20.01.1953
Efri deild: 52. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1377 í B-deild Alþingistíðinda. (1994)
201. mál, erfðaleiga af hluta af prestssetursjörðum
Frsm. (Páll Zóphóníasson):
Herra forseti. N. hefur athugað þetta frv. á fundum sínum, og þar að auki hef ég rætt það við Pálma Einarsson, sem er bæði nýbýlastjóri og jafnframt formaður fyrir þeirri n., sem sér um skipulag prestssetra.
Þessar umr. hafa leitt til þess, að við höfum komið með eina brtt. um það, að í staðinn fyrir að láta afgjaldið eftir þann hluta af prestssetrum, sem kynni að verða leigður eftir þessum l., renna í kirkjujarðasjóð, þá skyldi það renna í fyrningarsjóð viðkomandi prestsseturs. En eins og mönnum er kunnugt, þá var tekin lág prósentutala af húsaverði jarðanna og lögð í fyrningarsjóð til að geta byggt prestssetrin upp fyrr, þegar þar að kemur, og okkur fannst þá eðlilegra, að það væri hlúð að fyrningarsjóðnum og það afgjald, sem þarna fengist, látið ganga til þess að hlúa að umbótum á sjálfu prestssetrinu með því að láta fyrningarsjóðinn aukast örara, en hann ella mundi gera.
Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til að ræða frv., og við nm. leggjum til, að það verði samþ.