06.11.1952
Neðri deild: 21. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 104 í B-deild Alþingistíðinda. (196)
38. mál, verndun fiskimiða landgrunnsins
Atvmrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Þetta frv., sem hér er til umr., frv. til l. um breyt. á l. nr. 44 5. apríl 1948, um vísindalega verndun fiskimiða landgrunnsins, er til staðfestingar brbl., sem gefin voru út 19. marz s.l. Frv. þetta er örstutt og þarfnast út af fyrir sig ekki annarra skýringa en grg. ber með sér, en það er hins vegar flutt í sambandi við ráðstafanir, sem varða hagsmuni Íslendinga í nútíð og framtíð, meir en flest annað, sem Alþ. hefur fjallað um síðustu árin. Á ég þar, eins og öllum er ljóst, við stækkun friðunarsvæðisins úti fyrir ströndum landsins eða víkkun landhelginnar, eins og þjóðin kallar það.
En þó að frv. sjálft gefi ekki tilefni til skýringar, þá þykir mér eiga við að fara nokkrum orðum um friðunarmálið, vegna þess að ákvarðanir þær, sem hnigið var að, voru teknar eftir að síðasta Alþ. lauk og þær hafa ekki verið ræddar á Alþ. Ég hef hlutazt til um, að þetta mál hefur ekki komið fyrr á dagskrá, í von um að sjá fyrir endi málsins betur en enn er hægt, en tel ekki ástæðu til þess að draga þetta lengur eða fresta umr., og mun ég þá snúa mér að sjálfu friðunarmálinu.
Eins og allir hv. alþm. vita, þá hafa ríkisstjórnir Íslands á undanförnum árum unnið markvisst að því að vernda fiskimiðin umhverfis landið og forða þeim frá eyðileggingu, sem fyrirsjáanleg var, ef ekkert yrði að gert. Grundvöllurinn var lagður með landgrunnsl. 1948, en þar var ráðh. heimilað að setja nauðsynlegar friðunarreglur innan endimarka landgrunnsins. — Næsta skrefið var stigið, þegar ríkisstj. 3. okt. 1949 sagði upp samningnum við Breta frá 1901, en. framkvæmd landgrunnslaganna var ósamrýmanleg ákvæðum þess samnings. Féll þá samningurinn úr gildi 3. okt. 1951. Skömmu eftir að landgrunnsl. frá 1948 voru sett, hófust málaferli Breta og Norðmanna fyrir Haag-dómstólnum. Í upphafi varð ljóst og við það miðað, að það mundi Íslendingum mjög hagkvæmt að hafa hliðsjón af úrslitum Haag-málsins. Þó var ákveðið að hefja fyrstu framkvæmdir á grundvelli landgrunnsl. með útgáfu reglugerðar um verndun fiskimiða fyrir Norðurlandi, sem var gefin út 22. apríl 1950, þar sem afmarkað var svæði eftir skandinavísku reglunni, þ.e.a.s., að dregin var grunnlína um yztu sker og fyrir mynni flóa og fjarða, en markalínan sjálf var sett 4 mílum utar. Á þessu svæði voru Íslendingum jafnt sem erlendum mönnum bannaðar allar veiðar með botnvörpu og dragnótum og Íslendingum einum leyfðar síldveiðar. Þegar samningurinn við Breta frá 1901 féll úr gildi 3. okt. 1951, þótti rétt að fresta frekari aðgerðum skv. landgrunnsl., þar til sýnt væri, hvernig málið horfði við eftir úrslit málaferlanna í Haag. Varð samkomulag um, að viðræður milli Íslendinga og Breta færu fram í ljósi dómsins, áður en frekar yrði aðhafzt. Þegar Haag-dómurinn lá fyrir, gerði utanrrh. grein fyrir honum á lokuðum fundi í Alþ., en endanleg ákvörðun um ráðstafanir ríkisstj. hafði, svo sem fyrr segir, ekki verið tekin, þegar þingi var slitið.
