11.12.1952
Efri deild: 38. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1263 í B-deild Alþingistíðinda. (1796)

171. mál, eftirlit með opinberum sjóðum

Frsm. (Páll Zóphóníasson):

Herra forseti. Þetta mál er nú gamalkunnugt hér í d. í raun og veru. Fyrst og fremst er það gamalkunnugt af því, að fyrir nokkrum árum, þegar hér var verið að ræða um sölu þjóðjarða og flutt um það frv., þá bætti ég við einni jörð, sem var kristfjárjörð, og tók fram, að ég gerði það nú til prófs og til að heyra álit manna um það, hvort leyfilegt væri að selja þær jarðir. Það kom þá í ljós, að menn höfðu dálítið skiptar skoðanir um þetta og ýmsir töldu, að það væri að minnsta kosti mjög varhugavert að breyta skipulagsskrám þeirra sjóða, sem ættu jarðir, sem ætti að verja leigunni af í einhverju ákveðnu augnamiði.

Þær umr., sem þá spunnust um þetta mál, urðu svo til þess, að samþ. var till. um það, að rn. léti athuga, hvernig þessum jarðeignum, sem kallaðar eru kristfjárjarðir sumar og sjóðajarðir aðrar, væri varið og hvernig stæði með skipulagsskrár eða gjafabréf, er þeim fylgdu. Sú rannsókn hefur nú tekið nokkuð langan tíma, og meðan á henni stóð varð hæstv. dómsmrh. fyrir því að komast í vandræði með nokkrar jarðir, sem voru gjafasjóðsjarðir norður í Eyjafirði af gjöf Jóns Sigurðssonar, og fékk óskir um það frá bæjarfógetanum á Akureyri og sýslumanninum í Eyjafjarðarsýslu, að það yrði eitthvað gert í þessu, því að það væri ekki hægt að hafa ástandið eins og það væri, sjóðurinn næði ekki sínu hlutverki og því yrði að breyta þessu eitthvað. Hann lagði þá fram frv., sem kom hér fyrir Alþ., og í svipuðu formi var nú frv. það, sem við 1. þm. Eyf. fluttum nú. Og nú var orðin sú breyt. á, að fyrir lá skýrsla frá félmrn. um þessar jarðir. Nú vil ég þó segja það um þá skýrslu, að hún er ekki rétt. Það vantar bæði inn í hana jarðir, sem þar ættu að vera, og það eru gefnar rangar upplýsingar um aðrar jarðir, sem þar eru, ekki að því leyti, að þær séu ekki eign þessa og þessa sjóðs, heldur rangar upplýsingar hvað snertir byggingu þeirra, hýsingu og það ástand, sem þær núna eru í. Ég skal ekki fara út í að leiðrétta það, það kemur ekki beint þessu máli við. Mennirnir, sem þetta hafa gert í stjórnarráðinu, hafa ekki gengið nógu ríkt fram í því að fá þær upplýsingar réttar, og þess vegna eru þær það ekki. En það kemur þó fram í þeirri skýrslu greinilega, að það eru ýmsar af þessum sjóðajörðum, sem þannig er ástatt um, að það er algerlega óviðunandi. Á einni sjóðjörðinni, sem er t.d. byggð til 10 ára, svo að ég nefni dæmi, var leyft að taka lán til að byggja upp íbúðarhúsið, gamlan torfbæ, sem var algerlega fallinn. Það lán var tekið. Nú neitar ábúandinn að borga annað en vexti af þessu láni, því að hann búi ekki að þessu nema í 10 ár, og sjóðurinn hefur ekki fé til að borga afborganirnar, og liggur eiginlega nánast fyrir, að sjóðjörðin verði tekin og seld á opinberu uppboði eftir kröfu lánsfjárstofnunar, sem láníð veitti. Aðrir jarðir er þannig ástatt með, að það er ómögulegt að sjá, hvernig ábúðarspursmálið á þeim á að leysast, þegar þeir menn, sem nú búa á jörðunum, falla frá, og á einni þeirra t.d. býr gömul ekkja, sem enga erfingja á. Þar er búið að leggja í byggingar og ræktun geysilega mikið fé. Eftir ábúðarlögunum er jarðareigandinn skyldugur til að kaupa þessar umbætur því verði, sem úttektarmenn hreppsins meta þær, þegar þessi ekkja deyr. Jarðareigandinn er jörðin. Það er jörðin, sem á að kaupa, og hún á ekki einn eyri. Hún getur ekkert keypt. Hvernig á að fara með það? Það hefur enginn getað svarað mér enn, og þar liggur ekkert annað fyrir, en að selja jörðina, og í þessu tilfelli á afgjaldið af jörðinni að renna til styrktar fátæku barni í einhverjum af nokkrum hreppum, sem tilteknir eru í gjafabréfinu. Yrði jörðin seld, sem ég tel rétt, gætu náttúrlega runnið til barnsins vextir af þeim höfuðstól, sem jörðin selst fyrir. Afgjaldið af þessari jörð er sáralítið, það er innan við 100 kr. Hvað hún selst fyrir núna, veit ég ekki, en hún selst fyrir töluvert miklu meira, en höfuðstól, sem svarar til eftirgjaldsins. Það er alveg vist, eins og núna er. Svona er það með þær fleiri. Þess vegna höfum við flutt þetta frv. upprunalega.

