15.12.1952
Efri deild: 40. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1270 í B-deild Alþingistíðinda. (1806)

171. mál, eftirlit með opinberum sjóðum

Þorsteinn Þorsteinsson:

Herra forseti. Það var út af því, sem hv. þm. Barð. skaut hér fram um það, að eftirlit sjóðanna hvíldi aðallega á einum manni af þremur. Það er í raun og veru rétt, að formaðurinn hefur framkvæmd þessara starfa aðallega, en aftur á móti höfum við tveir, sem nú höfum einnig verið eftirlitsmenn sjóðanna um skeið, líka unnið með honum og höfum haldið fundi saman og höfum athugað um ýmis mál og tekið ákvörðun um það, hvernig leita skuli gagna til að vinna úr og safna skýrslum, og yfirleitt hafa störfin verið borin undir okkur nm., en ég játa það, að við höfum ekki verið taldir nema hálfir menn á móti formanninum, a.m.k. ekki hvað laun snertir. Við höfum haft að launum, ef ég man rétt, 400 kr. grunnlaun á ári, svo að yfirleitt eru þetta ekki stórar fúlgur, en það þótti, þegar sett voru á stofn þessi lög, rétt, að það væru fleiri til eftirlits um að athuga um þessa sjóði og gera ákvörðun um þá,því að það gæti farið svo, eins og víða er, að betur sjá augu en auga, og þar sem fúlga sú, sem veitt var þá, var ekki nema örlítill hluti af launum eins manns, — öll fúlgan til okkar þriggja, þá var ekki talin ástæða til annars en meginflokkarnir gætu yfirleitt fylgzt með málunum og látið sína menn vera að þessu starfi hver um sig. Ég held, sannast að segja, að það fyrirkomulag sé heppilegt. Ég get búizt við því, að ég fari hvort eð er úr þessari sjóðsstjórn núna, en mér er ekki ósárt um það, að þetta fari sæmilega úr hendi, og þess vegna vildi ég telja það, að það væri ekki heppilega til stofnað, þegar ekki er meira í húfi hvað fé snertir, að fara að fækka þessum mönnum. Þetta hefur gengið vel sameinað og verið reynt að vinna samvizkusamlega og unnið þar í fullkominni sameiningu, og ég er í vafa um, hvort það yrði breytt til batnaðar að fara á annan hátt í þetta mál. En annars skal ég ekki meira segja um þetta efni.