17.10.1952
Neðri deild: 10. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í B-deild Alþingistíðinda. (141)
8. mál, Sogs- og Laxárvirkjun
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Á sínum tíma voru samþ. sérstök lög um heimild handa ríkis- stj. til að taka hjá Alþjóðabankanum allt að 40 millj. kr. lán í erlendri mynt til Sogs- og Laxár- virkjana. Við samningana við bankann kom í ljós, að gera þurfti nokkra formsbreytingu á lögunum, og var hún gerð með brbl., en fyrir alveg sérstök mistök láðist að leggja brbl. þessi á sínum tíma fyrir hv. Alþ. Þetta frv. er því borið fram nú til að bæta úr þeirri vanrækslu. Ég vil leyfa mér að óska eftir því, að málinu verði vísað til fjhn. að lokinni þessari umr.