10.11.1952
Neðri deild: 23. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1332 í B-deild Alþingistíðinda. (1911)

121. mál, sjúkrahús o. fl.

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af lagaskýringu hv. síðasta ræðumanns. Ég er hérna með lögin með mér, og það stendur hérna alveg skýrum stöfum, eins og lagagreinin hljóðar:

„Ríkissjóður greiðir bæjarfélögum allt að 2/5 kostnaðar, en öðrum sveitarfélögum allt að 2/3 kostnaðar af að reisa almenn sjúkrahús“ — það er ekki sagt einstökum sveitarfélögum, heldur sveitarfélögum, og auk þess „sjúkraskýli eða læknisbústaði.“ — En landlæknir nefnir ekki nema sjúkraskýli og læknisbústaði.

Það er óþarfi fyrir okkur að vera að deila um þetta, af því að við erum sammála um, að frv. megi fram ganga, jafnvel þó að það væri ef til vill verra, að húsið væri rekið eins og fjórðungssjúkrahús heldur en almennt sjúkrahús, vegna þess að það er á valdi stjórnar sjúkrahússins og sýslunefndanna, hvor kosturinn verður valinn. Þess vegna getur það aldrei skaðað, en eins og ég sagði áðan, þá gæti orðið bót að því, ef rekstrarstyrkur til fjórðungssjúkrahúsa yrði aukinn. Ég man ekki betur, en að á fundinum á Selfossi hafi hv. 2. þm. Árn. og Lúðvík Norðdal læknir talið miklar líkur til þess, að það væri betra fyrir héruðin að byggja sjúkrahúsið eins og venjulegt héraðssjúkrahús.

Ég talaði ekki um, að frv. væri of fljótt fram komið. Ég sagði ástæðuna fyrir því, hvers vegna ég hefði ekki flutt frv. í haust, eins og mér var beinlínis falið með samþykkt fundarins, sem ég nefndi. Það var út af því, að lögin voru þannig eftir minni vitund og lögfræðinga, sem ég talaði við, að byggingarstyrkurinn yrði lægri með því fyrirkomulagi, að það væri fjórðungssjúkrahús. Og þetta vil ég undirstrika, vegna þess að landlæknir nefnir aðeins sjúkraskýll og læknisbústaði, en gleymir að nefna almenn sjúkrahús, eins og stendur í lögunum. Hann veit, hvað hann segir, ef til vill, en hann getur aldrei kallað sjúkrahúsið á Blönduósi með 30 rúmum sjúkraskýli. Það er almennt sjúkrahús. Og það er viðurkennt af öllum, að öll sjúkrahús utan kaupstaða eru styrkt í byggingu að 2/3. Það er ekki hægt að mótmæla því með rökum, sem stendur skýrt í lögum.