08.12.1952
Neðri deild: 36. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1157 í B-deild Alþingistíðinda. (1428)
139. mál, lax- og silungsveiði
Frsm. (Jón Sigurðsson):
Herra forseti. Ef menn bera saman frv. eins og það kom frá Ed. og eins og það var afgr. héðan úr Nd., þá sést það, að Ed. hefur lækkað sektarákvæði frv. í 1. og 2. gr. um helming eða jafnvel meira og sektarákvæði 4. gr. nokkru minna. Landbn. telur þetta of langt gengið og leggur þess vegna til, að sektarákvæðin í 1. og 2. gr. verði hækkuð nokkuð frá því, sem Ed. hefur samþykkt þau, þannig að mætzt verði á miðri leið. Væntir landbn. þess, að deildin geti fallizt á þessa málamiðlun til samkomulags.