem þessum umsóknum fylgja, en þau voru þá ekki við höndina á skrifstofu þingsins, en ég man það samt sem áður, frá því að við fórum yfir þessar umsóknir, að eitthvað skorti á um, að þeir hefðu þann rétt, sem hefur hjá allshn. þessarar hv. d. verið lagður til grundvallar langvenjulegast. En vera má, að hliðstæður megi engu að síður finna fyrir því, að menn með svipuð skilyrði hafi verið settir inn annaðhvort í Ed. eða hér á þingi áður af hv. þm. - Ég ætla nú ekki að fjölyrða um þessar till. Hv. flm. þeirra gera vafalaust frekari grein fyrir þessu. Og ég ætla þá að bíða með það, þar til ég hef hlustað á þeirra mál.
Þá hefur hv. 3. landsk. þm. borið hér fram brtt. viðvíkjandi nöfnum þeirra útlendinga, sem vilja fá íslenzkan ríkisborgararétt. Ég man nú eftir hans ummælum frá fyrri umr. málsins um þetta efni, en vera má, að hann hafi nú enn frekari ástæður fram að færa fyrir því, að þessum skilyrðum sé fullnægt, sem hann setur fram, og ég ætla þá að bíða átekta um það og gera ekki hans till. að umtalsefni fyrr en ég hef heyrt hans rökstuðning.