Í janúarmánuði s.l. átti ég í umboði íslenzku ríkisstj. viðræðu við brezk stjórnarvöld um málið, svo sem gert hafði verið ráð fyrir. Voru þeir Agnar Kl. Jónsson sendiherra og Hans G. Andersen deildarstjóri viðstaddir þær umr. Var af okkar hendi samin skýrsla um málið að viðræðunum loknum, og fer því ekki á milli mála, hvað þar gerðist. Mér þykir rétt að víkja stuttlega að þessum viðræðum, einnig vegna þess, að nokkur ágreiningur hefur virzt vera milli íslenzku og brezku stjórnarinnar um það, hvað þar hafi farið fram, og vegna þess að eitt íslenzkt dagblað hefur gerzt til þess, svona eins og venjulegt er af þess hálfu, að reyna að styrkja málstað útlendinganna gegn málstað Íslendinga.
Af Breta hálfu var því haldið fram í umr. þessum, að rétt væri, að mál þetta yrði leyst með samkomulagi, en ekki gripið til einhliða ráðstafana. Var sérstaklega á það bent, að tryggð væri gildistaka samningsins frá 1946 um möskvastærð o.fl., þar sem einmitt væri gert ráð fyrir ákveðinni n., sem hefði það hlutverk að gera till. um friðunarráðstafanir í sambandi við verndun fiskimiða. Þar væri þess vegna fenginn vettvangur til að ræða slíkar ráðstafanir. Þá gæti og vel komið til mála, sögðu Bretar, að Íslendingar og Bretar semdu sín á milli um ný fiskveiðatakmörk við strendur Íslands, en taka yrði tillít til þess, að hér væri um hagsmuni beggja að ræða; líti fiskimálarn. Breta svo á, að Haagdómurinn fæli ekki í sér nein sérstök fríðindi Íslendingum til handa, og bentu fulltrúar Breta á, að einhliða ákvarðanir í þessum efnum mundu mælast mjög illa fyrir í Bretlandi og gætu leitt til gagnráðstafana. Ýmislegt fleira kom fram af hálfu Breta í þessum viðræðum.
Það yrði nú að sjálfsögðu of langt mál að skýra hér frá öllu því, sem fram kom af hendi Íslendinga í þessum viðræðum. En mér þykir rétt að drepa á nokkur aðalatriði, og þá er gleggst að vitna beinlínis í þá skýrslu, sem ég áður nefndi og samin var að loknum viðræðunum af okkur Íslendingunum. Þar segir m.a.:
„Ég svaraði þessari ræðu (þ.e.a.s. Bretanna) á þá lund, að ég teldi, að það mundi skýra línurnar, að ég segði þegar afdráttarlaut frá því, hvert væri álit Íslendinga á málinu. Las ég nú upp hið stutta plagg, sem við höfðum samið áður en við fórum á fundinn, og er það svo hljóðandi:
„1. Skv. beiðni brezku ríkisstjórnarinnar frestaði íslenzka ríkisstjórnin frekari ráðstöfunum í sambandi við verndun fiskimiðanna, þangað til vitað yrði um úrslít Haag-dómsins.
2. Lögfræðilegir ráðunautar ríkisstj. Íslands, bæði innlendir og erlendir, telja nú, að íslenzku stjórninni sé heimilt að taka upp að minnsta kosti sams konar reglur og Norðmenn. Þetta fyrirkomulag höfðum við Íslendingar einnig, áður en samningurinn frá 1901 var gerður, bæði að því er varðar grunnlínur og 4 mílna fjarlægð frá þeim.
3. Íslendingar eru nú að undirbúa ráðstafanir sínar á þessum grundvelli.“
Ég tók síðan fram, að það væri skoðun íslenzku stjórnarinnar, að frá þessu væri hvorki réttmætt né mögulegt að víkja, og yrði þá að reyna á það, hvað af því leiddi. Varðandi hugsanlegar refsiaðgerðir benti ég þá þegar á, að frá íslenzku sjónarmiði yrði talið óskiljanlegt, að það sætti sérstökum refsiaðgerðum af hendi Breta, að Íslendingar hagnýttu sér löglegan og í rauninni tildæmdan rétt, sem þeir gætu ekki án verið, enda þótt af því leiddi, að Bretar yrðu að hætta að hagnýta sér fríðindi, sem þeim væru til framdráttar, en þeir hefðu ekki löglegan rétt til að notfæra sér.“ — Þetta er nú orðrétt upp úr skýrslunni.