Nefndin hefur komizt að þeirri niðurstöðu, að það sé sjálfsagt að mæla með frv., en hún breytir því nokkuð. Hún ætlast til þess, að það hvíli undir ráðherra að taka ákvarðanir um það, hvort aðstæður í þjóðfélaginu séu orðnar það breyttar, að nauðsyn krefji, að þessar jarðir séu seldar. Ef þeim, sem hefur umráð viðkomandi sjóðs, virðist ástæðurnar vera það breyttar, að nauðsyn sé til þess, þá getur hann sótt um það til ráðherra, að gerð sé breyting á skipulagsskránni, og þá er ætlazt til þess, að ráðherra leiti til eftirlitsmanna opinberra sjóða, sem eru 3 og eiga að hafa þekkingu og kunnugleika á þessu, fái umsögn þeirra um málið og að henni fenginni breyti þá skipulagsskránni eftir því, sem honum þykir nauðsyn bera til. En frv. gerir ráð fyrir því, að alltaf sé skipulagsskránni breytt eins lítið eins og hægt er og ekki nema því aðeins, að knýjandi nauðsyn sé til.

Nú hagar þannig til með sumar af þessum sjóðajörðum eða kristfjárjörðum, að umráðamaðurinn yfir þeim er bara einn. Það er t.d. prófasturinn í Borgarfjarðarsýslu, sem er yfir einni, sýslumaðurinn í Skagafjarðarsýslu yfir annarri o.s.frv., og þessir menn hafa vissan hluta af afgjaldi jarðarinnar fyrir að sjá um byggingu jarðarinnar, fjórða part t.d. í Borgarfirðinum o.s.frv. Þess vegna er n. alls ekki viss um það, að þessi eini maður, — ég á þar hvorki sérstaklega við prófastinn í Borgarfjarðarsýslu, sem nú er, né sýslumanninn í Skagafjarðarsýslu, — þessi eini maður, hver sem hann er, sem hefur umráð jarðarinnar og alltaf fær á þurru landi fjórða partinn af afgjaldinu fyrir að sjá um byggingu jarðarinnar, sem reyndar ekkert þarf að sjá um, því að þær eru byggðar til lífstíðar, báðar þessar jarðir, sem hér er um að ræða, — við erum ekki vissir um, að hann — hver sem hann er finni ástæðu til þess að fara að breyta þessari skipulagsskrá, sem þá leiðir til þess, að hann mundi afsala sér þessum tekjum, þó að þær séu ekki miklar, en tekjur, sem hann fær á þurru landi — fyrirhafnarlaust. Þess vegna höfum við sett inn í frv. ákvæði, að ef hreppsnefnd í þeim hreppi, sem jörðin liggur í, eða sýslunefnd eða hreppsnefnd í þeim hreppum, sem eiga að njóta vaxtanna af sjóðnum, finnst ástæða til að breyta skipulagsskránni, þá geti þær líka tekið upp beiðni um það. Það getur þess vegna komið til ráðuneytisins bæði frá sjóðsstjórninni og líka frá hreppsnefndum eða sýslunefndum ósk um að breyta skipulagsskránni, og í báðum tilfellum er ætlazt til, að þá séu eftirlitsmenn opinberra sjóða að spurðir og leitað álits þeirra og ef hæstv. ráðh. þá finnur ástæðu til að breyta skipulagsskránum, þá sé þeim breytt.

Það er meira að segja dálítil spurning, hvort það er ekki ástæða til að leyfa að breyta skipulagsskránum frekar en hér er gert ráð fyrir.

Hér er nú aðallega gert ráð fyrir því, að þeim sé breytt að því leyti, að eignunum sé öðruvísi komið fyrir — öðruvísi ávaxtaðar, en það er dálítil spurning, hvort ekki getur stundum verið ástæða til þess að breyta þeim beinlínis með tilliti til þess, til hvers á að nota vextina af sjóðnum. Út í það höfum við nú ekki farið. Þó vil ég nú ekki segja nema þannig megi skýra, að sú breyt. geti legið í því líka, orðalagið „vegna breyttra aðstæðna og viðhorfa“, þó að við höfum ekki beint hugsað það svo. Það er náttúrlega engin ástæða, þegar tryggingarnar eru komnar og þegar eftirlaunin koma til allra gamalmenna, til að hafa sérstakan sjóð, sem tekur eitt gamalmenni upp á sínar herðar. Ríkið er búið að gera hlutverk þess sjóðs óþarft í raun og veru. Svoleiðis er það með suma af þeim, en það spursmál er þó látið liggja að öðru leyti en því, að það mætti ef til vill heimfæra það undir síðustu ákvæði greinarinnar eins og við orðum hana, þó með dálitlum teygingi, — þegar það er ákaflega áberandi, að þörfin fyrir sjóðinn sé orðin lítil eða engin, þá mætti teygja það á þann hátt. Það er t.d. sjóður í Eyjafirðinum, sem er nokkuð stór, nokkuð margar jarðir, gjafasjóður Jóns Sigurðssonar frá Böggvisstöðum, sem á að vera til þess að afstýra harðindum, hlaupa undir bagga, þegar allsherjar harðindi eru. Þó að sjóður gefi af sér t.d. 2000–3000 kr., sem voru miklir peningar þegar gjöfin var gefin, og þó að ætti nú að nota hann til þess að afstýra almennum harðindum í Eyjafirði, þá náttúrlega hrekkur hann ekki nokkurn skapaðan hlut, ef harðindi eru. Það má kaupa fyrir það 20 heyhesta. Það má náttúrlega deila um það, hvort hann getur uppfyllt sitt hlutverk núna og hvort ekki sé ástæða til að breyta skipulagsskránni hvað þetta snertir. Svipað má segja um marga sjóði. Hitt er miklu síður hægt að deila um, þegar um er að ræða sjóði, sem eiga að taka að sér forsorgun gamalmenna og barna, sem hið opinbera er búið að taka að sér að verulegu leyti. Skipulagsskrám þeirra ætti að breyta.

Við leggjum til, að frv. verði samþ. með þeirri breyt., sem er á þskj. 409 og ég nú hef útskýrt.