16.01.1953
Efri deild: 50. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1374 í B-deild Alþingistíðinda. (1990)
201. mál, erfðaleiga af hluta af prestssetursjörðum
Frsm. (Páll Zóphóníasson):
Herra forseti. Þetta frv. er flutt af landbn. eftir beiðni manna utan þings, sem eru dálítið kunnugir málum sitt á hvað um landið. Það kom hér fram í fyrra, þegar verið var að ræða um prestaköllin, að ýmsar prestssetursjarðirnar væru misjafnlega setnar. Það kom þá fram hér, að sumir prestarnir byggju ekki á jörðunum nema að litlu leyti, heldur leigðu þær út til annarra og þá oft fyrir töluvert hærra, en þeim væru metnar þær, enda hefði hv. kirkjumrn. síðan 1920 ekki séð ástæðu til að láta fara fram nýtt mat á heimatekjum presta, þó að það eigi alltaf að gera það á 10 ára fresti, og af því væri þetta orðin þó nokkur féþúfa fyrir prestana. Þó er það fyrir sig, þó að þeir geti eitthvað grætt á því, hitt er verra, að með því að leigja jarðirnar svona frá ári til árs láta þeir níða jarðirnar.
Það er til prestssetranefnd, sem í mun vera skrifari biskups og skrifstofustjóri í kirkjumrn. og landnámsstjóri og mun eiga að gera till. um það, af hvaða prestssetrum þeir teldu rétt að taka land til að búa til á nýbýli. Þar sem samkomulag hefur um það náðst við prest og kirkjumálastjórn, hefur það verið gert á einstaka stað. Á öðrum stöðum hefur ekki náðst samkomulag um það. Það hefur setið þar prestur, sem hefur að vísu ekki nytjað jörðina, hefur viljað leigja hana út sjálfur, og hann hefur verið kosinn af prestakallinu upp á það að hafa prestssetursjörðina til umráða og því engu hægt að breyta.
Það, sem þetta frv. fer fram á, er að heimila kirkjumrh., ef bæði skipulagsnefnd prestssetranna og nýbýlanefnd telja æskilegt, að einhverri prestssetursjörð sé skipt, og ekki fæst um það samkomulag við prestinn, að taka hluta af jörðinni leigunámi af prestinum og setja hana á erfðaleigu. Það er sem sé varaskeifa til þess að geta látið skiptingu fara fram á þeim prestssetrum, ef prestarnir standa á móti því og ekki næst samkomulag um að gera það. Í þeim tilgangi er það flutt. Og það getur vel verið, að núna á stundinni gripi það ekki til nema svona 7–8 prestssetra, sem ekki næst samkomulag um og eru nídd af prestunum, sem á þeim sitja, og aðrir menn hafðir að féþúfu í gegnum þetta af prestunum.
Ég skal nú ekki, nema af sérstöku tilefni, fara að lýsa neinu af þeim prestssetrum, en ef á þarf að halda, er ég tilbúinn. Að vísu veit hver maður, hvernig með þau er farið. En ég geri það ekki, nema sérstakt tilefni gefist.
Það gæti líka vel verið, að við það, að þetta frv. kemur hér fram og er rætt, færi líkt og með prestakallafrv.; það var rætt hér í fyrra, og það var verið að segja, að ég væri að skamma prestana, en það húsvitjuðu nærri 50 prestar á árinu, 3 árið áður og 4 í ár. Þessa þýðingu hafði það, að við vorum að víta þá hérna fyrir það, hvernig þeir ræktu sitt starf. Það gæti vel verið, að það færi eins með þetta. Það gæti orðið til þess, að þeir bættu ráð sitt, að þetta frv. kæmi hér fram og þeir heyrðu, að því væri gaumur gefinn, hvernig þeir færu með jarðirnar. Það gæti vel verið, að það hefði þá þýðingu, að einhverjir af þeim hættu að fara illa með jarðirnar, þó að það dagaði uppi.
Ég ætla svo ekki að hafa þetta lengra. Ég hygg, að það skipti engu, hvort því er vísað til nefndar eða ekki. Það er kannske rétt að gera það eftir þeirri venju, sem hér er komin á. (Forseti: Það er nú ekki beint venja. N. flytur þetta fyrirvaralaust.) — Við flytjum þetta fyrirvaralaust. Við munum athuga það milli umr., en ég býst ekki við, að við komum með miklar breyt. á því, og þó má vera, að við gerum það.