30.01.1953
Neðri deild: 60. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1076 í B-deild Alþingistíðinda. (1212)

164. mál, ríkisborgararéttur

Viðskmrh. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Hv. 3. landsk. beitti mikilli mælsku fyrir málstað hinna erlendu fjölskyldunafna, en minni mælsku fyrir þeirri hefð, sem hér hefur ríkt frá landnámstíð um íslenzk mannanöfn, og fyrir því, sem segir í l. um mannanöfn, að þau skuli háð lögum íslenzkrar tungu. Mér þykir mjög vænt um að sjá, að hv. allshn. vill halda fast við þá stefnu, sem hún markaði á síðasta þingi um það, að nýir ríkisborgarar skuli nefnast íslenzkum nöfnum. Ég er henni alveg sammála um það, að ekki sé heppilegt að hafa neitt millispor í þessu efni, eins og till. hv. 3. landsk. gerir ráð fyrir. Till. hans er engin lausn á málinu. Þó að hann hugsi sér, að hin erlendu nöfn muni deyja út með þeim mönnum, sem fá ríkisborgararéttinn, þá er ég a.m.k. einn af þeim, sem ekki trúa á, að svo muni verða, heldur að þessi nöfn muni verða hér við líði um aldur og ævi og niðjarnir kenna sig til hins erlenda nafns þrátt fyrir það, sem hv. þm. ætlast til um breytingu á fornöfnum þessara manna.

Hv. þm. minntist á það, að í l. um mannanöfn stendur, að „ekki mega menn bera önnur nöfn en þau, sem rétt eru að lögum íslenzkrar tungu“. Þetta hlýtur að eiga jafnt við um útlendinga og Íslendinga. Ég sé ekki annað en fyrst og fremst væri nú verið að brjóta l., ef alls konar fáránlegum erlendum nöfnum væri heimilað að taka sér stað í málinu. Þar að auki væri þeim gefinn með þessu meiri réttur, en Íslendingum sjálfum, eins og ég tók fram við fyrri umr. málsins. Ég er sannfærður um það, að verði þessi till. hv. þm. samþ., þá yrði hún til þess að bjóða heim flóði erlendra fjölskyldunafna hingað, sem mundu svo festast í málinu um aldur og ævi. Ég vík ekki frá því, að auk þeirrar hættu, sem íslenzku máli og íslenzku þjóðerni stafar af því að hleypa þessum íslenzku fjölskyldunöfnum inn í málið, þá er útlendingunum um leið veittur meiri réttur, en Íslendingum sjálfum. — Vona ég, að hv. þm. snúist gegn þessari brtt. hv. 3. landsk.