11.11.1952
Neðri deild: 24. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1401 í B-deild Alþingistíðinda. (2058)

126. mál, Iðnaðarbanki Íslands

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Það er út af fyrir sig ekki nema gott um þessa tillögu að segja og hennar tilgang að reyna að tryggja nokkurt fé til handa Iðnaðarbankanum. Hafa, elns og hv. þm. er ljóst, komið fram allmargar till. hér á þinginu nú viðvíkjandi auknu lánsfé til bankanna og yfirleitt ákaflega margar till. viðvíkjandi því, hvernig eigi að leysa úr lánsfjárþörfinni, sem hér sé allt að kyrkja. Ég tek eftir því, að allar þessar till. ganga út á það og sjá engan annan möguleika, en að taka útlend lán. Það er vitanlega vegna þess, að það er ekki hægt að fá lán innanlands. Nú er það alveg vitanlegt, hvað þessi útlendu lán þýða stjórnarfarslega séð. Þau þýða svona eitthvað í kringum 5% vexti á ári, ef þau fást, — 5% vexti á ári í erlendum gjaldeyri út úr landinu, sem er þannig beinn skattur til auðugra manna erlendis, sem lifa af því og græða á því að lána fé til fátækra landa, sem eru að byggja sig upp, og þó að þörfin sé svona mikil fyrir fé hérna heima, þá er alveg nauðsynlegt, að hv. þm. samvizkusamlega gangi úr skugga um það, hvort þeir möguleikar, sem til eru hér innanlands til lánsfjárveltu, séu raunverulega fullhagnýttir, áður en farið er út á þá braut að taka í stórum stíl erlend lán. Ég vil benda á það, að fyrir þrem, fjórum árum þótti það dálítið varhugaverð leið að gera að minnsta kosti allt of mikið að því að taka erlend lán. En þó efast ég ekki um, að það er þó skárri leið að taka erlend lán til framkvæmda hér heima, t.d. eins og til virkjunar okkar fossa og annars slíks og til yfirleitt nýsköpunar í okkar atvinnulífi, heldur en að láta það vera. En ég vil aðeins minnast á í þessu sambandi, eins og ég hef raunar oft gert og mun ekki þreytast á að gera, hvort hv. þm. hafi gert sér það ljóst, þegar þeir eru að binda núverandi kynslóð og kannske komandi kynslóðum svo og svo þunga bagga með erlendum lánum, að þegar verið er að taka lán í pundum og dollurum og hv. flokkar ríkisstj. síðan eftir eitt eða tvö ár, þegar vel stendur á í sambandi við kosningar, lækka gengið, þá er þar með verið að þyngja skattinn, sem lagður er á herðar Íslendinga. Það er öllum vitanlegt, hvað þeir skattar, hvað þau afgjöld af Íslandi út á við voru þyngd, þegar gengið var fellt seinast. Þetta er náttúrlega ekki sízt athugavert, þegar það gengur máske ekki stundum allt of vel að skaffa markaði fyrir okkar vörur í þeim löndum, sem við eigum að greiða afgjaldið til, vexti og afborganir. Ég vil þess vegna alvarlega skora á hverja þá nefnd, sem fær þessi mál til meðferðar, hvort sem hún heitir iðnaðarnefnd, landbúnaðarnefnd, fjárhagsnefnd eða annað, og þm. yfirleitt að ganga fyllilega úr skugga um það með sjálfum sér, hvort þeir séu vissir um, að þeir lánsfjármöguleikar, sem þjóðin ræður sjálf yfir, séu fullhagnýttir, áður en þeir leggja á herðar þjóðinni að greiða svona og svona þunga skatta í erlendri mynt.

