16.12.1952
Efri deild: 41. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1200 í B-deild Alþingistíðinda. (1598)
186. mál, almannatryggingar
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Þótt hv. frsm. meiri hl. hafi nú gert ýtarlega grein fyrir því frv., sem hér liggur fyrir á þskj. 454, og ég hafi ekki skrifað undir nál. með fyrirvara, þá vildi ég þó gera hér nokkra grein fyrir því hvers vegna ég er sammála þeim breyt., sem lagt er til að gerðar séu á löggjöfinni með því frv., sem hér er til umr.
Eins og hv. frsm. tók fram, þá er 1. gr. frv. vegna breyt. á framlagi til sjúkrasamlaganna. Það þótti nauðsynlegt að hækka framlag ríkissjóðs til sjúkrasamlaga, þegar hækkuð voru daggjöldin á ríkisspítölunum úr 60 kr. upp í 70 kr., eins og nú er gert ráð fyrir á fjárlögum. Þess vegna er þessi brtt. borin fram, eins og hv. frsm. hefur lýst, og mun sú breyt. hafa í för með sér um 1.100 þús. kr. aukin útgjöld fyrir ríkissjóð. Nú er þetta ekki nema áætlunarupphæð, en samkomulag hefur orðíð um það milli ríkisstj. og fjvn. að taka inn á fjárl. 1 millj. kr. hærra framlag til þess að mæta þessum útgjöldum, í trausti þess, að það muni nægja á árinu. Um þetta atriði er enginn ágreiningur, hvorki í n. né hjá hæstv. ríkisstj. Hins vegar er það rétt, sem hv. 4. þm. Reykv. tók fram, að það var getið um það nokkurs konar fyrirheit af hæstv. heilbr.- og félmrh. hér í fyrra, að þeim ákvæðum, sem ákveða um greiðslu ellilauna, skyldi aðeins verða frestað um eitt ár. Hafði hæstv. ráðh. látið fara fram mjög nákvæma athugun á því, hvað það mundi kosta ríkissjóðinn að nema viðmiðunina alveg í burtu. Eftir því sem upplýst er, mundi þetta kosta tryggingarnar um 10 millj. kr., ef viðmiðunin væri afnumin, þannig að hver aðili, sem væri 67 ára, fengi fullar ellibætur, hvort sem hann hefði miklar eða litlar tekjur. Það var einnig athugað þá, hver kostnaðarhliðin yrði, ef aðeins væri miðað við 75 ára aldur og eldri. Ég hygg, að ég fari rétt með, og leiðréttir hv. 4. þm. Reykv. mig, ef svo er ekki, að það mundi kosta um 6 millj. fyrir tryggingarnar, ef greiddar yrðu bætur til allra, sem væru 75 ára og eldri.
Ég verð nú að segja, að við vorum nokkuð undrandi yfir því, að þessi upphæð skyldi vera svo há, þegar takmarkið væri sett upp í 75 ár, en það mun ekki þýða að deila við dómarann um það atriði. Þær skýrslur, sem hafa fengizt um þetta atriði, munn sanna það, að þetta mun kosta þá upphæð, sem hér um ræðir, ef það hefði átt að færa takmarkið upp í 75 ár og greiða síðan öllum þeim, sem voru það gamlir eða eldri, full ellilaun. Ég verð að segja fyrir mína parta, að mér hefði þótt það ákaflega æskilegt, að slíkt hefði verið gert. En ég hef því miður ekki getað fallizt á það á þessu stigi og skal koma að því síðar.
Þá hafði einnig verið rætt um það og það athugað, hvað það mundi kosta, ef hækkuð yrði viðmiðunin um 50%, eins og lagt er til í brtt. á þskj. 468, og eftir því sem upplýst er, mun það kosta 960 þús., ef sú breyt. væri gerð á löggjöfinni. Ég skal viðurkenna, að það hefði einnig verið mjög æskilegt að fara inn á þá tilhögun nú, en með því að bæði ber að stefna að því, að viðmiðunin verði afnumin að fullu annars vegar og hins vegar að endurskoðun fari fram á löggjöfinni, ekki einasta á þessu atriði, heldur svo mörgum öðrum atriðum, eins fljótt og verða má, og helzt ekki síðar, en innan tveggja ára, þá þótti mér rétt að fylgja því ráði að gera ekki þær breyt. á löggjöfinni, sem hér hefur verið rætt um, þ.e.a.s. að hækka viðmiðunina eða nema hana alveg í burtu.
