27.01.1953
Neðri deild: 57. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1390 í B-deild Alþingistíðinda. (2029)

209. mál, veð

Frsm. (Ásgeir Bjarnason):

Herra forseti. Eins og frv. þetta ber með sér, er það um heimild fyrir banka og sparisjóði til að taka að veði hópa búfjár og húsgögn hjá bændum upp í lán, sem þeir fá til búrekstrar. Veð þessi skulu vera forgangsveð fyrir síðari veðum þessara einstöku búshluta eða búfjár, ef veðsett kunna að verða. Þess skal getið, að hlíðstæð veð eiga sér stað hjá útgerðarmönnum, þar sem þeir fá rekstrarlán út á aflann. Það er vitað mál, að mörgum bændum mundi koma sér mjög vel að geta fengið lán út á búfé og húsgögn, því að bæði er það, að einstaka bændur hafa ekki neitt að veðsetja nema bústofn sinn, og yfirleitt mundu þetta verða lán til skamms tíma, sem yrðu með venjulegum bankakjörum, þ.e.a.s. hvað vexti snertir.

Landbn. flytur frv. eftir beiðni landbrh., og áskilja nm. sér rétt til að flytja eða fylgja brtt., sem fram kunna að koma. Að lokinni þessari umr. óska ég þess, að málinu verði vísað til 2. umr.