15.01.1953
Efri deild: 49. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1228 í B-deild Alþingistíðinda. (1694)
118. mál, hundahald
Þorsteinn Þorsteinsson:
Herra forseti. Það er óvenjulegt, að mál sé tekið fyrir eða frv., þó að þau hafi áður verið í deildum, þegar þau koma breytt frá hinni deildinni, án þess að þau séu borin undir nefndirnar aftur til athugunar. Og ég tel það sem einn af landbn.- mönnum ríða mikið á því, að maður geti talað um það á fundi sínum, og tel það gerræði af formanni okkar, að við fáum ekki að ræða það á fundi, heldur talar hann nú fyrir allra okkar munn hér, eins og hann eigi bæði talfæri okkar og sannfæringuna. Þess vegna verð ég að lýsa því yfir, að ég verð að greiða atkv. á móti þessu frv. núna, fái ég ekki tíma til þess á fundi að athuga það, en óska þess, — þó að það sé kannske gengið lengra en umræða um atkvgr., — enn þá einu sinni við forseta, að hann vildi fresta málinu um skeið.