Þegar tryggingalöggjöfin var samþ. hér á hv. Alþ., féll það í hlut minn fyrir hönd Sjálfstfl. að hafa með þessi mál að gera í hv. heilbr.- og félmn. þessarar d. og hafa þar samvinnu við hv. 4. þm. Reykv. Hefur sú samvinna haldizt öll þessi ár, því að við höfum báðir átt sæti í n. síðan. Lagði ég á það megináherzlu í sambandi við afgreiðslu málsins, að ekki yrði gengið lengra í sambandi við bætur til nokkurs aðila en svo, að hægt væri að standa við þær óbreyttar í framtíðinni. Frá mínu sjónarmiði hefur það alltaf verið meginatriði, að tryggingarnar þyrftu ekki að bregðast þeim aðilum, sem bætur hafa fengið samkv. lögum, hvort heldur það hafa verið fjölskyldubætur, barnalífeyrir, ekkjubætur eða ellilaun, og stend ég ákaflega fast á því enn þann dag í dag. Ég teldi það vera stórkostlegt áfall fyrir tryggingarnar, ef það kæmi nokkru sinni fyrir, að það þyrfti að fara að fresta greiðslu bóta eða draga úr þeim frá því, sem ákveðið er með lögunum. Það mundi skapa vonbrigði hjá mönnum, sem byggt hafa afkomu sína m.a. á bótum úr tryggingunum, enda er mér kunnugt um það, að tryggingarnar eru orðnar slíkur liður í framfærslu hjá fjöldamörgum mönnum, að vitað er, að það eru til sveitir í þessu landi, þar sem hvert eitt einasta heimili hefur einhverjar bætur frá tryggingunum. Þetta er mitt sjónarmið í sambandi við tryggingamálin, og þess vegna vil ég ekki leggja til, að farið sé lengra í bótum en ríkissjóður getur og treystir sér til að uppfylla annars vegar og skynsamlegt þykir að leggja hins vegar bæði á atvinnuvegina og einstaklingana sjálfa í sambandi við iðgjöldin, fyrr en búið er að koma þeim málum í það horf, sem ég hef ávallt frá upphafi óskað eftir, að tryggingunum yrðu tryggðir ákveðnir tekjustofnar, sem ekki væru háðir afkomu ríkissjóðsins á hverjum tíma. Það tel ég ákaflega nauðsynlegt mál, og ég vildi beina því til hv. 4. þm. Reykv., sem er forstjóri trygginganna og sjálfsagt verður með í að athuga og endurskoða lögin, hvort ekki sé mögulegt að finna slíkan tekjustofn fyrir tryggingarnar, þar sem slíkar tekjur gætu að minnsta kosti tekið við áföllum í erfiðum árum. Hefur nokkuð verið byrjað á þessu í sambandi við erfðafjárskattinn, þar sem það hefur nú verið ákveðið, að hann skuli renna til þess að standa undir ákveðnu verkefni í sambandi við tryggingarnar, en ég tel, að það þurfi að fara miklu lengra inn á þá braut og að búa verði miklu betur um tekjustofna fyrir tryggingarnar heldur en gert hefur verið, ef það á að vera unnt að uppfylla þau loforð, sem gefin hafa verið í sambandi við lögin, þ.e. að minnka ekki bæturnar eða draga þær saman á einn eða annan hátt, en þar til þeim málum er komið í það horf, sem ég hef lýst, á ég ákaflega erfitt með að fylgja því að leggja þyngri byrðar á tryggingarnar, þar sem ég hef ekki neitt öryggi fyrir því, að þær geti þá staðið við sínar skuldbindingar. Þetta er ástæðan fyrir því, að ég hef ekki viljað fallast á, hvorki nú né fyrr, að bæta útgjöldum á tryggingarnar, nema því aðeins að hægt sé að tryggja á annan hátt tekjur á móti en þann, sem gert er ráð fyrir í lögunum, þ.e.a.s. beint úr ríkissjóði.
Ég skal enn fremur taka það fram hér í sambandi við mæðralaunin, að ég tel, að sú brtt., sem hér er borin fram og er nú ekki neitt nýtt atriði, þar sem hún hefur verið borin fram hér á hverju ári, ætti jafnvel meiri rétt á sér heldur en nokkrar aðrar þær till., sem bornar eru fram á þskj. 468, og hefði ég ákaflega mikla tilhneigingu til þess að geta fylgt henni, að vísu kannske eitthvað breyttri, en því miður get ég ekki á þessu stigi málsins heldur lagt til, að hún verði samþykkt, og hygg ég, að þar fari saman áhugi minn annars vegar og áhugi hv. 8. þm. Reykv., þó að hann hafi af sömu ástæðu lagt til, að þessi till. verði ekki samþ. nú. Við munum bæði hafa þá skoðun, að það væri æskilegt, ef það væri hægt að taka þá till. inn, en hún kostar ríkissjóðinn 600 þús. kr., og mun ekki þykja ástæða til þess að bæta þeim útgjöldum á fjárlögin í ár eins og nú standa sakir. Ég vil hins vegar segja það, að ef það verður endanleg niðurstaða í þessari hv. deild að láta 500 þús. kr. í bókaútgáfu, þá geymi ég mér allan rétt til að athuga afstöðu mína í þessu máli, því að þá tel ég, að þeir hinir sömu menn séu svo bjartsýnir í fjármálum, að þeir ættu ekki að standa á móti 600 þús. kr. framlagi til þess að geta mætt þessum þörfum og óskum fjöldamargra manna í landinu.
Ég mun því greiða atkvæði með frv. eins og það er og greiði á þessu stigi málsins atkvæði á móti brtt. á þskj. 469. Ef þetta mál þyldi bið, hefði ég óskað eftir því, að það yrði ekki afgreitt fyrr en séð væri endanlega fyrir um það mál, sem var hér til umræðu áðan, en ég sé ekki, að það sé mögulegt að draga málið svo lengi, enda er þá möguleiki til þess að taka upp í hv. Nd. þessar till. aftur, ef ske kynni, að hv. Ed. yrði svo bjartsýn á fjárhagsafkomu ríkisins, að það sé óhætt að bæta þar ofan á 500 þús. kr. í öðrum lið, sem ekki er eins aðkallandi að mínu áliti eins og sá, sem hér um ræðir.