Um refsiaðgerðirnar sagði ég enn fremur, „að allur heimurinn vissi, að það væri brezka ríkisstj., sem réði í Bretlandi, en ekki ofstopafullir málsvarar einhverra þröngra sérhagsmuna.“ Og um þörf Íslendinga og rétt í þessum efnum sagði ég einnig, að „Íslendingar ættu löglegan rétt til að víkka landhelgina og engin stjórn gæti leyft sér að hagnýta ekki þann rétt til hins ýtrasta. Það væri sannleikur, að Íslendingar gætu ekki lifað í landi sínu, nema þeir losnuðu við hinn örlagaríka ágang erlendra fiskiskipa á íslenzkum fiskimiðum. Sem dæmi um afleiðingu þessa ágangs vildi ég aðeins nefna, að í Faxaflóa — en þar væru nú aðalfiskimið Íslendinga - hefði meðalafli í veiðiferð vélbáta árið 1949 verið 7.1 tonn, á árinu 1950 6.1 tonn og á árinu 1951 5.3 tonn. Þessi afli hefði fyrst eftir stríðið verið allt upp í 14 tonn. Það væri augljóst af þessu og allri annarri reynslu, að fiskimiðin væru að þrjóta vegna ofveiði. Af þessu öllu væri ljóst það, sem ég áður hefði sagt, að ekki aðeins ættu Íslendingar þennan rétt að lögum, heldur gætu þeir alls ekki án hans verið.“ — Þetta er einnig orðrétt upp úr skýrslunni.
Þá tók ég enn fremur fram, að „skv. Haagdómnum væri ljóst, að strandríki væri ætlað einhliða að ákveða landhelgi sína, en auðvitað yrði að gæta þess, að sú ákvörðun væri í samræmi við alþjóðarétt.“ Og síðan bætti ég við, að „eins og ég þegar hefði tekið fram, teldu Íslendingar sig eiga rétt til þess sjálfir að ákveða landhelgi sína og að minnsta kosti hagnýta sér sams konar rétt og Norðmönnum var dæmdur.“
Loks tók ég fram, og enn kemur orðrétt, „að samningar um þetta mál kæmu ekki til greina, enda væri ljóst, að ef samið yrði við Breta, yrði einnig að semja við aðrar þjóðir.“
Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þessa skýrslu, en ég get óhikað staðhæft, að í engu var hvikað frá rétti Íslendinga í málinu né heldur farið dult með fyrirhugaðar aðgerðir okkar, en það er rétt, að hin nýja friðunarlína var ekki rædd í einstökum atriðum, því þótt ljóst væri, að Bretar óskuðu þess, var það gagnstætt vilja Íslendinga, sem töldu Haag-dóminn sýna, að þeir hefðu rétt til einhliða ákvörðunar í þessu efni innan þeirra marka, sem þar eru nánar greind.
Á þessum fundi voru ýtarlega ræddar skoðanir beggja aðila, en það tókst ekki að samrýma þær.
Jafnframt þessu hafði svo málið verið í nánari athugun og hafði m.a. verið rætt við málfærslumenn þá, sem komið höfðu fram fyrir Noregs hönd fyrir Haag-dómstólinn. Síðan var hinn 19. marz 1952 gefin út reglugerð um verndun fiskimiða umhverfis Ísland. Efni hennar er það, að dregin er grunnlína frá yztu annesjum og skerjum og þvert yfir mynni flóa og fjarða, en síðan sjálf markalínan 4 mílum utar. Á þessu svæði eru bannaðar allar botnvörpu- og dragnótaveiðar, jafnt Íslendingum sem útlendingum, útlendingum einnig hvers konar aðrar veiðar. — Þá segir einnig: Atvmrn. getur takmarkað fjölda veiðiskipa og hámarksafla hvers einstaks skips, ef það telur, að um ofveiði verði ella að ræða, og að sækja verði um leyfi til sumarsíldveiða fyrir Norðurlandi, eins og verið hefur. — Loks eru sett refsiákvæði í samræmi við brbl. um það efni. Reglugerðin er gefin út skv. landgrunnsl. frá 1948 og gekk í gildi 15. maí 1952. Þegar þessi reglugerð var gefin út, eða hinn 19. marz s.l., flutti ég útvarpsræðu um málið. Var hún birt í viðlesnum blöðum landsins, og leyfi ég mér að vísa til hennar um ýmis atriði, sem snerta forsögu málsins, til þess að forðast óþarfa málalengingar.
