16.10.1952
Neðri deild: 9. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1345 í B-deild Alþingistíðinda. (1932)

66. mál, leigubifreiðar í kaupstöðum

Flm. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Þetta frv. er flutt eftir tilmælum stjórna bifreiðarstjórafélagsins Hreyfils og vörubílstjórafélagsins Þróttar í Reykjavík. En auk þess hafa komið fram tilmæli frá fleiri bifreiðarstjórafélögum úti á landi í þessa sömu átt.

Það er tvennt, sem frv. miðar að. Annað er að lögfesta, að allar leigubifreiðar í kaupstöðum skuli hafa afgreiðslu á viðurkenndri bifreiðastöð. Í öðru lagi sé heimild veitt til þess að takmarka hámarkstölu leigubifreiða á hverjum stað, og er þá ætlazt til, að bæjarstjórnir hafi þá heimild að fengnu samþykki dómsmrn.

Tilefni þessa frv. er það, að í bifreiðarstjórastéttinni hefur borið á atvinnuleysi og því verulegu, og á það sérstaklega við stétt vörubílstjóra. Á styrjaldarárunum og fyrstu árunum eftir styrjaldarlok jókst mjög tala vörubifreiða og vörubifreiðarstjóra. En þegar vinna fyrir þessar bifreiðar dróst saman, eins og verið hefur nú síðustu 5 til 6 ár, getum við sagt, þá hefur borið á töluverðu atvinnuleysi í þessari stétt. Það er örðugleikum bundið fyrir menn, þegar þeir hafa aflað sér þessara dýru tækja, að losna við þau með góðu móti, sérstaklega þegar eftirspurnin eftir þeim fer minnkandi. Af þeim ástæðum þykir rétt að heimila takmarkanir gegn offjölgun í stéttinni, og má segja, að það sé hagsmunamál ekki aðeins þessarar umræddu stéttar, heldur einnig viðkomandi bæjarfélaga og þjóðfélagsins í heild, að ekki fari það margir inn í þessa stétt, að þar sé verulegt atvinnuleysi og þar sé bundið vinnuafl, sem æskilegra væri að beina að öðrum starfsgreinum.

Um rökstuðning fyrir þessu frv. að öðru leyti vil ég vísa til grg., sem fylgdi frá stjórnum þessara bifreiðarstjórafélaga, og vænti þess, að frv. fái góðar undirtektir á Alþ. Legg ég til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. samgmn.