18.12.1952
Neðri deild: 44. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1217 í B-deild Alþingistíðinda. (1628)
189. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Það er eitt, sem mig langar til að spyrja hæstv. ríkisstj. að í sambandi við þessi lög, sem við nú erum að afgr. til hennar, án þess að ég ætli nú nokkuð að fara að lengja málið. Mig langaði til þess að spyrja hana að því, hvort hún mundi brjóta þau á nákvæmlega sama hátt eins og hún brýtur flest önnur l. núna. Það er þarna um að ræða, að hún eigi að sjá um að greiða fé úr ríkissjóði í samræmi við núgildandi fjárlög.
Ég benti á það hér áðan, að hæstv. ríkisstj. væri farin að brjóta lög viðvíkjandi greiðslum á launum til starfsmanna. Og ég benti á, að hún hefði gert það m.a. vegna þess, að það hefði verið gengið svo hart að ríkisfyrirtækjum, og nefndi þar Ríkisskip, að þeim hefði verið lokað vegna vangreiðslu á söluskatti eða það hefði verið hótað að loka þeim, og lögreglan sem sé verið að spyrja fjmrn. um slíkt, en til þess að koma í veg fyrir lokun á þeim, þá hefðu þessi fyrirtæki gripið til þess að taka fé, sem átti að greiðast til starfsmannanna, og greiða þeim út aðeins lítið af því, sem þeir áttu að fá, til þess að geta greitt í söluskattinn til ríkisins.
Þetta dæmi nefndi ég hér í umr. um þetta mál við 1. umr. þess. Og hæstv. ríkisstj. — fjmrh. var þá hér inni — fann ekki neina ástæðu til að gefa neina skýringu né neina athugasemd í þessu máli, þannig að ég skil, að hann hefur staðfest þetta algerlega, enda veit ég, að fjmrh. veit um þetta. Og það er nú orðið anzi langt gengið, ef fjmrh. lokar ríkisfyrirtækjunum vegna innheimtu á söluskattinum eða hótar að loka þeim eða kúskar þá, sem stjórna þessum fyrirtækjum, til þess að taka kaupgjaldið, sem á að vera komið í umslögin til starfsmannanna, og borga það í ríkissjóðinn. Ég veit, að hæstv. fjmrh. kippir sér ekki mikið upp, þegar hann hagar sér svona gagnvart atvinnurekendum og verkamönnum þeirra, eins og ég hef bent á áðan að hann hefur gert. Og eins og ég benti á hér við fyrri umr. þessa máls, eru hundruð verkamanna í Reykjavík, sem nú hafa staðið í verkfalli í 18 daga og hafa ekki fengið enn þá kaup greitt í nóv. frá fyrirtækjum, sem alltaf vofði yfir að loka vegna söluskattsgreiðslu þá. M.ö.o.: Ríkisstj. hefur gengið svo harðvítuglega að atvinnurekendum, að þeir hafa brotið lög á verkamönnum um kaupgreiðslur til þeirra. Og það er satt að segja skörin farin að færast upp á bekkinn, þegar farið er svo að hóta að loka sjálfum ríkisfyrirtækjunum, þegar ríkissjóður hótar að loka Ríkisskip, svo framarlega sem sé ekki tekið af kaupgreiðslum mannanna til þess að greiða til hæstv. fjmrh. Er ríkissjóður í svona miklu öngþveiti? Er hann svona peningalaus í dag, að hann geti yfirleitt ekki borgað út? Og með hverju ætlar hann eiginlega þá að borga í janúarmánuði, svo framarlega sem þetta á að ganga svona til áfram? Áfengisverzlunin er lokuð. Ég býst við, að hún verði lokuð áfram, meðan verkfallið stendur. Ég gæti trúað, að það hefði nú munað einhverju og mundi ekki sízt muna nú fyrir jólin. Tollafgreiðslurnar í desember hafa venjulega verið nokkuð miklar. Ég gæti trúað, að það mundi líka muna kannske einhverju núna með þessar fjárgreiðslur, sem hæstv. ríkisstj. er að fara fram á í janúar, eða hefur hún það í sjóðnum hjá sér? Er hún örugg með að geta greitt þetta út, eða á að fara að eins og núna hefur verið gert, loka og loka hjá ríkisfyrirtækjunum? Ég veit, að það eru ríkisfyrirtæki, sem skulda hæstv. fjmrh. allmikið fé. Ég veit ekki, hvort hann mundi nú voga sér að fara að á sama hátt gagnvart þeim eins og hann ætlaði að gera við Ríkisskip. Ég veit t.d., að Sogsvirkjunin skuldar ríkissjóði, kannske líka söluskatt. Kannske það vofi yfir einhvern daginn, að hæstv. ríkisstj. loki Sogsvirkjuninni með lögregluvaldi, ef hún ekki greiðir söluskatt? Ég vil bara rétt minnast á þetta til þess að benda á, hvernig komið er með harðýðgina í innheimtunni annars vegar og með skeytingarleysið um hag almennings hins vegar hjá hæstv. ríkisstj.
Ég rakti áðan við 2. umr. þessa máls, hvernig hæstv. ríkisstj. hefði komið fram viðvíkjandi því, sem snertir bátagjaldeyrinn og allt það, sem hún hefði rukkað inn ólöglega og hefði enga heimild til, yfir 100 millj. kr., og greitt út til sinna gæðinga og skjólstæðinga tugi millj. króna fyrir að rukka inn þetta ólöglega gjald, og hvernig sú fjárupphæð, sem hæstv. ríkisstj. hefur tekið af almenningi með ófrjálsu móti, er margfalt meiri en allt, sem deilt er um í núverandi vinnudeilu. En ég sem sé vildi aðeins af virðingu fyrir hæstv. ríkisstj. gefa henni tækifæri til þess að ræða við Alþingi um þessi mál, um leið og þessi uppgjöf hæstv. fjmrh. — að gefast upp við að afgr. fjárlögin fyrir nýár — liggur nú hér fyrir lýðum ljós og hann fer fram á þessar bráðabirgðafjárgreiðsluheimildir hjá okkur. Ég vildi aðeins hafa gefið ríkisstj. þetta tækifæri. Ég býst ekki við, að hún vilji nota það. Ég býst við, að henni finnist sinn eigin málstaður í þessu öllu saman orðinn það lélegur, að hann verði ekki varinn, hvorki hér á Alþingi né utan þess.