23.01.1953
Neðri deild: 56. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1253 í B-deild Alþingistíðinda. (1756)

109. mál, sýsluvegasjóðir

Frsm. (Ásgeir Bjarnason):

Herra forseti. Það frv., sem hér er til umr., er fram komið í hv. Ed., og samgmn. þeirrar d. athugaði það og breytti því til samræmis við þær till., sem vegamálastjóri kom með varðandi það, er hann fékk frv. til umsagnar. Ef frv., eins og það var lagt fyrir hv. Alþ., hefði náð fram að ganga óbreytt, mundu fjárframlög ríkisins til sýsluvegasjóða þrefaldast frá því, sem þau voru áríð sem leið, en þá voru þau um 1 millj. kr. Fyrir um það bil einu ári voru teknir nýir vegir í þjóðvegatölu um það bil 900 km, og þessir vegir voru að mestu leyti sýsluvegir áður, svo að það er ekki ástæða nú til að auka framlög til sýsluvegasjóða að miklum mun fram yfir það, sem nýbyggingarfé þjóðvega er aukið. En það hefur engan veginn verið aukið nú til samræmis við þá aukningu, sem varð á lengd þjóðvega árið sem leið.

Samgmn. lítur svo á, að þetta frv., eins og það nú er, sé sanngjarnt, og mælir hún með samþykkt þess. En frv., eins og það ber með sér, er um heimild fyrir sýslunefndir að ákveða fyrir eitt ár í senn að innheimta vegaskatt til sýsluvegasjóða með allt að 50% álagi, og skal framlag ríkissjóðs hækka í sömu hlutföllum, en verði fasteignamat hækkað, þá fellur þessi heimild niður, svo að þetta er aðeins bráðabirgðaákvæði. Það er því sjálfsagður hlutur að veita þeim, er þurfa og vilja, þessa heimild, því að allir vilja góða, akfæra vegi, hvar sem þeir eru annars búsettir í landinu. — Ég vil aðeins geta þess, að einn nm., hv. 2. landsk. þm., var ekki viðlátinn, þegar n. hélt fundinn, en aðrir nm., eins og ég hef áður um getið, mæla einróma með, að frv. verði samþ.