30.01.1953
Efri deild: 59. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1307 í B-deild Alþingistíðinda. (1869)

151. mál, málflytjendur

Guðmundur Í. Guðmundsson:

Herra forseti. Það hefur löngum verið talsvert átakamál á meðal lögfræðinga, hvaða skilyrðum þyrfti að fullnægja til þess að öðlast rétt til málflutnings fyrir hæstarétti og jafnvel fyrir undirrétti líka. Þetta er gamalt átaka- og deilumál milli málfærslumanna, sem þeir þekkja mjög vel, sem við málfærslustörf hafa fengizt.

Þeir, sem hafa öðlazt rétt til málfærslu fyrir hæstarétti, hafa allajafna haft til þess ákaflega mikla tilhneigingu að reyna að halda dyrunum

sem allra mest lokuðum fyrir þeim, sem hafa viljað fá þessi réttindi líka, en ekki verið búnir að öðlast þau. Hins vegar hafa aðrir lögfræðingar, sem ekki hafa verið orðnir málfærslumenn við hæstarétt, sótt mjög stíft á um að fá skilyrðin til málfærslunnar alltaf rýmkuð meira og meira, til þess að þeir gætu öðlazt málfærsluréttinn sem allra fyrst. Þessi átök málfærslumannanna hafa út af fyrir sig verið að langmestu leyti atvinnusjónarmið þeirra, sem mjög auðvelt er að skilja. En þegar hv. Alþ. og löggjafarvaldið eru að gera upp fyrir sér, hvaða reglur eigi að gilda um það, að menn öðlist rétt til málfærslu við hæstarétt og fyrir undirrétti, þá er að sjálfsögðu ekki hægt að byggja á þessum sjónarmiðum, a.m.k. ekki nema að hverfandi litlu leyti.

Ég hef oft orðið þess var, að menn virðast standa í þeirri trú, að það skipti ekki verulegu máli fyrir allan almenning, hvernig málfærslumennirnir, sem málin eiga að flytja fyrir réttinum, séu menntaðir og undirbúnir til sinna starfa. En þetta er hinn mesti misskilningur. Þeir, sem við málfærslu og dómarastörf hafa fengizt, þekkja það mjög vel, að það er ákaflega þýðingarmikið atriði fyrir allan almenning, sem til málfærslumanna þarf að leita, að þeir séu vel hæfir, vel menntaðir og hafi góða reynslu til brunns að bera til málfærslustarfanna. Sá, sem til málfærslumanns þarf að leita og verður að treysta á hann svo til algerlega í blindni. á miklu meira í húfi um það, hvernig málfærslumaðurinn heldur á því máli, sem honum er trúað fyrir, heldur en allur almenningur í raun og veru gerir sér grein fyrir. Og maður hefur því miður horft á það hvað eftir annað, að tjón hefur verið unnið og óhapp hefur skeð vegna þess, að ekki hefur verið haldið þannig á réttum málstað sem skyldi.

Það er þess vegna raunverulega ákaflega þýðingarmikið, að löggjafarvaldið og það opinbera tryggi það vel og örugglega, að almenningi sé ekki vísað á menn til málfærslustarfa og réttargæzlu, sem almennt séð er ekki hægt að treysta að hafi þá þekkingu og þá reynslu til brunns að bera, sem nauðsynleg er til þess, að þeim sé fyrir málum trúandi.

Í þessu frv., sem hér liggur fyrir, var upphaflega, eins og það kom fram í Nd. og eins og það kom til þessarar hv. d., að mínu viti gengið allt of langt í þá átt að opna fyrir réttindi manna til málfærslu. Í frv. var upphaflega raunverulega ekki farið fram á annað en það, að maður hefði flutt mál um vissan tíma og vissa tölu mála til þess að geta öðlazt réttindi til málfærslu fyrir hæstarétti.

Nú vita þeir, sem þessum málum eru kunnugir, ákaflega vel, að fjöldi mála, sem einn málfærslumaður hefur flutt, segir nákvæmlega ekkert um hæfni mannsins. Það er hægt að flytja 60–70 mál á einum degi, án þess að sá, sem hefur flutt þau mál, geti með nokkru móti haft tækifæri til þess að sýna hæfni sína til þess að vera málfærslumaður og fara með vandasöm mál. Þetta þekkir maður ákaflega vel, þannig að fjöldi málanna einn út af fyrir sig er ekki neinn mælikvarði á þekkingu og hæfni þess manns, sem leitar eftir því að fá réttindi til málfærslu fyrir hæstarétti. Þar þarf að koma annað og meira til.

