29.11.1952
Efri deild: 32. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1126 í B-deild Alþingistíðinda. (1332)

78. mál, húsmæðrafræðsla

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Herra forseti. Þetta frv. er komið frá Nd. og tók þar frá því, sem það var í upphafi, smábreytingu, en hingað barst það, og menntmn. tók það til athugunar og var sammála um það að mæla með því, að það væri samþ. eins og það kom frá Nd. án breytinga. N. leit svo á, að þannig væri háttað í húsmæðraskólunum, að ef skólanefndum væri ekki gefið meira olnbogarúm um kennsluna, en þó með þeim takmörkunum, að fræðslumálastjórn liti eftir því, að gætt væri hófs í þeim hlutum, þá væri vafasamt, hvernig skólarnir væru sóttir. Það horfir þannig, að vegna kostnaðar við skólasetu eru húsmæðraskólarnir nú miklu minna sóttir, en áður hefur verið. Þrátt fyrir það þótt tveir húsmæðraskólar liggi nú niðri alveg, þá er ekki full aðsókn í suma aðra húsmæðraskóla. En einmitt með því, ef styttur er skólatími, þá kemur, að því er mig minnir og ég held að rétt sé, í launalögunum nokkur breyting á laun kennara, svo að það er í raun og veru sparnaður fyrir ríkissjóð, fyrir utan það, sem það gerir hægara stúlkum að sækja skólann til náms, og með því jafnvel að hafa skólann styttri og geta tekið hann e.t.v. í tveimur áföngum gæti verið hjálpað margri fátækri stúlkunni að komast í gegnum skóla, þannig að hún nyti nægilegrar kennslu sem húsmóðir í námsgreinum, sem þær þurfa að læra. Annars ætla ég ekki að teygja neitt lopann um þetta frv. Ég tel, að það sé langt frá því, að það geti verið á nokkurn hátt skaðlegt, en að mörgu leyti gagnlegt og horfa til sparnaðar bæði fyrir almenning og ríkissjóð, ef sæmilega er á haldið. Þess vegna leggjum við nefndarmenn til og erum sammála um það, að deildin samþykki frv. eins og það nú liggur fyrir.