20.11.1952
Efri deild: 29. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1128 í B-deild Alþingistíðinda. (1351)
76. mál, búfjártryggingar
Frsm. (Sigurður Ó. Ólafsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir á þskj. 85, er um breyt. á l. nr. 20 26. febr. 1943, um búfjártryggingar. Frv. er flutt af hv. landbn. Nd. að beiðni stjórnar Búnaðarfélags Íslands, og fylgdi því grg. samin af mþn. búnaðarþings.
Landbn. þessarar d. hefur haft þetta frv. til meðferðar og hefur orðið sammála um, eins og nál. á þskj. 246 ber með sér, að leggja til, að það yrði samþ. með nokkrum breyt. sem þar eru taldar. Ég vil geta þess um leið, að eftir að nál. var prentað, kom n. sér saman um að bera fram brtt., sem prentuð er á þskj. 260 og ég skal síðar koma að.
Þess skal getið, að n. hafði með höndum bréf, sem henni barst frá búfjártryggingardeild, dags. 10. þ. m., ásamt grg. fyrir starfsemi deildarinnar frá 1. júli 1948 til 30. sept. 1951. Grg. þessi var á sínum tíma send til mþn. búnaðarþings, sem þá vann að samningu þessa frv. Í bréfi sínu fór Brunabótafélag Íslands fyrir hönd búfjártryggingardeildarinnar fram á breyt. við 5. og 6. gr. frv., sem n. sá sér ekki fært að fallast á, og mun ég koma að því síðar.
Vegna þess að til búfjártrygginganna voru í byrjun greiddar úr ríkissjóði 300 þús. kr. og nú eftir 4 ára starfsemi trygginganna þurfa þær enn að fá styrk frá ríkissjóði, þykir mér rétt að gefa hv. þd. nokkrar upplýsingar um starfsemi trygginganna.
Með l. nr. 20 26. febr. 1943 var Brunabótafélagi Íslands falið að setja á stofn sérstaka búfjártryggingardeild, er annaðist tryggingar á búfé. 31. des. 1947 gaf landbrn. út reglugerð fyrir deildina, sem tók til starfa 1. júlí 1948, eða rúmum 5 árum eftir að l. voru sett. Samkv. 9. gr. l. skyldi ríkissjóður greiða 300 þús. kr. til deildarinnar, og skyldi það fé vera stofnsjóður hennar og varasjóður. Rekstur deildarinnar frá 1. júlí 1948 til 30. sept. 1951 gekk þannig, að tekjurnar urðu: iðgjöld kr. 275.598.72, vaxtatekjur kr. 4.153.59, eða samtals kr. 279.752.31, en gjöld á sama tíma urðu: greiddar bætur kr. 496.823.90, rekstrarkostnaður kr. 3.7922.81 og umboðslaun kr. 13.564.56. Verða gjöldin þá kr. 548.311.27, eða m.ö.o. rekstrarhalli á þessu tímabili kr. 268.558.96.
Ég skal geta þess, að fyrir yfirstandandi ár eða síðastliðið tryggingaár, en tryggingaárið endar 30. sept., hafa greiddar bætur farið fram úr innborguðum iðgjöldum sem nemur um 47 þús. kr.
Mestur varð hallinn fyrsta árið, eða um kr. 123.072.11, þrátt fyrir það að í lok ársins, þegar sást fyrir um útkomuna, voru iðgjöldin innheimt með 100% álagi samkv. heimild í 8. gr. búfjártryggingalaganna. Útkoman varð því sú, að eftir 3 ára starf var tillag ríkissjóðs til deildarinnar næstum uppétið og nú alveg eftir fjórða árið og í ljós komið, að með sama framhaldi yrði tryggingastarfsemi þessi að hætta.
Geta má þess, að á þessu tímabili hafa tryggingaiðgjöldin verið hækkuð, en það hefur ekki komið að fullum notum, vegna þess að tala þess búfjár, sem tryggt er í frjálsri tryggingu, hefur töluvert mikið lækkað við það, að iðgjöldin voru hækkuð.
