24.11.1952
Efri deild: 30. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1137 í B-deild Alþingistíðinda. (1357)

76. mál, búfjártryggingar

Frsm. (Sigurður Ó. Ólafsson):

Herra forseti. Við 2. umr. þessa máls komu fram athugasemdir og tilmæli um, að brtt., sem landbn. flutti þá, yrði athuguð nokkru betur. Varð n. við þeim tilmælum og tók brtt. aftur. Brtt. þessi er á þskj. 260. N. hefur athugað frv. að þessu leyti nokkru nánar og flytur nú skriflega brtt. við það, þar sem ekki vannst tími til að láta prenta hana. Þessi breyting var við 2. gr. og var um tryggingu á þeim búfjárhópum, sem voru, eins og sagði í till., hafðir í óbyggðum eyjum. Það átti að vera nokkuð bundið, hvort þeir hópar fengjust tryggðir. Nú hefur þessi skriflega brtt., sem n. ber fram, ekki breytt hinni upphaflegu tillögu að efni til, er aðeins öðruvísi orðuð. Ég ætla þá að leyfa mér að lesa till. Hún hljóðar svo:

„Aftan við 2. gr. bætist ný málsgr., svo hljóðandi:

Umboðsmönnum trygginganna er þó ekki heimilt að taka í tryggingu búfé, sem haft er á þeim stöðum, þar sem ekki verður við komið nauðsynlegu eftirliti með líðan þess, nema stjórn búfjártryggingardeildar leyfi það og þá gegn allt að fimmföldu tryggingargjaldi.“

Þessi tillaga er miðuð við það, að þessir staðir séu hættulegri, en venjulegir staðir fyrir tryggingarnar, og er þessi till. fram komin til að draga úr áhættu trygginganna að þessu leyti, eftir því sem mögulegt er.

Landbn. leggur þá til, að þetta frv. verði samþykkt eins og það er á þskj. 266, að þessari brtt. viðbættri.