Síðan reglugerðin var gefin út, hafa orðsendingar farið á milli ríkisstj. Íslands og Bretlands út af henni. Skulu þær nú mjög stuttlega raktar. Jafnframt þykir rétt að geta þess, að mótmæli hafa borizt frá ríkisstj. Belgíu og Hollands. Hinn 2. maí barst orðsending frá brezku ríkisstj. Segir þar, að enda þótt brezka ríkisstj. geri sér grein fyrir þeirri þýðingu, sem fiskveiðar hafi fyrir Íslendinga, og eðlilegt sé, að þeir vilji endurskoða fiskveiðatakmörkin í ljósi Haag-dómsins, þá telji hún mjög miður, að reglugerðin um verndun fiskimiðanna umhverfis landið skuli hafa verið gefin út án þess, að viðræður færu fram um efni hennar við brezku ríkisstj. Um hálfrar aldar skeið hafi brezk skip stundað veiðar á þeim slóðum, sem þeim séu nú bannaðar allar veiðar á, og hefði það því verið í betra samræmi við hina vinsamlegu sambúð landanna, að ekki hefði verið gripið til einhliða ráðstafana, heldur samið um takmörk, þannig að tillit hefði verið tekið til hagsmuna beggja þjóðanna. Jafnframt er að því víkið, að nauðsynlegar ráðstafanir hefði mátt gera sameiginlega skv. möskvastærðarsamningnum frá 1946. Síðar í orðsendingunni er víkið að því, að óheimilt sé fyrir Íslendinga að ákveða fiskveiðatakmörkin 4 mílur frá grunnlínu, Haagdómurinn hafi ekki um það mál fjallað og 3 mílna reglan hafi verið lögfest að alþjóðalögum, áður en samningurinn frá 1901 hafi verið gerður, og hafi samningurinn að því leyti fjallað um staðreynd, sem ekki hefði breytzt, þó að samningnum hefði verið sagt upp. — Að því er snertir grunnlínurnar, sem markaðar eru í reglugerðinni, kveðst brezka ríkisstjórnin skilja, að Íslendingar vilji endurskoða grunnlínu sína í ljósi Haag-dómsins, en hins vegar geti hún ekki fallizt á þá grunnlínu, sem dregin hafi verið yfir Faxaflóa, heldur verði sú lína að dragast frá Garðskaga í Malarrif í samræmi við meginreglur Haag-dómsins. Segir í orðsendingunni, að brezka stjórnin álíti línu þá, sem dregin hafi verið, fara algerlega í bága við alþjóðal., og fer því fram á, að nauðsynlegar leiðréttingar séu gerðar á reglugerðinni til þess að færa hana til samræmis við þau, þ.e.a.s., að línan sé dregin frá Garðskaga í Malarrif og að miðað sé við þrjár mílur frá grunnlinunni. Það er ljóst af orðsendingunni, að brezka ríkisstjórnin hefur ekki talið aðrar grunnlínur samkv. reglugerðinni fara í bága við alþjóðalög, og það má því segja, að viðurkenning Breta hafi þar með verið fengin fyrir því, að hinar grunnlínurnar væru löglegar, t.d. línan yfir Breiðafjörð og lína yfir firði og flóa norðanlands.
