02.02.1953
Neðri deild: 62. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1086 í B-deild Alþingistíðinda. (1218)
164. mál, ríkisborgararéttur
Jón Pálmason:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð í tilefni af brtt. minni á þskj. 681. Hv. frsm. n. tók það fram við fyrri hluta þessarar umr., að það hefði komið í ljós varðandi þann mann, sem ég fer fram á að bæta hér inn á frv., að hann hefði ekki að fullu fullnægt skilyrðunum, sem sett eru. Er það að vísu rétt, að svo er ekki alveg bókstaflega út í æsar. Þessi maður er búinn að vera búsettur hér í Reykjavík í 12 ár samfleytt, en hefur þó sennilega, vegna þess að hann var í norska sjóhernum fyrstu 4 árin, talið sig þau ár hafa heimilisfang í Noregi. En í fyrra var samþ. ríkisborgararéttur handa a.m.k. 6 mönnum, sem eins stóð á um. Og til sönnunar því, hvað þessi maður er búinn að vera hér ákveðið,er það, að hann hefur verið giftur íslenzkri konu á tíunda ár, og þess vegna virðist það vera mikill réttur, sem þessi maður hefur, og a.m.k. fullkomlega eins mikill réttur og sumir þeir, sem þegar hafa fengið ríkisborgararétt.
Annars er auðvitað sjálfsagt að verða við þeirri ósk, sem hv. frsm. fór fram á, að geyma atkvgr. um þessa till. til 3. umr., ef hv. n. vill taka hana til athugunar, sem hv. frsm. hafði góð orð um, og ég vænti, að n. geti fallizt á að mæla með henni.
Að öðru leyti skal ég ekki fjölyrða um þetta mál, en vil þó víkja því til hv. n. og hæstv. forseta, að það er mikil nauðsyn á því, að mínu áliti, að láta þetta mál ekki daga uppi, enda þó að hér séu miklar deilur um þessa nafnbreytingatill.