Hv. allshn. þessarar d. hefur þess vegna tekið þetta atriði til endurskoðunar, og hún hefur dregið úr því mjög verulega, þannig að fjöldi málanna og tíminn er ekki einn fullnægjandi til þess, að maður geti öðlazt rétt til málfærslu við hæstarétt. Heimildin, þegar þannig stendur á, er eingöngu bundin við það, að viðkomandi hafi flutt málið sjálfir fyrir undirrétti. Þetta út af fyrir sig er ekki heldur að mínu viti fullnægjandi mælikvarði. Það eina, sem mér finnst liggja nægilega til grundvallar því, að hægt sé að ganga inn á þessa rýmkun, er það, að hæstiréttur hefur fullt vald til þess að svipta menn rétti til málflutnings í framtíðinni, þó að þeir hafi flutt þennan ákveðna málafjölda fyrir undirrétti og þó að um eigin mál sé eingöngu að ræða, ef viðkomandi maður sýnir það í málfærslu fyrir hæstarétti, að hann er þess ekki umkominn að fara þar með mál. Það er eingöngu þetta ákvæði, þessi varnagli, sem þarna er í frv., sem hefur komið mér fyrir mitt leyti til þess að fallast á þessa breytingu eins og hún liggur hér fyrir. — Þetta vildi ég mjög greinilega láta koma hér fram.

En það er ekki fullnægjandi, að sett séu ákvæði um það, með hverjum hætti menn geti öðlazt réttindi til málfærslu fyrir hæstarétti. Það er ekki fullnægjandi, að það séu sett skilyrði um þetta í upphafi. Það þarf líka að gæta þess vandlega, að málfærslumaðurinn, eftir að hann hefur öðlazt þessi réttindi, fyrirgeri þeim ekki. Í því sambandi vil ég sérstaklega benda á, að í 12. gr. l. um hæstarétt er svo ákveðið, að hæstaréttarlögmenn þurfi að hafa opna skrifstofu í Reykjavík. Það er eftir því gengið, þegar menn fá leyfi til málfærslunnar, að þeir hafi þessa skrifstofu opna. Það á að vera eftirlit með því, að þeir hafi þessa skrifstofu opna áfram, og ef þeir ekki gera það, þá eiga þeir að hafa fyrirgert rétti til málfærslu fyrir hæstarétti. Þetta ákvæði var upphaflega tekið upp í l. til þess að tryggja það, að öruggt væri, að sá, sem ætti að hafa rétt til málfærslu fyrir hæstarétti, væri raunverulega í starfi og í æfingu við starfið, en legði það ekki til hliðar og þetta væri bara að nafninu til í framtíðinni. Þetta er líka tekið upp til þess, að almenningur geti haft aðgang að þeim málfærslumönnum, sem við réttinn eiga að starfa.

Nú er mér ekki fullkomlega ljóst samkvæmt þessum l., hvort það er hæstiréttur eða dómsmrn., sem á að hafa eftirlit með því, að þeir menn, sem eru starfandi málfærslumenn við hæstarétt, hafi raunverulega opnar skrifstofur sem málfærslumenn. Og ég hafði hugsað mér, og til þess tók ég aðallega til máls hér, að bera fram þá fyrirspurn við hæstv. dómsmrh., hvort hann liti svo á, að það væri hlutverk hæstaréttar eða dómsmrn. að líta eftir því, að þessir málfærslumenn, sem eru starfandi eða eiga að heita starfandi við hæstarétt, hafi raunverulega opna skrifstofu eða ekki. Og ef hæstv. ráðh. skyldi líta svo á, að það sé dómsmálaráðuneytisins að fylgjast með þessu, þá vildi ég einnig spyrja hæstv. ráðh., með hverjum hætti þetta eftirlit sé og hvort eftir því sé gengið, að ef málfærslumennirnir hafi ekki raunverulega opna skrifstofu, þá sé málfærsluleyfið af þeim tekið. Ég hef orðið þess var, að það er nokkur vafi á því, að ýmsir þeir, sem teljast nú hæstaréttarmálafærslumenu og eru nú starfandi við réttinn, hafi raunverulega opna skrifstofu í skilningi ákvæðis 12. gr. hæstaréttarl.

Um þetta atriði vildi ég spyrja hæstv. dómsmrh. og gjarnan fá greinilega fram hér, hvernig hann lítur á þetta mál, því að það er, eins og ég sagði áðan, að sjálfsögðu ekki aðeins þýðingarmikið að hafa ákveðin ströng skilyrði, sem menn þurfi að uppfylla, áður en þeir öðlist rétt til þess að vera málfærslumenn við hæstarétt, heldur þarf líka að fylgjast með því eftir á, að öllum þessum skilyrðum sé vendilega fullnægt. — Ég vil því leyfa mér að beina þessari fyrirspurn til hæstv. dómsmrh., ef hann skyldi vera viðbúinn að svara henni. Vera má, að hann þurfi e.t.v. að athuga málið nokkuð, áður en hann getur svarað.