Ég ætla þá að víkja nokkrum orðum að frv. eins og það liggur fyrir og brtt. nefndarinnar. 1. gr. frv., sem verður breyt. á 3. gr. l., fjallar um það búfé, sem skylt er að tryggja og þar er nánar fram tekið. Þessi grein er ekki mikil breyt. á gildandi l., en þó nokkur. Það er skipt aðeins þarna um hópa og sömuleiðis er sagt, að vátryggingarupphæð búfjár skuli fara lækkandi, er það eldist og rýrnar að verðgildi. Þetta er nýtt ákvæði, sem ekki er í gildandi l.
2. gr. fjallar um það búfé, sem heimilt er að tryggja í deildinni. Sem sagt, tryggingunum er skipt í tvennt, það, sem skylt er að tryggja, og það, sem heimilt er að tryggja. Þessi grein, sem er breyt. á 4. gr. laganna og fjallar um það, sem heimilt er að tryggja, er ekki mikil breyt. frá núgildandi l. Þó er þar nýmæli, að heil sauðfjárbú megi tryggja gegn vanhöldum og slysum, er nema meiru en 5% á ári.
Þá er það 3. gr. Hún verður breyt. á 5. gr. l. og fjallar um vátryggingarupphæð gripanna. Eru ákvæði í greininni töluvert fyllri um vátryggingarupphæð gripanna heldur en er í l., og verður það að teljast til bóta. Þá eru í þessari grein nýmæli um afslátt tryggingariðgjalda til þeirra, sem tryggja allt sitt búfé og hafa ekki orðið fyrir tjóni. Þeir fá 10% lækkun eftir 2 ár og 20% lækkun eftir 5 ár.
Ég vil geta þess, að á þskj. 260 er brtt. frá n., sem er við 2. gr. Það er orðalagsbreyting við a-lið, að fyrir orðið „Einstaklinga“ í upphafi aliðar kemur: Einstaka gripi. — Þetta er engin efnisbreyting, en aðeins orðalagsbreyting. — Og þá er að geta þess einnig, að á sama þskj. er lagt til, að nýr málsliður bætist við 2. gr., svo hljóðandi:
„Umboðsmönnum trygginganna er þó ekki heimilt að taka í tryggingu fjárhópa, sem hafðir eru í óbyggðum eyjum, nema stjórn búfjártryggingardeildar leyfi, að fengnum till. hreppsnefndar þess hrepps, sem eyjarnar liggja í.“
Þessi brtt. er fram komin með tilliti til þess, ef t.d. fjárhópar eru reknir í eyðieyjar, sem dæmi eru til um, að það geti ekki verið möguleikar á því að láta þá vera þar að öllu leyti umhirðulausa og tryggða. Á slíkum stöðum er vitanlega ekki nærri hættulaust að hafa fé, þannig að það eru meiri en venjulegar hættur, þar sem svo hagar til, hæði flæðihætta og að fé fenni og hitt og annað, ef það er á þeim stöðum, sem mjög erfitt er að komast að því, t.d. að vetrinum til. Þessi grein er til varnaðar, að slíkir hópar séu tryggðir, nema að fengnum till. hreppsnefndar þess hrepps, sem eyjarnar liggja í.
Þá er það 4. gr. Hún verður breyt. á 6. gr. laganna og kveður svo á, að greiða skuli fullt vátryggingarverð við tjón í stað 3/4 verðs áður. Kemur það á móti lækkuðu tryggingarverði gripanna.
Þá er það 5. gr. Hún hljóðar svo:
„Síðasti málsl. 1. mgr. 8. gr. laganna orðist svo: Nú verður eitthvert ár svo mikið tjón af slysum og vanhöldum samkv. 4. gr. c- og d-lið, að iðgjöldin hrökkva ekki til, og skal þá það, sem á vantar, greiðast að jöfnu úr búfjártryggingarsjóði deildarinnar og ríkissjóði, og er það ekki afturkræft.“ M.ö.o., búfjártryggingarnar fá þarna bakhjarl frá ríkissjóði gagnvart þessum liðum, sem eru frjálsu tryggingarnar, að ríkissjóður greiðir helming af þeirri upphæð, sem tjón fara fram úr greiddum íðgjöldum.
