24.11.1952
Efri deild: 30. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 102 í B-deild Alþingistíðinda. (190)
2. mál, bann gegn botnvörpuveiðum
Frsm. (Steingrímur Aðalsteinsson):
Herra forseti. Frv. þetta, sem hér liggur fyrir, er flutt til staðfestingar á brbl., sem gefin voru út 30. apríl s.l. Og tilefnið til þeirrar breyt., sem þótti nauðsynlegt að gera á l. um bann við botnvörpuveiðum, voru þær breyt., sem gerðar hafa verið á sjálfri landhelginni með reglugerðinni, sem gefin var út um það efni 19. marz 1952. Breytingarnar, sem felast í þessu frv., eru á 1. gr. laganna frá 18. maí 1920. Í 1. mgr. þessarar 1. gr. er tekið upp efni þeirrar greinar, þ.e.a.s. algert bann, sem þá var sett við botnvörpuveiðum í landhelgi, en á þessu er hins vegar gerð sú breyting, að til viðbótar við að banna þessar veiðar með botnvörpu er einnig lagt bann við því að veiða í landhelginni með flotvörpu, og er það auðvitað vegna þess, að nú nýlega hefur það veiðarfæri verið tekið upp,og vantaði þess vegna af þeirri ástæðu ákvæði um það í eldri lögin. Að öðru leyti er ekki breytt þessari 1. gr. eidri laganna, nema að því, sem kemur til þess, að landhelgin hefur verið færð út. En síðan eru í framhaldi af þessari 1. gr. þessa frv., sem nú liggur fyrir, gerðar nokkrar undanþágur frá þessu banni. Í 2. mgr. er tekin upp undanþága, sem veitt var með l. nr. 56 23. júní 1936, um að leyfa kampalampaveiðar og leturhumarveiðar á tilteknum svæðum með venjulegri kampalampavörpu og leturhumarvörpu. Þetta ákvæði hygg ég að sé tekið upp alveg óbreytt frá því, sem var í þessum l. frá 1936, en þau eru aftur felld niður samkv. fyrirmælum í 2. gr. þessa frv. Við þetta hefur svo aðeins verið bætt því, að áður en sú undanþága, sem hér er rætt um, er veitt, þá skuli leita um það álits Fiskifélags Íslands. Þessi breyt. eða þessi viðbót var sett inn í frv. í hv. Nd. Og n. taldi rétt, að þessi fyrirvari væri settur eða þetta skilyrði fyrir því, að undanþágan yrði veitt. Nú, síðan eru í 1. gr. þessa frv. tekin upp ákvæði, sem sett höfðu verið með l. nr. 34 13. júní 1936, þar sem Síldarverksmiðjum ríkisins hafði verið gefin heimild til þess að gera tilraunir til að veiða síld í botnvörpu inni í fjörðum og flóum. Þetta ákvæði er hér tekið upp með þeirri breytingu, að heimild er veitt til þess að leyfa síldveiði í landhelgi með flotvörpu. Eins og hv. þm. er kunnugt um, þá hafa menn gert sér vonir um það, að hægt mundi að veiða síld með þessu nýja. veiðitæki, þ.e. flotvörpunni, þó að á það sé ekki komin nein reynsla, og því hefur verið talið rétt að hafa slíka heimild í lögum. Og breytingin á þessu er aðelns sú, að í staðinn fyrir, að áður var heimild til þess að leyfa tilraunir til síldveiða með botnvörpu, þá er það nú leyft með flotvörpu. — Aðrar breytingar held ég, að ekki felist í því frv., sem hér liggur fyrir. Það er sem sé búið að ganga í gegnum hv. Nd., og sjútvn. þessarar d. hefur orðið sammála um að leggja til, að það verði samþ. hér óbreytt, eins og það liggur fyrir á þskj. 236.