19.12.1952
Neðri deild: 46. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1209 í B-deild Alþingistíðinda. (1615)
186. mál, almannatryggingar
Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):
Herra forseti. Ég vil aðeins út af þessari till., sem hér er rætt um og hv. 7. þm. Reykv. minntist nú á, og út af því, sem hann sagði síðast í sinni ræðu um það, að hér væri aðeins um mjög smávægileg útgjöld að ræða, taka það fram, að forstjóri almannatrygginganna hefur sagt mér, að um það hafi enginn útreikningur farið fram og það viti enginn, hvað þetta kosti. Þess vegna vil ég enn endurtaka það, sem ég sagði áðan, að það er miklu réttara að mínum dómi að fresta þessu um sinn fram yfir áramótin og láta athuga, eins og alltaf er gert, þegar um breyt. á almannatryggingalögunum er að ræða, hvað breyt. kosta o.s.frv., en fara ekki að samþ. þetta nú hér í síðari deildinni við 2. umr., eins og nú er gert ráð fyrir. Það getur líka orðið til þess, að erfiðara verði að afgr. málið áður en Alþ. er frestað. Virðist mér það óþarfastífni af hv. flutningsmönnum till. að geta ekki frestað þessu máli, úr því að það er gefin yfirlýsing um það, að frv. um breyt. á almannatryggingalöggjöfinni verði lagt fram á framhaldsþinginu eftir nýár. En ef þessi till. verður ekki dregin til baka, þá vil ég leyfa mér að mælast til þess við hv. þdm., að þeir felli till.