06.11.1952
Neðri deild: 21. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 99 í B-deild Alþingistíðinda. (178)
2. mál, bann gegn botnvörpuveiðum
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Ég hef að sjálfsögðu ekkert við það að athuga, þó að því væri skotið til hinna kunnugustu manna, eins og t.d. fiskimálastjóra, hvort það mundi ekki að ósekju mega haga lagasetningu þessari á þann veg, að íslenzkum vélbátum væri heimilt að stunda þessa veiði, og ég trúi því ekki, að niðurstaða þeirra færustu sérfræðinga ríkisstj. yrði á aðra lund en þá, að það væri að öllu leyti óhætt og að minnsta kosti algerlega að ósekju gagnvart Bretum, þó að við notuðum þessi verðmæti inni á fjörðum hér við okkar strendur. Ég varð þess var, að það átti að einhverju leyti að afsaka þennan drátt með því, að okkur væri lífsnauðsyn að fara varlega, meðan þessi deila gagnvart Bretum út af landhelgisbreytingunni, væri svo viðkvæm. En ég fékk þó enga skynsamlega niðurstöðu í því máli. Það hafði þó einum vélbát verið heimilað að stunda þessa veiði, og þar með hafði sannazt, að með þessu var hægt að fá nokkur útflutningsverðmæti og skapa töluverða, alveg óvenjulega vinnu í raun og veru, að því er snerti það veiðimagn, sem þarna var um að ræða. Þess vegna gat ég ekki séð, að við stofnuðum okkur í neina hættu gagnvart Bretum, þó að leyft væri tveimur smábátum í viðbót að stunda sams konar veiði og þarna hafði verið leyfð einum. Og ég verð að segja það, að þar sem þessi veiðiskapur hafði þó verið leyfður innan þriggja mílna landhelginnar, þá hlutum við að líta svo á, að okkur væri heimilt að stunda sams konar veiði innan þeirrar nýju landhelgislínu, — og það var þó að minnsta kosti hægt að fá leyfi innan þriggja mílna línunnar gömlu. Og ég verð að segja það, að hvort sem við deilum við Breta um þetta mál eða við aðrar þjóðir um önnur mál, þá er þó myndarlegra að haga sér eins og frjáls maður gagnvart þeim, en ekki eins og þræll.