02.12.1952
Efri deild: 33. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1166 í B-deild Alþingistíðinda. (1468)

153. mál, eignarnámsheimild á hluta úr Breiðuvík í Rauðasandshreppi

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hv. landbn. fyrir afgreiðslu málsins. Ég get mjög vel fallizt á breyt. þá, sem lagt er til að gerð verði við 1. gr., og tel einnig, að það sé skýrara orðalag á henni heldur en upphaflega var í frv. Það tekur öll tvímæli af um það, að það eigi að taka eignarnámi þann hluta, sem ríkið á ekki nú þegar í jörðinni.

Út af þeim samningum, sem hafa þegar farið milli mín sem formanns þeirrar n., sem hefur með þessi mál að gera nú, og eiganda að þeim hluta jarðarinnar, sem hér um ræðir, vil ég aðeins taka þetta fram:

Ég hef boðizt til þess að greiða viðkomandi aðila þrefalt fasteignamat fyrir landið, þ.e. kr. 3.300.00, og þess utan að losa hann frá þeirri kvöð, sem hvílir á jarðarpartinum um að byggja að nýju kirkju í Breiðuvik. Um þetta hefur ekki tekizt samkomulag. Hann hefur hins vegar óskað eftir að fá 15 þús. kr. greiddar fyrir jarðarpartinn og auk þess að vera leystur frá þeirri kvöð að byggja kirkjuna. Þetta hef ég ekki séð mér fært, og þess vegna var þetta frv. borið fram á sínum tíma. Það má vel vera, þegar heimildin er fengin, að takast megi samkomulag við viðkomandi aðila. Og tel ég rétt, að það sé reynt, áður en eignarnámi yrði beitt. En eins og málin standa nú, hef ég ekki komizt að betri kjörum, en ég þegar hef lýst, og mér þykir því vænt um, ef hv. d. vildi samþ. frv. eins og hv. landbn. leggur til.