04.12.1952
Neðri deild: 34. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1161 í B-deild Alþingistíðinda. (1445)

140. mál, vátryggingarfélög fyrir fiskiskip

Pétur Ottesen. Ég verð nú að segja það við hv. þm. Sigif. (ÁkJ), að það hefur runnið nokkuð seint upp fyrir honum sá háski, sem hann álítur að hér sé á ferð með þessu ákvæði, með því að bera þá ekki fram brtt. við þetta frv. um þetta atriði, því að það er búið að liggja hér lengi í meðförum deildarinnar.

Sjútvn. hefur athugað þetta mál eftir beztu föngum og leitað álits kunnugra manna um það, og niðurstaðan af þeirri athugun varð sú, eins og frsm. sjútvn. hefur lýst hér, að meiri hl. n., sem á fundi var, taldi rétt að breyta ekki þessu umdeilda ákvæði. Hv. 2. landsk. (LJós) hefur nú lýst því, að hann hafði ekki tækifæri til þess að mæta á þeim fundi, þegar endanlega var frá þessu gengið. Hins vegar hefði hann náttúrlega haft til þess nægan tíma síðan að bera fram brtt. við þetta frv., ef honum hefði sýnzt svo.

En svoleiðis er komið um þessar tryggingar, að sökum þess, hve miklir erfiðleikar hafa þar verið á innheimtu allri, eru tryggingarnar blátt áfram orðnar óvirkar, þannig að greiðslur á tjónbótum, sem áttu að fara fram fyrir ári og máske tveimur árum, hafa ekki verið af hendi inntar, af því að fé hefur ekki verið fyrir hendi í tryggingunum til þess að standa þar skil á. Og sú ábyrgð, sem ríkið hefur veitt félaginu fyrir lánum til þess að nota í þessu skyni, hefur engan veginn hrokkið til. Þetta stafar af því, hversu treglega gengur með innheimtu iðgjaldanna. Þess vegna varð að grípa hér til alveg sérstakra ráðstafana til þess að gera tryggingarnar aftur þannig úr garði, að þær gætu innt af höndum það hlutverk, sem þeim er markað í tryggingakerfi. Þetta er vitanlega alveg óhjákvæmilegt að gera og það því fremur þar sem menn eru skyldaðir til þess að tryggja báta sína einmitt í þessum tryggingum. Það, sem kom í ljós við þá athugun, sem látin var fram fara um þetta af sérstakri n., sem undirbjó þetta mál fyrir Alþ., var það, að það þyrfti að gera ráðstafanir til þess að tryggja innheimtu iðgjaldanna, betur en nú er. Og þetta var gert með tvennum hætti, með því að hækka heimild ríkisstj. til ábyrgðar fyrir félagið um 1 millj. kr. og í öðru lagi að gera ráðstafanir til þess, að fyrr gengi um innheimtu tryggingargjalda, heldur en verið hefur að undanförnu, enda var þessi heimild fyrir ríkisstj. um hækkun á ábyrgðinni bundin því skilyrði, að jafnframt yrðu gerðar ráðstafanir til þess að tryggja innheimtuna betur, en verið hefur. Og það var nú gert með þessum hætti, að ákveða, að lögtaks skyldi krafizt þegar liðnir væru 3 mánuðir. En það er allt annað, en að lögtak skyldi fram fara, eins og hv. þm. Siglf. sagði.

Sjútvn. virtist, að hér væri svo mikill vandi á höndum um þetta mál, að eigi yrði hjá því komizt að setja einhver slík tryggingarákvæði fyrir innheimtunni eins og í þessu felst, og áleit þess vegna, að eigi væri hægt að komast hjá því að samþ. þetta ákvæði. Þetta er þess vegna afstaða meiri hl. n. til málsins. En hins vegar, þar sem hér hafa nú risið upp andmæli gegn þessu á alveg síðustu stundu, því að nú er verið að afgr. málið hér endanlega, og þrátt fyrir það þó að það hafi legið hér fyrir og nægur tími verið bæði fyrir hv. þm. Siglf. og aðra til þess að koma hér á framfæri í d. þeim breyt., sem þeir teldu rétt eða nauðsynlegt að gera á frv., þá vildi ég nú samt, án þess að hafa borið mig nokkuð saman við sjútvn. um það, leggja það til við hæstv. forseta, að hann frestaði afgreiðslu málsins að þessu sinni, en tæki það á dagskrá næst þegar fundur verður haldinn hér í d. Og er það þá deildin, sem vitanlega sker úr um þetta ágreiningsatriði, sem virðist vera það eitt í þessu frv., sem valdið hefur ágreiningi.