Því er oft fleygt framan í mig sérstaklega, að ég vilji fara að láta auka seðlaveltuna í landinu og auka lánsfjárveltuna. Ég vil nú skora á hv. þm. í sambandi við þetta mál að gera sér fyllilega grein fyrir því, hvort þeir halda, að núverandi seðlavelta seðlabankans á Íslandi sé í samræmi við það, sem hún geti verið með eðlilegustum hætti, og hvort lánsfjárveltunni í landinu núna sem stendur sé stjórnað með þarfir þjóðfélagsins fyrir augum. Við skulum bara gera okkur ljóst, að okkar íslenzka þjóðfélag, þetta þjóðfélag 150 þús. manna hér, er þjóðfélag, sem stendur á ákaflega háu stigi teknískt séð, hefur mikið af tækjum, veltir þess vegna ákaflega miklu, framleiðir ákaflega mikið hlutfallslega miðað við vinnuafl hvers einstaklings vegna þess, hve miklu vélaafli hver einstaklingur að meðaltali ræður yfir við sina vinnu hér á Íslandi. Enn fremur framleiðir okkar þjóðfélag vöru, sem venjulega þarf að liggja með frá 6 upp í 12 mánuði, frá því að hún er veidd, — frá því fiskurinn er veiddur í sjónum, — og þangað til varan er seld erlendis. ,Það þýðir, að þjóðfélagið þarf að liggja með í fé, sem það setur í þessa vöru, miklar fúlgur miklu, miklu lengur en flestallar aðrar þjóðir gera. Sem sé, bæði vegna þess tæknistigs, sem þjóðfélagið stendur á, og vegna þess sérstaka háttar, sem er á framleiðslu Íslands, þá þarf íslenzka þjóðfélagið eðlilega miklu meira veltufé, en aðrar þjóðir — veltufé, sem við sjálfir getum skaffað. Og við skulum muna það í því sambandi, að við höfum meiri útflutningsverzlun, en nokkur önnur þjóð veraldarinnar að tiltölu. Við miðum sem sé okkar framleiðslu meira við að framleiða vörur til að selja út úr landinu, sem líka krefst venjulega miklu lengri lánsfrests, miklu meiri lánveitinga heldur en hjá þeim þjóðum, sem framleiða vörur til þess að selja innanlands og selja venjulega nokkuð fljótt. Ég hef t.d. verið að gera smávægilegan samanburð og hef þó ekki getað alveg stuðzt við fullkomlega öruggan grundvöll í þessu — á seðlaveltu Íslands eins og hún var t.d. 1915 og eins og hún er nú, og ég efast ekki um, að hverjum einasta þingmanni sé ljóst, að Ísland þarf allt annað og miklu meira veltufé og miklu meiri seðlaveltu, nú heldur en þurfti 1915. Við vitum allir, a.m.k. þeir, sem voru fæddir þá og eitthvað farnir að fylgjast með, eða þá hinir hafa þá lesið um það, hvernig okkar land var 1915 og hvernig það er nú, hve stórkostleg sú tæknilega breyting er og atvinnubylting, sem farið hefur fram í okkar þjóðfélagi með þessari kynslóð. Seðlavelta Íslands 1915 var eitthvað í kringum 36 krónur .á mann. Ég býst við, að kaupgjaldið frá því 1915 sé eðlilegasti grundvöllurinn eða mælikvarðinn til þess að leggja til grundvallar, þegar maður ætlar að athuga, hvað seðlaveltan muni þurfa að vera meiri. Það er eitthvað í kringum 50 sinnum. Ef það hefur verið, sem mig minnir nú að það hafi verið á þeim árum, 25 aurar um tímann, en nú er það tæpar 14 krónur, þá er það 56 sinnum hærra en þá var. Það þyrfti þá um 2.000 króna seðlaveitu á mann, ef hún hefur verið 36 krónur 1915. Sú seðlavelta ætti að þýða hér 300 millj. kr. núna eða í kringum það. Hún hefur verið, eins og þið vitið, í kringum 200 millj. En ég þori ekki að fullyrða, að þetta sé nákvæmlega réttur grundvöllur að öllu leyti, en hitt er að minnsta kosti gefið, að seðlaveltan er núna hlutfallslega minni, en hún var t.d. 1915. Og það er alveg vitanlegt, hvernig á þessum hlutum stendur. Seðlaveltan og lánsfjárveltan hafa verið stöðvaðar á óeðlilegan hátt, eftir að gengislækkunin varð og hin svo kallaða frjálsa verzlun var innleidd í ársbyrjun 1951. Með sérstökum samningum var Ísland skuldbundið til þess að öllum líkindum, þó að það hafi aldrei fengizt opinberlega viðurkennt, að stöðva lánsfjárveltuna og seðlaveltuna hérna innanlands, til þess að eftirlit Ameríkana og Benjamíns Eiríkssonar með mótvirðissjóðnum væri fullkomlega öruggt. M.ö.o., út frá öllum eðlilegum forsendum í landinu, út frá tæknilegu stigi þess og atvinnulegum og fjárhagslegum þörfum þess og út frá auðæfum þess og ríkidómi, þá var fyllilega mögulegt að hafa miklu meiri seðlaveltu og lánsfjárveltu hér innanlands heldur en er, en af utanaðkomandi öflum er þetta stöðvað, og seðlaveltan og lánsfjárveltan er stöðvuð hérna á Íslandi á miklu lægra stigi heldur en hún eðlilega ætti að vera.

