11.11.1952
Neðri deild: 24. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1116 í B-deild Alþingistíðinda. (1274)

89. mál, Samband íslenskra berklasjúklinga

Frsm. (Einar Olgeirsson):

Herra forseti. Fjhn. d. hefur einróma samþ. að mæla með þessu frv. Aðaltilgangur þessa frv. er að styðja að starfsemi Sambands ísl. berklasjúklinga, sem öllum hv. þm. er kunn og þarf ekki að rekja. Innihaldið í frv. er að breyta lögunum um vöruhappdrættið þannig, að í staðinn fyrir, að sex flokkar voru áður, þá skuli nú mega vera tólf. Stendur það í sambandi við hækkun á vinningunum. En þó er höfuðatriðið hitt, að láta verða skattfrelsi að öllu nema eignarskatti á vinningunum í þessu vöruhappdrætti.

Það hafði sýnt sig, að frá 1950 til 1951 höfðu lækkað nokkuð nettótekjurnar af vöruhappdrættinu, og þess vegna var nú farið út í það að hækka vinningana. En þegar vinningarnir eru hækkaðir, þannig að sá hæsti er 75 þús., þá leiðir þar af, að skattfrelsið verður alveg nauðsynlegt, svo framarlega sem menn eiga ekki beinlínis að óttast það að taka þátt í þessu happdrætti.

Frv. hefur verið flutt í hv. Ed. af hv. þm. Barð. (GJ) og hlaut þar einróma samþykki, og er það till. fjhn., að það sé samþ. hér óbreytt. Og þarf ég ekki, held ég, að gera frekari grein fyrir því, því að Alþ. hefur sýnt það, að það vill á allan hátt sem allra mest og bezt reyna að hlynna að þeirri þjóðnytjastarfsemi, sem S.Í.B.S. rekur.