15.12.1952
Efri deild: 40. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1354 í B-deild Alþingistíðinda. (1954)

66. mál, leigubifreiðar í kaupstöðum

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Hv. þm. S-Þ. hefur nú að nokkru tekið af mér ómakið að tala, því að margt af því, sem hann sagði, vildi ég sagt hafa og undirstrika.

Mig undraði það satt að segja, þegar ég sá frv. á þskj. 66 lagt fyrir Alþ., — frv., sem flutt var af þrem hv. sjálfstæðismönnum í Nd. og tveim jafnaðarmönnum og gengur inn á þá braut — skýlausu braut — að skerða athafnafrelsi manna. Það er flutt af mönnunum, sem hafa talið sig forgangsmenn þess hér á landi, að persónufrelsi manna ætti að vera í hávegum haft og athafnafrelsi ekki síður. Og ég vil nú spyrja þá tvo hv. þm., sem hafa tekið upp baráttu fyrir þessu sama hér í d. og ég satt að segja hélt að væru ekki neinir einvaldssinnar hvað það snertir að vilja láta fyrirskipa ofan frá, hverju hver einstakur maður ynni að, en það á hér að gera með bílstjórana, — ég vil spyrja þá að því, hvort þetta boði það, að orðin sé stefnubreyting í flokknum, þannig að það sé hætt að hugsa um það, að hver maður fái að gera það, sem hann vill í lífinu, heldur eigi að fyrirskipa ofan frá, hvað hver og einn skuli aðhafast. Þetta skalt þú gera, góði, og þetta skalt þú gera. Það mega ekki vera fleiri lögfræðingar í landinu heldur en hundrað og eitthvað, — ekki fleiri læknar í Reykjavík heldur en eitthvað og eitthvað, — ekki fleiri bílstjórar í Reykjavík heldur en þetta eða þetta, — ekki fleiri kaupmenn í Reykjavík heldur en þetta eða þetta. Það eru núna 12% af þjóðinni, sem lifa á því að verzla við hina. Boðar þetta það, að þeir ætli að ganga inn á þessa braut? Og hvað þá um skólana? Hví að láta fleiri læra til t.d. læknis en leyfa á að verða það? Við eigum kannske næst von á því, að í Reykjavik megi ekki vera fleiri kaupmenn heldur en þetta, og þar næst ekki fleiri hjúkrunarkonur en þetta o.s.frv., o.s.frv.? Er það þetta, sem koma skal? Er hér orðin stefnubreyting þannig lagað, að það eigi að fara að segja ofan frá, hvað margir menn í þjóðfélaginu megi vinna að þessu eða þessu og menn eigi ekki sjálfir að ráða því, að hverju þeir starfi? Þetta langaði mig til að fá að vita. Mér skilst, að þetta sé andinn í brtt., sem liggur fyrir á þskj. 452, og þetta var andinn í frv. upprunalega — alveg ótvírætt.

Nú geri ég ráð fyrir því, að það sé þörf á því í Reykjavík að láta þá bílstjóra, sem hér vinna og lifa á sínum akstri, vera á ákveðinni stöð, svo að fólkið geti náð í þá og haft greiðari aðgang að þeim, en þurfi ekki að elta þá í einstök hús, þar sem þeir eiga heima. En eins nauðsynlegt og þetta er í eins stórum bæ og Reykjavík og reyndar fleiri bæjum, eins fráleitt er t.d. á Sauðárkróki eða Ólafsfirði að skylda þannig einstaka menn. Það eru líklega þrír menn á Sauðárkróki eða eitthvað svoleiðis, sem lifa á því að keyra bíla, þeir eru í húsum sínum, þeir hafa síma í þeim — og að fara að skylda þá til þess að taka sér heila stöð á leigu úti í bæ og vera allir þar alltaf til staðar til að keyra, það er fráleitt. Þetta er komið frá mönnum, sem lifað hafa í dreifbýlinu og eiga þess vegna að þekkja þar til. Þess vegna tel ég, að fráleitt sé að samþ. frv. eins og það er núna eftir 3. umr. í Nd. og liggur fyrir hérna, áður en brtt. komu. Það getur vel verið, að það sé þörf á því hér í Reykjavík, og þá á að breyta því í það horf að láta það ná til þeirra staða, sem þörf er á, en hinna ekki. Við skulum taka til dæmis Reyðarfjörð, þar er nú bílstöð hjá kaupfélaginu. Þar eru prívatbílstjórar nokkrir, sem hafa bíla og líka keyra fólk. Á að fara að skylda þá alla til að byggja sér einhverja sérstaka stöð til að keyra frá? Hvers vegna mega þeir ekki keyra heiman að frá sér? Hvers vegna mega menn ekki hringja í hvern þeirra sem þeir vilja, þegar þeir vilja ná sér í bil? Eða eiga þeir allir að fara á kaupfélagsstöðina og vera þar? Það er eina stöðin, sem er í þorpinu. Ég skil mennina, sem flytja frv. Það eru þrír þm. héðan úr Reykjavík og þm. úr Hafnarfirði og þm. af Akureyri. Þeir þekkja þessa kaupstaði. Þar er sjálfsagt þörf á því að hafa stöð. En þegar það koma svo tveir hv. þm. hér, annar austan úr Árnessýslu og hinn vestan úr Dalasýslu, heimilisfastur, þó að hann sé nú fyrir allt landið, þá skil ég ekki, að þeir þurfi að negla sig þannig á sjónarmið stóru staðanna að fara að binda sig við, að ýmsir staðir komi upp bílstöðvum, sem engin þörf er á. Ég skil þá ekki. Mér er þetta alveg óskiljanlegt. Og ég held, að þeir hafi bara gert þetta án þess að athuga það verulega vel, hvað þeir voru að gera með því að flytja þessa brtt.

Ekki skil ég heldur, hvers vegna dómsmrn. á að veita þetta. Hvers vegna er það í samgmn. hér í d.? Hví var það ekki í allshn.? Var það af því, að okkur fyndist það vera dómsmál, sem ætti að heyra undir allshn.? Nei, það var af því, að okkur fannst öllum, að það væri samgöngumál, og þess vegna settum við það þangað. Ef það á að fara inn á það að skerða svona frelsi manna til að keyra bíla, þá á það vitanlega að heyra undir samgmrn.

Ég skal nú ekki hafa þetta lengra, en mig langar til að fá svör við því alveg skýrt og ákveðið: Er hér að ræða um stefnubreytingu hjá — í þessu tilfelli Sjálfstfl., þeir geta ekki svarað fyrir hinn flokkinn? Á að fara að ganga inn á það að takmarka, hvað margir menn í þjóðfélaginu megi vinna í hverri stétt út af fyrir sig? Er þetta byrjunin á því? Hvað kemur næst? Koma lögfræðingarnir næst, læknarnir, eða hver kemur næst? Eða kaupmennirnir? Þeir eru sjálfsagt tiltölulega langflestir, því að það er enginn vafi á því, að það er ekki nokkur minnsta þörf á því, að 12% af þjóðinni lifi á því að verzla við hina.