Ég hef aldrei fengið hv. þm. og því síður hæstv. ríkisstj. til þess að ræða þetta mál af alvöru, en hver einasti þingmaður hér er meira eða minna flutningsmaður að nýjum frv. eða þáltill. um að bæta úr lánsfjárþörfinni. En hvernig í ósköpunum dettur mönnum í hug að vera að koma fram hér með hvert frv. á fætur öðru um að bæta úr lánsfjárþörfinni og þora aldrei nokkurn tíma að skyggnast fyrir orsakir þess lánsfjárskorts, sem nú ríkir, hvort þetta er með eðlilegum hætti eða ekki? Er það vegna þess, að hv. þm. stjórnarflokkanna sé ljóst, að þetta sé með óeðlilegum hætti og að þeir megi ekki hreyfa við því? Eða vilja þeir ekki fara að grafa fyrir rætur þessa meins? Allir viðurkenna, að þetta sé mein, þannig megi bókstaflega drepa þjóðfélagið, — það er að stöðva að miklu leyti útflutningsframleiðsluna, það er að draga úr atvinnunni um allt land, og það er að ræna menn eignum sínum í hundraðatali. Ísland er líklega það eina land, a.m.k. nokkurs staðar í nágrenni við okkur, þar sem t.d. ekki er hægt að fá lán út á 1. veðrétt í stóru húsi. Menn geta átt það á hættu, ef þeir hafa t.d. keypt íbúð og hafa unnið hana af sér og lenda í miklum sköttum seinna meir eða einhverju slíku, að íbúðir séu boðnar upp skuldlausar fyrir 2.000 króna skatti, og það koma fyrir dæmi um, að heil hús eru boðin upp út af 900 kr. skuld. Þetta er algerlega brjáluð bankastarfsemi og lánsfjárstarfsemi, sem hér er rekin á Íslandi. Það er þess vegna ekkert undarlegt, þótt fram komi hvert frv. á fætur öðru, sem byggir á réttum kröfum og frómum og góðum óskum og þjóðarnauðsyn, eins og það frv., sem hérna liggur fyrir. En ástandið er bara þannig, að meira að segja mennirnir, sem flytja þetta, eru allir saman dauðhræddir um, að það komist aldrei lengra, en til nefndar, vegna þess að þar verði það stoppað af ríkisstj.

Ég verð að segja það, hvort sem það er fyrir Iðnaðarbanka, Búnaðarbanka eða hvaða banka sem er, að það er nú náttúrlega höfuðatriði, hvort menn fá peningana að láni að lokum, en það er líka mikill aðstöðumunur, hvort menn verða að borga 5% vexti af þeim eða hvort menn fá þá frá seðlabankanum og seðlabankinn reiknar þeim kannske 1% í vexti, eins og seðlabankinn náttúrlega ákaflega vel gæti, ef hann með eðlilegu móti og án þess að skapa verðbólgu og hækkun ætti og mætti gefa út meira af seðlum og veita meira lánsfé út í atvinnulífið, heldur en nú er gert. Og hvað þýðir það, ef Iðnaðarbankinn verður að starfa með kapítali, sem hann verður að borga 5% vexti af? Það þýðir að leggja aukaskatt á allan iðnaðinn á Íslandi og reyna að gera hann ósamkeppnishæfan. Fyrsta skilyrðið til þess, að við getum rekið hér stóriðju og iðnað, er, að slík atvinnugrein geti unnið með ódýru rekstrarfé. Við skulum alveg gera okkur ljóst, hvað það þýðir, ef við segjum við Iðnaðarbankann hér: Þú færð 15 milljónir, þú færð 30 milljónir, þú borgar 5% vexti af þeim út úr landinu. — Það þýðir, að hann borgar til iðjuhöldanna erlendis, sem hann á að „konkurrera“ við, 5% vexti af því fé, sem hið útlenda auðvald lánar honum. Það þýðir að gera íslenzka iðnaðinn skattskyldan gagnvart þeim stóriðjuhringum, sem eru samfléttaðir bönkunum erlendis og hann á að „konkurrera“ við. Þegar við hugsum um, að það væri gott fyrir Iðnaðarbankann að fá lán, borga 5%, þá megum við ekki bera það saman við, að það þykir gott í Reykjavík í dag að fá lán og borga 10% og 20% á ári og að það þekkist í dag að borga upp í 80% á ári í vexti í Reykjavík, — að það þekkist í dag slíkur svartamarkaður, sem ríkisstj. hefur innleitt og skipulagt með sinni lánsfjárpólitík, að annað eins hefur aldrei þekkzt á Íslandi fyrr. Við megum ekki bera saman við svona ástand. Við verðum að bera saman við það, sem drottnar erlendis í þessum málum, það, sem við ætlum okkar iðnaði að keppa við. Við vitum það ósköp vel, að Ísland þarf að verða iðnaðarþjóð. Og ef við ætlum að byggja á heilbrigðum grundvelli okkar raforku og okkar iðnað, þá er það víst, að það, sem við þurfum að fá í þessum málum, er ódýrt fjármagn. Ég veit, að það kostar ákaflega harða baráttu að fá slíkt gert. Ég veit, að það kostar harðvítuga baráttu, svo að það hriktir í öllum máttarviðunum í þjóðfélaginu, ef maður ætlar að knýja það fram að útvega atvinnulífinu á Íslandi ódýrt fjármagn. Ég hef staðið í slíkri baráttu sjálfur. Þegar stofnlánadeild sjávarútvegsins var stofnuð, þá kostaði það engan smáræðis slag að tryggja, að það væri hægt að lána út með 2% vöxtum. Það eru slíkar aðstæður, sem þarf að skapa og hefur að nokkru leyti verið gert gagnvart landbúnaðinum, á meðan Framsókn var og hét og þorði eitthvað í þeim efnum, og þarf að gera það gagnvart iðnaðinum núna.

