23.10.1952
Efri deild: 13. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1113 í B-deild Alþingistíðinda. (1263)

89. mál, Samband íslenskra berklasjúklinga

Flm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Snemma á árinu 1949 voru samþ. hér á Alþ. lög um að veita sérstaka heimild til Sambands íslenzkra berklasjúklinga til að starfrækja vöruhappdrætti. Happdrættið tók til starfa á árinu 1949, og ágóði af því það ár varð rúmlega 138 þús. kr. Flestir vinningarnir voru allsmáir, en stærstu vinningarnir voru þá 25 þús. kr. Dregið var þá sex sinnum í happdrættinu samkv. fyrirmælum laganna. Árið 1950 varð ágóðinn rúmlega 428 þús. En 1951 lækkar hann niður í 340 þús., og aðalorsökin til þess var talin sú, að vinningarnir væru ekki nægilega háir, svo að áhugi manna væri ekki eins mikill til þess að keppa í happdrættinu. Einnig var álitið, að það væri til hagsbóta fyrir happdrættið, ef draga mætti 12 sinnum á ári í stað 6 sinnum eins og lögin ákveða. Þá var tekið upp það fyrirkomulag að hækka vinningana. Voru stærstu vinningarnir hækkaðir upp í 75 þús. kr., og jókst við þetta allverulega salan fyrst um sinn, en síðar kom fram, að eftirspurnin minnkaði vegna þess, að ekki var ákveðið í lögum, að vinningarnir í happdrættinu skyldu vera undanþegnir opinberum gjöldum, eins og ákveðið er um vinninga í öðru happdrætti. Ágóði af vöruhappdrættinu á árunum 1949–1951 hefur samtals verið um 1.100 þús. kr. Og vinningar, sem greiddir hafa verið út til þeirra, sem keppt hafa á þessum tveimur s.l. árum, hafa verið 830 þús. Öllu þessu fé, rúmlega 1 millj. kr., hefur verið varið til þess að standa að nokkru leyti undir kostnaði sem samfara er byggingarframkvæmdum að Reykjalundi, enda var það sett að skilyrði í sambandi við happdrættið, að allur ágóði skyldi notaður til þeirra framkvæmda. Í þær byggingar, sem þar hafa nú verið reistar, hafa verið greiddar alls rúmar 10 millj. kr., og mun ríkissjóður hafa látið sem beinan styrk tæpar 2 millj. kr. Ef fylgja ætti fyrirmælum, sem gilda um framlag til sjúkrahúsa, er þetta tæplega helmingur af því, sem ríkissjóður ætti að leggja fram.

1. gr. þessa frv. fer fram á, að í stað þess að skipta þessu í 6 flokka á ári hverju, eins og nú er tekið fram í lögunum, þá skuli þessu skipt í 12 flokka og dregið verði fyrir hvern flokk 5. dag hvers mánaðar í stað annars hvers mánaðar, eins og nú er í lögunum. Aðrar breyt. eru ekki gerðar á 1. gr. Hlutatölunni er haldið óbreyttri, 50 þúsund, eins og nú er í lögunum.

Í 2. gr. eru ekki heldur neinar breyt., nema að vinningar skuli vera að verðmæti samtals 40% af iðgjöldunum, alveg eins og nú er, en samantaldir í öllum 12 flokkunum í stað 6, eins og nú stendur í lögunum. Það er í raun og veru afleiðing af þeirri breyt., sem óskað er að gerð verði á 1. gr. frv.

Hins vegar er 3. gr. nýmæli, þ.e. að vinningar í vöruhappdrættinu fyrir S.Í.B.S. skuli undanþegnir hvers konar opinberum gjöldum, öðrum en eignarskatti, á því ári, sem þeir falla til útborgunar. Þetta er nýmæli, en er í samræmi við það, sem hefur verið lögfest um önnur happdrætti í landinu og nú nýlega samþ. hér í þessari hv. d. í sambandi við happdrætti, sem íþróttafélögunum er heimilað.

Ég þarf ekki að fara mörgum orðum hér um starfsemi S.Í.B.S. Þjóðinni er þegar kunnugt um það mikla átak, sem þessi félagsskapur hefur beitt sér fyrir og hefur gert í heilbrigðismálunum. Þessi hópur manna, sem gengur ekki heill til skógar, hefur byggt þetta upp með því að vinna sem mest sjálfur að þessari starfsemi. Hefur hann notið ákaflega mikillar samúðar frá allri þjóðinni og frá hæstv. Alþ., og hann væntir þess einnig hér nú, að honum sé sýnd sú aðstoð og sú velvild að samþ. það frv., sem hér liggur fyrir. Ég veit líka, að hv. alþm. er kunnugt um, hversu þessi starfsemi hefur vakið geysilega athygli erlendis og að allt þeirra verk hefur miðað til blessunar fyrir þá menn, sem njóta þess, og hefur ekki mætt, sem betur fer, neinni gagnrýni, hvorki meðal hv. þingmanna né meðal þjóðarinnar.

Ég legg til, að frv. verði vísað að lokinni þessari umr. til 2. umr. og hv. fjhn., og þá sérstaklega með tilliti til ákvæðisins í 3. gr. frv.

ATKVGR.

Frv. vísað til 2. umr. með 12 shlj. atkv. og til fjhn. með 12 shlj. atkv.