03.02.1953
Efri deild: 64. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1397 í B-deild Alþingistíðinda. (2046)

209. mál, veð

Frsm. (Páll Zóphóníasson):

Herra forseti. Eftir það, sem fram kom hérna í gær, höfum við í n., sérstaklega þm. Seyðf., haft samband við prófessor Ólaf Lárusson og menn úr lagadeildinni og reynt að finna form. sem félli mönnum betur að skapi, en næði þó a.m.k. nokkurn veginn því, sem til væri ætlazt. Og eftir þær umr. og eftir þeirra ábendingu höfum við samið 1. gr. um. Þetta var nú gert fyrst í morgun. Því liggur hún hér fyrir bara skrifleg, en — með leyfi hæstv. forseta — hljóðar hún nú þannig:

„Þrátt fyrir ákvæði 4. gr. laganna er bændum rétt og heimilt að veðsetja bönkum og sparisjóðum að sjálfsvörzluveði einu nafni tiltekna flokka búfjár síns til tryggingar rekstrarlánum, sem veitt eru til ekki lengri tíma en eins árs í senn, og gengur það veð fyrir öðrum síðari veðsetningum búfjár og einstakra gripa.“

Breytingin, sem er orðin á þessu frá því, sem það var í gær, er í fyrsta lagi sú, að fóðrinu er sleppt. Það er hugsað þannig, að þegar afurðirnar eru lagðar inn að haustinu, — og þetta er helzt fyrir sauðfjárbú, sem þarf á þessu að halda, — þá komi um leið greiðsla upp í lánið, og þó að það hafi verið tekið til lengri tíma, þá sé ekki þörf á að hafa veðsetningu í fóðurforða fyrir veturinn, þess vegna sé óhætt að sleppa því. Þar að auki verður að líta svo á, að sá hópur búfjárins, sem þeir hafa sett að veði, noti það fóður, sem til er á heimilinu, jafnt við hitt, sem ekki væri veðsett, svo að það gangi jafnt yfir, og væri varla hægt að banna að gripa til veðsetta fóðursins handa hinum, ef ekki væri nægt fóður á heimilinu handa öllu, sem þar væri, eftir þeim reglum, sem almennt gilda um forðagæzlu og að hreppsnefndirnar geti tekið hey af mönnum, sem hafa aflögu hey, handa öðrum, sem vantar það. Þessi breyt. er þess vegna ekki stórvægileg. Hin er stórvægilegri, og ég er meira í vafa með hana, en þó var fallizt á það núna að sleppa afurðum búfjárins, gangandi út frá því, að þegar búféð sjálft sé að tryggingu, þá séu það fyrst og fremst afurðirnar af því, sem ætlað er að koma og komi til að borga veðlánið, og þess vegna sé ekki þörf á því að hafa afurðirnar með. Ég hafði hugsað mér, að menn gætu valið um, hvort þeir vildu heldur veðsetja væntanlegar afurðir af búfénu fyrir láninu eða búféð sjálft. En þótt það fari svona á stað þetta fyrsta ár, þá er hægt að laga það á næsta þingi, og ég vil gjarnan leggja hönd að því með þeim, sem þá koma til með að eiga við það, — og vænti ég, að það vilji nú reyndar allir vinna að því. Við leggjum þess vegna til, að þessi brtt. okkar sé samþ., en þar sem hún er skrifleg, þá mun þurfa að fá fyrir henni tvöföld afbrigði, en ég held, að það sé svo ljóst, að um breytingarnar, sem við gerum með þessu, þurfi ekki meiri umr., til þess að menn skilji alveg, hvað um er að ræða.