16.01.1953
Efri deild: 50. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1244 í B-deild Alþingistíðinda. (1718)
127. mál, menntaskóli
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Hæstv. ráðh. mátti vera það ljóst eftir umr. um þetta mál hér á undanförnum þingum og atkvgr., að ég hef yfirleitt staðið ákveðið á móti þessu máli. Ég skal ekki nú fara að endurtaka neitt af þeim ummælum, sem ég hef þá haft. Nú kemur þetta mál í nýju ljósi á þann hátt, að skólarnir, sem þarna er um að ræða, gagnfræðaskólinn, sem er á Akureyri og á að vera og kenndur er við Þorstein M. Jónsson, og gagnfræðaskólinn, sem á ekki að vera og kenndur er við menntaskólann, eru búnir að gera með sér samkomulag og fyrir fram að ákveða, hvernig nemendur á Akureyri skuli skiptast á milli þessara skóla eftir prófum og því, hvar þeir búa í bænum. Þegar nú eitt bæjarfélag og tveir skólar eru búnir að koma sér saman um þetta, þá hef ég sagt formanni menntmn., Þorsteini Þorsteinssyni, á fundi þar, að ég mundi ekki skipta mér af málinu, ég mundi láta það hlutlaust, hvorki mæla með því né á móti því, að þeir gerðu þetta samkomulag og reyndu það. En mér mundi sjálfum, ef ég ætti heima á Akureyri, þykja fjandi hart að vera ekki frjáls að því, í hvaða skóla ég setti mín börn. Og hvað lengi þetta samkomulag stendur hjá Akureyringum sjálfum, það skal ég láta ósagt.
Ég mun þess vegna, eins og ég hef sagt við hv. form. n., láta málið afskiptalaust og lofa þeim að sjá, hvernig þetta samkomulag, sem skólarnir innbyrðis — og bæjarfélag Akureyrar sjálfsagt líka — virðast hafa komið sér saman um, reynist, og því ekki skipta mér af málinu.