Ég held þess vegna, að það væri ákaflega æskilegt, ef sú hv. n., iðnn., sem fær þetta mál til meðferðar, vildi íhuga þetta mál nokkuð frá þessu sjónarmiði líka. Það er vissulega númer eitt fyrir iðnaðinn að fá sitt fjármagn, en þar næst að tryggja iðnaðinum eins og sjávarútveginum og landbúnaðinum sitt fjármagn þannig, að hann sé sem allra samkeppnishæfastur og hann sé ekki gerður skattskyldur að óþörfu við útlent auðvald, sem hann á að keppa við, — að honum séu ekki að óþörfu lagðar byrðar á herðar. Ég skal fyllilega viðurkenna það, að svo framarlega sem það sýndi sig, að það væri ómögulegt frá hagfræðilegu sjónarmiði að skapa meira lánsfjármagn hér innanlands, setja meira fé í veltuna af þjóðfélaginu sjálfu, þá væri ekki önnur leið heldur en sú, sem hér er stungið upp á. En ég vil halda því fram, að það sé óhætt, að það sé eðlilegt og að það sé sjálfsagt að setja meira fé í veituna, heldur en hér er gert núna, og ég held, að ég hafi þar fyrir mér allar kenningar nútíma hagfræðinga um, að aukin seðlavelta og aukin lánsfjárvelta skapi ekki neina verðbólgutilhneigingu, þegar atvinnuleysi er fyrir í landinu. Hitt skal ég viðurkenna, að um leið og atvinnuleysið verður þurrkað upp, um leið og fullnægt væri þörf allra þeirra, sem nú eru atvinnulausir í landinu, þá yrði stöðvuð seðlaveltan og lánsfjárveltan. Þá er komið að því marki í þjóðfélaginu, þar sem aukin seðlavelta og aukin lánsfjárvelta mundu verða til þess að skapa verðbólgu. Hins vegar vita allir, hve fjarri því er, að Ísland hafi ekki yfirdrifið af vinnukrafti núna til þess að ráðstafa í sína framleiðslu. Þannig er engin hætta til sem stendur af aukinni innlendri seðla- og lánsfjárveltu, sízt af öllu þegar henni er einbeitt að því annars vegar að auka útflutningsframleiðslu landsins og skapa þannig gjaldeyri, gera íslenzka seðla að erlendum gjaldeyri og hins vegar þegar henni er einbeitt að því að framleiða íslenzkar iðnaðarvörur, sem við að öðrum kosti hefðum orðið að flytja inn.

Ég vil sem sé, um leið og ég mæli með þessu frv., eindregið mælast til þess við hv. iðnn., að hún íhugi þetta, þann almenna hluta úr þessu máli, sem ekki á frekar sérstaklega við og ég segi ekki frekar út frá þessu frv. um Iðnaðarbanka heldur en ég hef komið að því stundum áður í sambandi við aðrar tillögur um lánsfjáröflun. Ég vil mælast til þess við hv. iðnn., að hún íhugi alvarlega þennan þátt. Ég held, að það sé verið að gera okkur stórkostlegan skaða, öllu okkar atvinnulífi og öllu okkar fjárhagslífi, og verið að binda okkur óþarflega þunga bagga í útlendum gjaldeyri í óþörfum vaxtagreiðslum viðvíkjandi framtíðinni með hringlandi vitlausri fjármála- og flokkapólitík, sem nú er rekin.