Ríkisstjórn Íslands svaraði hinn 12. maí brezku orðsendingunni frá 2. maí. Efnislega var þar aðallega um þrjú atriði að ræða. Í fyrsta lagi var á það bent, að þegar samningnum frá 1901 var sagt upp, hafi verið samkomulag um, að æskilegt væri fyrir báða aðila, að viðræður færu fram um fyrirætlanir íslenzku ríkisstj. Í samræmi við það hefði atvmrh. átt slíkar viðræður við brezk stjórnarvöld, þar sem ýtarlega hefðu verið raktar skoðanir íslenzku ríkisstj. og berum orðum tekið fram, að ráðstafanir væru í undirbúningi svipaðar þeim, sem Haagdómurinn hefði talið löglegar að því er Noreg snerti. Einnig var sagt, að ráðh. hefði lagt á það mikla áherzlu, að íslenzka ríkisstj. áliti, að hinar fyrirhuguðu ráðstafanir væru í samræmi við alþjóðalög og ekki væri hægt með milliríkjasamningum að afsala rétti til að taka einhliða ákvarðanir um mestu velferðarmál þjóðarinnar. Segir í orðsendingunni, að það sé því ljóst, að viðræður hafi átt sér stað, enda þótt samningaviðræður hafi ekki farið fram, eins og Bretar vildu.
Í öðru lagi segir í orðsendingunni frá 12. maí, að ríkisstj. telji, að sú grunnlina, sem brezka stjórnin gerði till. um í orðsendingunni frá 2. maí, sé mjög óeðlileg miðað við staðhætti,því að hin eðlilegu takmörk Faxaflóa séu hin yztu mörk hans, þ.e., að norðanverðu á staðnum, sem valinn var, Gáluvíkurtanga, en að sunnan Eldeyjardrangur, sem ásamt Eldey myndi framhald af Reykjanesskaga. Segir, að það sé sannfæring íslenzku ríkisstj., að ákvörðun grunnlínustaðanna hafi fulla stoð í alþjóðalögum.
Í þriðja lagi segir í orðsendingunni frá 12. maí, að það sé skoðun íslenzku ríkisstj., að hin svo nefnda þriggja mílna regla hafi enga stoð í þjóðarétti, og það sé vissulega skoðun íslenzku ríkisstj., að hvert ríki megi sjálft innan sanngjarnra takmarka ákveða víðáttu fiskveiðalögsögu sinnar með hliðsjón af efnahagslegum, landfræðilegum og fiskifræðilegum aðstæðum á staðnum, og að ekki verði sagt, að nýja reglugerðin gangi lengra en þær aðstæður gefa tilefni til, auk þess sem miðað hafi verið við fjórar mílur á Íslandi, áður en samningurinn frá 1901 var gerður. — Enn fremur segir, að þess hafi verið vandlega gætt, að takmörkin væru þegar í upphafi dregin þannig, að ekki væri hægt að gera sanngjarnar eða réttlátar kröfur um breytingar, og væri það að öllu athuguðu einlæg von íslenzku ríkisstj., að ráðstafanir þær, sem gerðar hefðu verið og gervöll íslenzka þjóðin byggði afkomu sína á, verði ekki til þess að spilla hinni góðu sambúð þjóðanna.
