03.02.1953
Efri deild: 64. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1344 í B-deild Alþingistíðinda. (1929)
121. mál, sjúkrahús o. fl.
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Við 2. umr. var till. mín um, að í byggingarkostnaði skyldu teljast öll áhöld, röntgentæki og húsbúnaður til sjúkrahúsa og sjúkraskýla og þannig greiðast af ríkissjóði sami hluti af þeim kostnaði eins og hann greiðir til sjúkrahúsanna samkv. gildandi lögum. Nú er það svo, að það er mismunandi stór hluti, sem ríkissjóður greiðir, hvort heldur húsið er byggt í kaupstað sem almennt sjúkrahús eða það er byggt í sveitum sem almennt sjúkrahús eða sjúkraskýli eða byggt sem fjórðungssjúkrahús, og hefði því þátttaka ríkissjóðs í kaupum á húsbúnaði, áhöldum og lækningatækjum orðið mismunandi eftir því, í hvaða hús þessi áhöld hefðu farið. Ég geri ráð fyrir því, að það hafi valdið raunverulega mjög miklu um afstöðu hv. þm., að hér var ekki sami styrkur veittur öllum sjúkrahúsum, að málið náði ekki fram að ganga, enda féll sú till. hér með eins atkvæðis mun. Okkur hefur því þótt rétt, mér og hv. 2. þm. Árn., að bera fram hér á ný till. á þskj. 724, svo hljóðandi:
„Aftan við 1. efnismálsgr. 1. gr. laganna bætist nýr málslíður: Enn fremur greiðir ríkissjóður 40% af andvirði nauðsynlegs húsbúnaðar, áhalda og lækningatækja til sjúkrahúsa og sjúkraskýla.“ — En 40% er lágmarkið, sem ríkissjóður greiðir hverju sjúkrahúsi í byggingarstyrk.
Ég vil því vænta þess, að hv. alþm. geti fallizt á, að hér sé fullt réttlætismál og engum gert misjafnt undir höfði. Hitt veit ég, að hv. þm. eru sammála um, að nauðsynin til þess að koma þessum tækjum í sjúkrahúsin er svo mikil, að það er raunverulega mjög einkennilegt, að það skuli ekki hafa fyrir löngu verið ákveðið, að ríkissjóður stuðlaði að kaupum á þeim engu síður en að byggingu húsanna. Meðal annars í baráttunni gegn berklaveikinni er það stórkostlegur þáttur að geta haft í hverju sjúkraskýli ljóslækningatæki eða lýsingatæki til þess á frumstiginu að geta jafnan fylgzt með því, hvaða sjúklingar eru í hverju héraði og hvort þeir eru smitberar eða ekki. Ég vil því vænta þess, að þessi till. verði samþ. nú við þessa umr.