03.02.1953
Neðri deild: 63. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1379 í B-deild Alþingistíðinda. (2006)

201. mál, erfðaleiga af hluta af prestssetursjörðum

Frsm. minni hl. (Jón Pálmason):

Herra forsetl. Eins og hv. þdm. hafa vafalaust veitt athygli, þá hef ég ekki getað orðið samferða meiri hl. hv. landbn. um afgreiðslu þessa máls og legg því til á þskj. 711, að því verði vísað frá með þeirri rökst. dagskrá, sem þar er birt.

Ég verð að segja það, að ég er mjög undrandi yfir því, að slíkt frv. sem þetta skuli hafa getað gengið gegnum hv. Ed., því að það er svo að sjá samkv. 1. gr. frv., eins og það liggur hér fyrir, að það megi því aðeins skipta prestssetursjörðum, að það sé í andstöðu við prestinn sjálfan, en það megi ekki skipta þeim, ef presturinn samþykkir það. Sannleikurinn er sá, eins og hv. frsm. meiri bl. tók fram, að skilja ber l. svo, eftir að þau voru endurskoðuð í fyrra, að það sé því aðeins heimilt að skipta út úr prestssetursjörðum, að það sé í fullu samkomulagi við þá aðila, sem hlut eiga að máli. Nú er það svo, að á bak við þetta frv. finnst mér í rauninni liggja ákaflega svipaður hugsunarháttur og er hjá þeim mönnum, sem vilja, að það sé hægt að setja leigjendur inn í hús manna, sem þeir eiga í kaupstöðum, og það jafnvel án þeirra leyfis, ef það er álitið, að húsið sé óþarflega stórt fyrir þá. Þetta hefur ekki gengið fram enn, og það er í mörgum tilfellum mjög hæpið að taka hluta af prestssetursjörðum, a.m.k. nema því aðeins, að það sé samþykkt af presti og sóknarnefnd viðkomandi safnaðar.

Nú er það svo, að hv. meiri hl. landbn. hefur breytt þessari fyrri gr. frv. nokkuð til bóta, þannig að hún gerir ráð fyrir því, að það þurfi að vera nánari till. og frekari skilyrði, sem þarna séu sett, og að það sé ekki eingöngu bundið við það, að það sé í andstöðu við prestinn. En þau fyrirmæli, sem eru í þessari gr., eins og hún kemur frá hv. meiri hl. landbn., eru þó þannig, að þau eru mjög ófullnægjandi. Þar segir, að það skuli gert „að fengnum till. nýbýlastjórnar“. Í frv. er líka gert ráð fyrir því, að þetta sé að fengnum till. nýbýlastjórnar, en ekki eftir till. hennar. Kirkjumrh., hver sem hann er, hefur þess vegna, þó að nýbýlastjórn geri um þetta till., enga skyldu samkv. þessu frv. til að fara eftir þessum till., heldur þarf hann aðeins að fá þær. Þar að auki, þó að nú og jafnan síðan ég kom í nýbýlastjórn hafi verið þar gott samkomulag, er það alls ekki víst, að það verði alltaf svo, því að það getur þá verið þar til meiri og minni hl., sem greinir á um þau atriði, sem hér er um að ræða. Þá er í bæði brtt. hv. meiri hl. landbn. og í frv. sjálfu alveg gengið fram hjá því, að það þurfi að vera nokkurt samkomulag við sóknarnefnd og prest um þetta og því síður prófast eða biskup. En það er nú svo, að þó að í mörgum tilfellum sé svo, að prestar hafi minni áhuga fyrir búskap og stundi minna búskap, en áður var, þá er það ákaflega hæpið mál af þeim orsökum að fara að sundra prestssetrunum frá því, sem þau hafa verið, því að það getur verið þannig ástatt, að það komi þar síðar prestur, sem hafi þörf fyrir alla þá jörð eða vilji nota hana alla. Ég þekki um það dæmi í mínu héraði, að það hefur verið gerð tilraun til þess að kljúfa sundur prestssetursjörð og fengið til þess samþykki prestsins, en safnaðarmenn allir snúizt gegn því, og það er ekki að fullu útkljáð enn, og ég veit ekki, hvernig um þann ágreining fer.

Annars er það ekki fyrst og fremst, að það sé svo mikill ágreiningur, — þó að hann sé nokkuð mikill um þetta atriði, sem í frv. er, — sem gerir það að verkum, að ég legg til, að því verði vísað frá, heldur er það svo, að ég lít svo á, að það þurfi þarna miklu víðtækari löggjöf um réttindi og skyldur presta yfir prestssetursjörðunum og skyldur og réttindi þeirra varðandi embættisbústaðina. Það eru dæmi til þess, að prestar, sem ekki búa sjálfir, leigja jarðirnar alla vega út og með mismunandi kostum, og ég álít, að það þurfi um það löggjöf, hvernig réttur slíkra manna er til þess að fara með jarðirnar. Þó að margar prestssetursjarðir séu vei setnar, þá eru þó dæmi til þess, að það eru sumar þeirra illa setnar og m.a. af þeim orsökum, hvað margir prestar hafa misst áhuga á því að stunda búskap frá því, sem áður var. — Ég legg eindregið til, að um þetta sé sett viðtækari löggjöf og hún undirbúin fyrir næsta þing, og við það er mín rökst. dagskrá á þskj. 711 miðuð.