Þessari orðsendingu svaraði brezka ríkisstjórnin 18. júlí. Er þar enn víkið að þeim þremur atriðum, sem áður eru nefnd. Í fyrsta lagi telur brezka ríkisstjórnin, að viðræður þær, sem fram fóru í London milli atvmrh. og fulltrúa brezku ríkisstjórnarinnar, geti ekki talizt hafa verið um efni reglugerðarinnar, því að engar upplýsingar hafi verið gefnar um einstök atriði varðandi hana og neitað hafi verið um samninga, enda þótt brezka ríkisstjórnin gerði till. um það, í því skyni að samkomulag næðist um veiðitakmörk, þar sem tekið yrði, eftir því sem unnt væri tillit til löglegra hagsmuna beggja aðila. — Í öðru lagi segir, að brezka stjórnin geti ekki fallizt á, að grunnlínan yfir Faxaflóa sé í samræmi við alþjóðalög, heldur fari hún beinlínis í bága við meginreglur Haag-dómsins. Og í þriðja lagi segir, að brezka ríkisstjórnin geti ekki fallizt á þá skoðun, að sú regla, sem lengi hefur verið viðurkennd, að engu ríki sé heimilt að framfylgja kröfu um stærri landhelgi, en þrjár mílur, nema það eigi rétt á rýmra svæði vegna hefðar, eigi ekki stoð í þjóðarétti, segir, að meginreglurnar um þriggja mílna víðáttu landhelginnar hafi verið þáttur almenns þjóðaréttar siðan á 19. öld og það sé alveg ljóst, að engu ríki sé skylt að samþykkja kröfur, sem önnur ríki kunni að gera um veiðitakmörk, aðrar en þær, sem byggjast á lögmætri hefð. Lýsir brezka ríkisstjórnin yfir því, að henni þyki það mjög miður, að íslenzka ríkisstj. skuli ekki vilja gera ráðstafanir til þess að breyta hinni nýju reglugerð þannig, að hún verði í samræmi við reglur þjóðaréttarins. — Loks er gerður fyrirvari um, að hún áskilji sér rétt til skaðabóta frá íslenzku ríkisstjórninni að því er snertir hvers konar afskipti af brezkum fiskiskipum á svæðum, sem hún telji vera á úthafinu.
Íslenzku ríkisstj. fannst þessi síðasta orðsending ekki gefa tilefni til sérstaks svars, þar sem í raun og veru ekkert nýtt kom fram í henni og málinu virtist lokið með því, að Bretar lýstu yfir óánægju sinni og gerðu fyrirvara um hugsanlegar skaðabótakröfur. Ákvað íslenzka ríkisstjórnin því, er hún hafði athugað orðsendinguna, að hún gæfi ekki tilefni til sérstaks svars.
Vegna aðgerða Íslendinga í þessu máli hefur komið upp andúð hjá brezkum togaraeigendum í garð Íslendinga, og gekk hún svo langt, eins og kunnugt er, að útgerðarmenn í Hull og Grimsby gerðu ráðstafanir til að hindra landanir íslenzkra togara í þessum höfnum. Hafa fulltrúar íslenzkra útgerðarmanna nýlega verið í Englandi til að vinna að lausn þessa máls, en ríkisstj. taldi nauðsynlegt að vekja athygli brezku ríkisstjórnarinnar á þessum aðferðum og sendi henni orðsendingu, sem afhent var Anthony Eden utanríkisráðherra persónulega hinn 11. okt. Við það tækifæri var málið allýtarlega rætt við Eden utanríkisráðherra. Í þessari síðustu orðsendingu íslenzku ríkisstj. segir, að í orðsendingu Breta frá 18. júlí séu að vísu mikilvæg atriði, sem ríkisstjórnir landanna greini á um. Í fyrsta lagi telji íslenzka ríkisstj., að viðræður hafi farið fram um meginatriði reglugerðarinnar, áður en hún var gefin út. Í öðru lagi telji Íslendingar grunnlínuna yfir Faxaflóa löglega, og í þriðja lagi sé íslenzka ríkisstjórnin alveg ósammála brezku ríkisstjórninni um, að þriggja mílna landhelgin sé ákveðin af alþjóðalögum, þannig að ekki verði breytt með einhliða ákvörðun. Ekki hafi þó verið ástæða til að gera athugasemdir um þessi atriði í sérstakri orðsendingu, þar sem íslenzka stjórnin hafði áður lýst skoðunum sínum, sem væru óbreyttar. Hefði því verið talið, að frekari orðaskipti, sem jafnóðum væru birt, mundu einungis auka á óánægju á báða bóga. Að vísu hafi brezka stjórnin