11.11.1952
Neðri deild: 24. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1399 í B-deild Alþingistíðinda. (2057)
126. mál, Iðnaðarbanki Íslands
Emil Jónsson:
Herra forseti. Eins og hv. 1. flm. þessa frv., hv. 7. þm. Reykv., gat um, þá var það öllum ljóst, þegar lögin um Iðnaðarbankann voru sett, að hlutafjárframlagið eitt mundi ekki nægja til sómasamlegrar starfsemi fyrir þennan banka. Eins og hann gat um, þá er hlutafjárframlagið í lögunum ákveðið 61/2 millj. kr. og ekki líklegt, að hægt verði að ná verulegum árangri í þeirri bankastarfsemi, sem hér er um að ræða, nema meira fé komi til. Þess vegna er það fullkomlega eðlilegt, að þetta frv., sem hér er lagt fram, komi fram. Og ég þarf ekki að hafa um það út af fyrir sig mörg orð, að ég er þessu frv. fyllilega sammála og mun greiða því atkv. En það eru tvö atriði í þessu sambandi, sem mig langar til að minnast á og snerta þetta mál og geta haft þýðingu fyrir afkomu þessarar væntanlegu lánsstofnunar, Iðnaðarbankans.
Í fyrsta lagi vildi ég minnast lítillega á það, hvernig hæstv. ríkisstj. hefur hugsað sér að greiða sitt hlutafjárframlag til bankans. Ég hef heyrt það frá stofnfundi bankans, og ég ætla, að það hafi líka komið fram í blöðum, að hæstv. ríkisstj. hafi ákveðið að greiða ekki af höndum allt hlutafjárframlagið, þessar 3 millj., í einu lagi, heldur láta eingöngu sem hlutafjárframlag jafnmikið og einstaklingar leggja fram við bankastofnunina, en taka vexti af þeim hluta þessara 3 millj., sem ekki er lagður fram í upphafi sem hlutafé. Ég veit nú ekki, hver ber ábyrgð á þessari ráðstöfun, hvort það er hæstv. fjmrh. eða hæstv. iðnmrh., en hvorugur þeirra er hér í d. sem stendur. En ég hefði mikla tilhneigingu til þess að fá að vita, hver það er, sem þessa ákvörðun hefur tekið, eins frámunalega smásmuguleg og mér finnst hún vera. Það má kannske segja það, að í strangasta skilningi beri ekki hæstv. ríkisstj. að leggja fram meira hlutafé, en aðrir gera hlutfallslega. En þar sem þetta hlutafjárframlag ríkisins er ekki lagt fram í gróðaskyni, heldur eingöngu til þess að styrkja þá stofnun, sem hér er um að ræða, og þá starfsemi, sem henni er ætlað að inna af höndum, þá finnst mér það, elns og ég sagði áðan, frámunalega smásmugulegt að hafa þennan hátt á. Og það er enginn vafi á því, að þessi ákvörðun muni há starfsemi bankans í upphafi mjög mikið. Við skulum gera ráð fyrir því, að ríkissjóður leggi fram sem hlutafé þriðjung þessarar upphæðar, eða 1 millj., í upphafi, en láni 2 millj. með 5% vöxtum, eins og ég hef heyrt, að ríkissjóður ætli að taka. Þá munar það þessa ungu og fátæku stofnun hvorki meira né minna en 100 þús. kr. á ári í rekstri, ef hún á að gjalda vexti af þessum 2 millj., sem ekki eru lagðar fram sem hlutafé strax í byrjun. Og með þeim innlánsvöxtum, sem nú eru á peningum og ákveðnir voru á þessu ári, þar sem innlánsvextirnir fara upp í 6–7% í ársvexti, þá er það sýnilegt, að hagnaður á bankastarfseminni verður það lítill, að ég efast um, að hún geti staðið undir sér. M.ö.o.: Það er með þessari ráðstöfun verið að gera tilraun til þess að kyrkja stofnunina í fæðingunni. Þetta vildi ég óska, að yrði leiðrétt. Og þar sem málið fer nú til þeirrar n., sem ég á sæti í, þá mun ég taka upp í n., hvort ekki sé hægt í sambandi við þetta frv. að taka þetta mál upp, svo að lagfæring fáist á. Ég veit að vísu og hef séð það, að hv. þm. Siglf. hefur borið fram till. um það að fá þessu breytt, en sú till. er ekki komin til afgreiðslu enn, hefur ekki verið tekin á dagskrá, eftir því sem ég bezt veit, svo að ég teldi á allan hátt heppilegast að fá þetta mál afgreitt um leið og tekin verður ákvörðun um þetta frv.
Hitt atriðið, sem ég vildi aðeins minnast á, er það, að á síðasta þingi var gerð ályktun um það, að verulegur hluti af mótvirðissjóði gengi til þess að mæta lánsfjárþörf bændastéttarinnar í landinu eða landbúnaðarins. Og var sú ályktun samþ. Á þessu þingi hefur komið fram till. um að taka verulegan hluta af mótvirðissjóðnum í atvinnubótasjóð ríkisins, og hefur komið fram um þetta lagafrv. Ég er fyrir mitt leyti ekki sérstaklega spenntur fyrir þessari ráðstöfun á mótvirðissjóði og teldi, eins og ég sagði í fyrra, þegar þetta mál var hér þá til umr., að heppilegra mundi að hafa annan hátt á ráðstöfun mótvirðissjóðs. En ef mótvirðissjóðurinn verður þrátt fyrir það að einhverju leyti tekinn til þeirrar ráðstöfunar, sem ég hef nú lýst, bæði til þess að mæta lánsfjárþörf landbúnaðarins og til þess að efla væntanlegan atvinnubótasjóð ríkisins, þá teldi ég alveg sjálfsagt, að athugað væri um leið, hvort ekki væri hægt og rétt að hjálpa Iðnaðarbankanum með því, að verulegur hluti mótvirðissjóðsins verði einnig tekinn til þessarar bankastofnunar og honum þannig auðveldað sitt starf, að mæta lánsfjárþörf iðnaðarins í landinu.
Þessi tvö atriði vildi ég leyfa mér að minnast á hér strax við þessa 1. umr., vegna þess að ég tel, að þau hafi ekki minni þýðingu fyrir þessa stofnun heldur en það frv., sem hér hefur verið lagt fram. En ef þessar ráðstafanir væru gerðar allar, þá mundu þær að verulegu leyti hjálpa bankanum yfir byrjunarörðugleikana og gera honum fært þegar í upphafi að hefja allmyndarlega starfsemi, sem ég sannast sagt efast um að hann geti, ef ekkert verður að gert annað en að láta til hans þetta takmarkaða hlutafé, sem ákveðið hefur verið, svo að ég nú ekki tali um, ef hlutafjárframlagið verður afgr. til hans á þann hátt, sem maður hefur heyrt að verði og ég nú hef lýst, en er ósamþykkur í fyllsta máta.