19.12.1952
Neðri deild: 46. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1207 í B-deild Alþingistíðinda. (1612)
186. mál, almannatryggingar
Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):
Herra forseti. Ég skal ekki tala hér langt mál. Frsm. heilbr.- og félmn. gat þess, að á framhaldsþinginu eftir áramót mundi þurfa að gera breytingar á þessari löggjöf í sambandi við það samkomulag, sem orðið hefur í vinnudeilunni nú, og vil ég þá staðfesta það og lýsa því yfir, að það verður undirbúið frv. um breyt. á almannatryggingalögunum í samræmi við það samkomulag, sem orðið hefur varðandi þau ákvæði. Hins vegar er nauðsynlegt að samþ. nú þetta frv., sem fyrir liggur, vegna ákvæðanna um það, sem í frv. eru, að enn skuli framlengd ákvæðin um skerðingu. En þar sem nú er fyrirhugað, að Alþingi verði frestað í dag, ef unnt er, þá vildi ég leyfa mér að leggja hina mestu áherzlu á það, að þetta frv. yrði nú samþ. óbreytt eins og það liggur fyrir, því að það er þá hægt að taka upp breytingar, sem hv. þdm. hafa áhuga fyrir, þegar þingið kemur saman aftur til framhaldsfunda eftir áramótin.
Ég ætla ekki að fara að ræða hér efnishlið þeirrar till., sem hér var lýst áðan af hv. 9. landsk. í þessu atriði, en vil bara benda á það, að það gefst tækifæri síðar til þess að koma að þeim till. til breytinga á almannatryggingalöggjöfinni, sem menn hafa áhuga fyrir, þó að þetta frv. nú yrði samþ. Hefði ekki verið í frv. þetta ákvæði um skerðingu ellilífeyris, sem annars kemur til framkvæmda að öllu leyti um áramótin, þá hefði ekki verið ástæða til þess að ljúka afgreiðslu þessa máls nú, en eins og ástatt er, þá er talið nauðsynlegt að gera það. Ég vildi því leyfa mér að beina því til hv. flm. þeirrar brtt., sem hér liggur fyrir, hvort þeir gætu ekki sætt sig við að draga hana til baka að þessu sinni og taka þá málið upp aftur á framhaldsþinginu.