02.02.1953
Neðri deild: 62. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1087 í B-deild Alþingistíðinda. (1221)

164. mál, ríkisborgararéttur

Atvmrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Ég tel þessa brtt. til bóta og mun því samþ. hana, en tel að öðru leyti, að þessar till. hæstv. menntmrh., þessi skæða barátta hans til að vanda málið og hreinleika íslenzks ætternis sé nú allbrosleg frá upphafi til enda. Mér hefur gengið ágætlega að vera Íslendingur og heita Thors, og ég vona, að ég sé eins góður Íslendingur og hann, þótt hann sé Ólafsson. En sem sagt, ég greiði atkvæði þessari brtt., af því að ég tel hana til bóta, þótt ég telji ekki, að hún nái nógu langt.