15.01.1953
Efri deild: 49. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1252 í B-deild Alþingistíðinda. (1748)

109. mál, sýsluvegasjóðir

Frsm. (Sigurður Ó. Ólafsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir til 2. umr., er um breyt. á l. um sýsluvegasjóði. Hefur samgmn. þessarar hv. d. haft þetta frv. til athugunar og sent það vegamálastjóra til umsagnar og fengið svar frá honum.

Sýsluvegasjóðir eru stofnaðir með lögum nr. 102 19. júní 1933 í þeim tilgangi að standa undir nýbyggingu og viðhaldi á sýsluvegum landsins. Fjár til sjóðanna er aflað á þann hátt, að sýslunefndir leggja skatt á fasteignir í viðkomandi sýslu, hundraðsgjald eftir fasteignamati eignanna, og leggur ríkissjóður fé á móti þannig fengnum heimatekjum að vissu hámarki og eftir þeim reglum, sem lögin ákveða. Vilji sýslunefndir hækka heimatekjur sjóðanna fram yfir það hámark, sem nú gildir, leggur ríkissjóður ekkert á móti því, sem fram yfir hámarkið er. Að þessu leyti eru tekjumöguleikar sýsluvegasjóðanna bundnir, svo að í mörgum sýslum hrekkur fé þeirra ekki nærri til að svara fjárkröfum þeim, sem til þeirra eru gerðar. Kemur þar til, að kostnaður við vegalagningar hefur vaxið ár frá ári, en mat fasteigna er óbreytt um lengri tíma, og þar af leiðandi standa tekjur sjóðanna í stað þrátt fyrir auknar þarfir. Vegunum er illa haldið við og nýbyggingar af skornum skammti. Þeir, sem við ófullnægjandi samgöngur búa, eiga við margfalda erfiðleika að stríða á móti starfsbræðrum sínum, sem betur eru settir hvað þetta snertir, og kallar þetta allt á örari framkvæmdir, en mögulegt er að standa undir eins og er.

Þetta frv. á þskj. 145 fer fram á að þrefalda álagningarheimild sýslunefndanna. Í svari sínu til nefndarinnar upplýsir vegamálastjóri, að hluti ríkissjóðs til sýsluvega muni á þessu ári, þ.e. síðast liðnu ári, verða um 1 millj. kr. Hann mælir á móti því, að frv. verði samþ. óbreytt, en viðurkennir aukna fjárþörf sýsluvegasjóðanna og leggur til, að lögfest verði að heimila sýslunefndum að innheimta vegaskatt fyrir eitt ár í senn með allt að 50% álagi. Mundi þessi hækkun hafa það í för með sér, að vegaskatturinn hækkaði heima fyrir um allt að 300 þús. kr., en framlag ríkissjóðs gæti hækkað um allt að 500 þús. kr., hvort tveggja miðað við, að allar sýslur, þar sem nú eru sýsluvegasjóðir, notuðu heimildina að fullu.

Eftir að samgmn. hafði athugað frv. þetta og fengið svar og umsögn vegamálastjóra, varð hún sammála um að leggja til, að frv. yrði samþ. með þeirri breyt., sem segir á þskj. 462. Hún er á þá leið, að í stað þess, að í 1. gr. frv., eins og það er upphaflega, segir, að „í stað orðanna „12 af þúsundi“ í niðurlagi 1. gr. laganna komi: 36 af þúsundi“, komi bráðabirgðaákvæði, sem verður 1. gr., sem orðast þannig:

„Aftan við lögin komi svo hljóðandi bráðabirgðaákvæði: Heimilt er sýslunefndum, þar til nýtt fasteignamat hefur farið fram, að ákveða fyrir eitt ár í senn að innheimta vegaskatt til sýsluvegasjóða með allt að 50% álagi. Framlag ríkissjóðs til sjóðanna hækkar í sömu hlutföllum.“

Nefndin væntir þess, að hv. dm. geti fallizt á þetta sjónarmíð og þannig hjálpað hinum ýmsu héruðum til að bæta samgöngurnar. Og um leið og þetta er framlag úr ríkissjóði, þá fylgir framlag heima fyrir, sem viðkomandi aðilar leggja á sig sjálfir.