Deildin leggur það til í bréfi sínu, að þessi grein verði fyllri, þannig að hún nái til allra trygginganna. Þeir leggja til, að gr. hljóði svo: „Nú verður eitthvert ár svo mikið tjón af slysum og vanhöldum samkv. 3. og 4. gr., að iðgjöld hrökkva ekki til, og skal þá það, sem á vantar, greiðast að jöfnu úr búfjártryggingarsjóði deildarinnar og ríkissjóði, og er það ekki afturkræft.“ En 3. og 4. gr. taka yfir það fé, sem er skylt að tryggja, og eins það, sem er heimilt að tryggja. Á þetta gat n. ekki fallizt, en leggur til, að það sé eins og stendur í frv., að það sé aðeins átt við e- og d-liðina.
Þá kemur 6. gr., og leggur n. til, að greinin falli niður, en eins og frv. ber með sér, þá er 6. gr. þannig, að fyrir orðið „300 þús. kr.“ í 9. gr. l. um búfjártryggingar kemur: 500 þús. kr. — Samkvæmt þessu eru 200 þús. kr. ætlaðar sem viðbótarframlag við þessar 300 þús. kr., sem upphaflega voru ætlaðar til trygginganna og eru þegar þeim greiddar.
Í þessu bréfi, sem ég hef minnzt á, leggur búfjártryggingardeildin mikla áherzlu á það, að þessi grein hljóði þannig:
„Ríkissjóður leggur fram viðbótarframlag allt að 500 þús. kr. Framlagið greiðist með jöfnum greiðslum á næstu tveim árum.“ M.ö.o. yrði viðbótargreiðslan 500 þús. kr. Nefndin gat ekki fallizt á þetta, en leggur í þess stað til, að 6. gr. falli niður, en efni hennar verði tekið upp í bráðabirgðaákvæði eins og segir í nál. á þskj. 246:
„Ríkissjóður greiðir í búfjártryggingarsjóð sem óafturkræft framlag 300 þús. kr. með jöfnum greiðslum á árunum 1952, 1953 og 1954, 100 þús. kr. á ári.“
Búfjártryggingardeildin leggur eindregið til, eins og ég tók fram, að framlagið verði allt að 500 þús. kr., og rökstyður þá beiðni sína m.a. með því, að 1943, þegar l. voru sett, hafi verið ákveðið að leggja fram til deildarinnar 300 þús. kr. framlag, en deildin hafi ekki tekið til starfa fyrr en 5 árum síðar, eða 1. júli 1948, og hafi þá verðgildi peninga verið allt annað og minna, en þegar upphæðin var ákveðin. Þá er einnig bent á, að búfjártryggingarnar séu áhættusamar og eðlilegt, að um tap sé að ræða fyrstu árin. Þrátt fyrir þessi rök gat landbn. ekki fallizt á að leggja til að hafa tillagið hærra en 300 þús. kr., eins og áður segir, og vill í því sambandi benda á, að rekstur deildarinnar var óhagstæðastur fyrsta árið, eða 123 þús. kr. halli þá. Næstu árin var hann lægri, og síðasta starfsár hennar var hann 47 þús. kr., eins og ég hef þegar minnzt á. Ef þetta frv. nær fram að ganga, ætti það að hafa þau áhrif, að tryggingarnar ættu að ganga betur fjárhagslega, og að því verður vitanlega að stefna, að þær þurfi ekki að vera baggi á ríkissjóði.
Ég vil að lokum geta þess, vegna þess, hvernig bráðabirgðaákvæðið er orðað, að það virðist vera nokkuð undarlegt í fljótu bragði að ákveða með bráðabirgðaákvæðinu, að ríkissjóður skuli greiða búfjártryggingarsjóði 300 þús. kr. framlag með jöfnum greiðslum á árunum 1952, 1953 og 1954, 100 þús. kr. á ári. Þetta litur dálítið einkennilega út. En það styðst við það, að á fjárlögum fyrir árið 1952 er 100 þús. kr. veiting til búfjártrygginganna, sem ekki hefur verið greidd tryggingunum. Á fjárlagafrv., sem fyrir liggur núna, fyrir árið 1953, er einnig lagt til, að greiddar verði 100 þús. kr. til þessara trygginga. Þá vantar eitt ár 100 þús. kr., sem greiddust þá á árinu 1954, svo að þessar greiðslur rugla hvorki fjárlögin fyrir yfirstandandi ár né fjárlagafrv. fyrir næsta ár.
Ég vænti þess, að hv. deild geti fallizt á að samþykkja. frv. með þessum breyt. frá landbn., sem ég hef nú lýst.