16.12.1952
Neðri deild: 41. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1278 í B-deild Alþingistíðinda. (1816)

171. mál, eftirlit með opinberum sjóðum

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég vil benda hv. þm. Borgf. á, að það mundi vera hægt að leysa þessi vandamál ábúendanna með því einfaldlega t.d. að leiða í l., að ríkissjóður skuli vera ábyrgur gagnvart landsetum kristfjárjarða um þær skyldur, sem samkvæmt l. hvíli á jarðeigendum. Slík l. getum við vel sett. Við getum ákveðið, að ríkissjóður sjái um þær skuldbindingar, sem jarðeigandi í þessu tilfelli ætti að hafa gagnvart landseta. Við getum alveg leyst spursmálið þannig. Ég er honum fyllilega sammála um, að við þurfum að breyta til um aðbúnað þessara landseta. Við þurfum að sjá um, að þessar jarðir séu í rækt áfram, við þær unnið og á þeim búið og þær fari ekki í eyði. En ég held, að það sé bara hægt með þessu móti, að ríkissjóður komi þarna alveg í staðinn fyrir jarðeigandann. Og það mætti nú gjarnan setja ákveðnari ákvæði þannig, að ríkissjóður rækti betur sínar skyldur en hann gerir þar, sem hann er landsdrottinn nú, sem ég veit að er vissulega mjög ábótavant. En þetta finnst mér vera á okkar valdi og rétt að gera.

Hv. þm. Borgf. talaði um, að það væri langbezt að koma þessu í sjóð. Ég vil aftur minna á, að þessi hugmynd var uppi á fyrri hluta þessarar aldar, að setja jarðeignirnar í peninga. Það eru vafalaust til mörg dæmi um, að jarðir eða hús og lóðir, sem gefnar hafa verið til góðra stofnana, hafa verið settar í peninga. Mér hefur verið sagt frá slíkri eign, sem sett var í peninga 1914, 100 þús. kr. þá. Þið getið nærri, hvað er orðið úr því nú. Það er alveg sama, hvað við tökum. Ef breytt hefur verið eignum, sem voru stóreignir í byrjun þessarar aldar eða í lok síðustu aldar, í peninga, þá er það orðið svo að segja ekki neitt nú. Ef það fær að halda sér sem jarðir, sem hús, sem lóðir, þá er það stórfé. Og ég vona, að við trúum því allir, að okkar land eigi eftir að byggjast miklu, miklu meira en það hefur verið byggt núna, að fólkinu eigi eftir að fjölga það mikið í því, að fjöldinn af þeim jörðum, sem nú eru í eyði, eigi eftir að byggjast aftur, þéttbýli eigi eftir að vaxa ákaflega mikið hér í okkar landi. En það þýðir um leið, að allt hlutfall um jarðaverð breytist. Og ég álít, að það sé rétt af okkur að gera þær ráðstafanir, að við björgum þessum fáu jörðum, sem eftir eru og hafa nú staðið af sér allar tilhneigingar á þeim fimm, sex, sjö öldum, siðan þær urðu til, — að við reynum að bjarga þeim út úr þessari löngun til að breyta þeim í peninga núna, sem glata sínu verðmæti tiltölulega fljótt.

Ég mundi svo fyrir mitt leyti vilja gera það að minni tillögu, að þetta frv. færi til fjhn.