04.02.1953
Efri deild: 67. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1096 í B-deild Alþingistíðinda. (1241)

164. mál, ríkisborgararéttur

Forseti (BSt):

Óskað hefur verið úrskurðar um, hvort brtt. á þskj. 757 megi koma undir atkvæði, þar sem við 3. umr. málsins var borin fram og felld till. um að veita þeim mönnum ríkisborgararétt, er till. á þskj. 757 fjallar um. Í 32. gr. þingskapa segir, að brtt. um atriði, sem búið er að fella í deild, megi ekki bera upp aftur í sömu deild og á sama þingi. Við 3. umr. málsins var till. á þskj. 458 um þá tvo menn, sem hér um ræðir, borin upp og felld ásamt till. um að veita tveim öðrum mönnum ríkisborgararétt, m.ö.o. till. um fjóra menn borin upp í einu lagi. Í fyrstunni var sú till. um 6 menn, en þar sem var óskað sérstakrar atkvgr. um nr. 2 á þeirri till., var fyrst borinn upp 1. liður till. og síðan 2. liður og síðan í einu lagi 3.–6. liður.

Þar sem telja verður, að það geti haft áhrif á atkvgr., hvort tveim mönnum er veittur ríkisborgararéttur eða fjórum, verður að álíta, að till. á þskj. 757 sé ekki — eins og hér stendur á sama atriði og áður er búið að fella í d. Úrskurða ég því, að hún skuli koma til atkvæða.