gert fyrirvara um skaðabætur, en íslenzka ríkisstj. hafi ekki haft neitt við það að athuga, enda þótt hún teldi, að Bretar ættu ekki skaðabótakröfur, þótt reglugerðinni væri framfylgt. Hins vegar hefði virzt koma fram viðurkenning á því, með fyrirvaranum eða með fyrirvaragerðinni, að ef úr deilu yrði, bæri að ráða henni til lykta á lögformlegan hátt, svo sem tíðkast milli þeirra einstaklinga og þjóða, sem hafa lög og reglur í heiðri, og hefðu Íslendingar vonað, að ekki kæmi til slíkrar deilu og að Bretar mundu að athuguðu máli fallast á skoðanir Íslendinga í þessum efnum. Því meiri hefðu vonbrigði íslenzku ríkisstj. orðið, þegar það virtist staðreynd, að brezkir útgerðarmenn ætluðu að taka lögin í sínar eigin hendur og beita útilokun við Íslendinga til að knýja fram vilja sinn. Segir, að skiljanlegt væri, að slíkum harðræðum væri beitt, ef Íslendingar vildu ekki hlíta löglegum aðgerðum um lausn deilunnar. Það hefðum við hins vegar ekki gert. Íslendingar hefðu í raun og veru ekki gert annað, en að beita alþjóðalögum, svo sem þeir skilja þau, til að vernda hagsmuni sína. Hitt yrði að teljast óvinsamlegur verknaður, ef utan laga og réttar ætti að beita svo harkalegum ráðum sem útilokun frá mörkuðum, til að reyna að neyða Íslendinga frá því að fylgja fram því, sem þeir telja rétt sinn. Segir síðan í orðsendingunni orðrétt á þessa leið: „Er áreiðanlegt, að þótt það bitni hart á mörgum, munu allir Íslendingar sameinast um að standa þá atlögu af sér.“ Í orðsendingunni er bent á, að viðskipti Breta og Íslendinga hafi verið þeim hagstæð og að landið hafi haft mikla þýðingu fyrir Breta í sambandi við varnir þeirra. Þá er bent á, að bann á togveiðum á hinum umdeildu miðum bitnar ekki síður á Íslendingum en Bretum, og segir loks, að íslenzka ríkisstjórnin treysti því í lengstu lög, að vinsemd brezku stjórnarinnar endist til að fallast á sjónarmið íslenzku stjórnarinnar og að hún a.m.k. komi í veg fyrir, að kúgunaraðferðum verði beitt í þessu lífsspursmáli Íslendinga. — Við þessari orðsendingu hefur enn þá ekkert svar borizt, en sendiherra Íslands í London hefur rætt við utanrrh. Breta um refsiaðgerðir brezkra útgerðarmanna. Þær viðræður hafa enn ekki leitt til endanlegrar niðurstöðu, og ég treysti mér ekki á þessu stigi málsins að segja neitt með vissu um horfurnar. Hér hefur risið viðkvæmt vandamál milli vinaþjóða. Ég leyfi mér að mælast til þess, að enginn þm. gerist ber að því að reyna að nota það til þess að veikja gömul vináttubönd milli Íslendinga og Breta. Slíkt sæmir ekki. Að hinu ber að stefna, að halda fullu vinfengi við Breta, en hvika þó í engu frá rétti Íslendinga, hvað sem á dynur.
Ég sé ekki ástæðu til að fara um þetta miklu fleiri orðum, enda hefur málstaður Íslendinga verið vel skýrður og sterkum rökum studdur í orðsendingu utanrrh. Íslands til utanrrh. Bretlands. Það er ekki orðmælgi á Alþ., sem þjóð og þing krefst af ríkisstjórn Íslands í þessu máli, en það er málinu sjálfu og öllum aðilum þess fyrir beztu, að ekki sé farið dult með þá staðreynd, að núverandi ríkisstjórn Íslands mun halda fast á málstað Íslendinga. Ef henta þykir, mun stjórnin ekki hika við að flytja mál sitt með fullri einurð á sérhverjum erlendum vettvangi, þar sem rödd Íslands heyrist. Stjórnin mun hvergi hopa, heldur sækja fram til sigurs með öllum löglegum ráðum. Íslendingar munu og aldrei þola neinni ríkisstjórn sinni undanhald í málinu. Rík þjóðarþörf og einhuga þjóðarvilji er slagbrandur fyrir öllum útgöngudyrum til undanhalds í þessu velferðarmáli Íslendinga. — Ég vil svo aðeins leyfa mér, hæstv. forseti, að mælast til, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.