20.01.1953
Efri deild: 52. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1325 í B-deild Alþingistíðinda. (1889)
203. mál, klakstöðvar
Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):
Herra farseti. Ég tel það í raun og veru óþarft hér að ræða um þá brtt., sem n. hefur lagt nú fram við þetta frv., því að það var þegar við 1. umr. rætt um allar þær brtt., sem hér liggja fyrir, nema lauslega um eina brtt., þá að færa tölu laxaseiðanna upp í 3 millj. úr hálfri þriðju millj., og er það gert vegna þess, að bætt var þarna inn í, að í staðinn fyrir laxaseiði er sett lax- og silungsseiði. Við það verður klakið yfirgripsmeira, og því þótti rétt að hafa fjöldann heldur meiri, en annars hefði verið.
Í 2. brtt. er því breytt þannig, að það verði kostnaðarverð, sem seiðin verða seld á, í staðinn fyrir að áður var ákveðið hámark á því, sem var 8 kr. þúsundið, sem sýnist vera nú langt fyrir neðan sannvirði, og við vitum ekki heldur um það, hvað kann enn að hækka verð á framleiðslu þessara fiskseiða. Því þótti rétt að binda það ekki við neinn ákveðinn krónufjölda, heldur hafa það þannig laust og óbundið, að það væri sanngjarnt kostnaðarverð, sem væri sett.
Af því að þetta mál var rætt hér allrækilega við 1. umr., sé ég ekki ástæðu til þess að fara frekar að ræða um það nú hér. Og þessar brtt., sem hér liggja fyrir, voru áður ræddar allmjög.